Fréttablaðið - 27.10.2006, Blaðsíða 90
54 27. október 2006 FÖSTUDAGUR
ÚRSLIT LEIKJA Í GÆR
Iceland Express deild karla
HAUKAR-SNÆFELL 63-66
Stig Hauka: Roni Leimu 20, Sigurður Einarsson
15, Sævar Haraldss. 8, Sveinn Sveinss. 6, Kristinn
Jónass. 5, Morten Szmiedowicz 5, Kevin Smith 4.
Stig Snæfells: Justin Shouse 16, Sigurður Þor-
valdsson 16, Hlynur Bæringsson 11, Magni Haf-
steinsson 11, Helgi R. Guðmundsson 9, Jón Ó.
Jónsson 2, Bjarne Nielsen 1.
KR-SKALLAGRÍMUR 81-88
Stig KR: Brynjar Þór Björnsson 21, Jeremiah Sola
17, Peter Heizer 10, Tyson Patterson 9, Fannar
Ólafsson 8, Skarphéðinn Ingason 7, Pálmi Sigur-
geirsson 7, Darri Hilmarsson 3.
Stig Skallagríms: Jovan Zdravevski 24, Darryl
Flake 23, Dimitar Karadzovski 16, Pétur Sigurðs-
son 10, Axel Kárason 7, Pálmi Sævarsson 3, Haf-
þór Gunnarsson 3, Sveinn Blöndal 2.
NJARÐVÍK-HAMAR/SELFOSS 72-41
ÞÓR ÞORLÁKSHÖFN-GRINDAVÍK 65-98
Sænska úrvalsdeildin
AIK-IFK GAUTABORG 4-0
Hjálmar Jónsson lék ekki með IFK.
HÄCKEN-HAMMARBY 0-0
Ari Freyr Skúlason var ekki í hópnum hjá Häcken,
né heldur Pétur Marteinsson hjá Hammarby. Þar
var Gunnar Þór Gunnarsson á bekknum.
GEFLE-HALMSTAD 0-2
ELFSBORG-GAIS 1-0
Jóhann B. Guðmundsson lék ekki með GAIS.
KALMAR-HELSINGBORG 2-4
STAÐAN
IF ELFSBORG 24 12 10 2 39-18 46
AIK 24 12 9 3 43-23 45
HELSINGB. 24 11 8 5 43-30 41
HAMMARBY 24 11 7 6 37-30 37
DJURGÅRDEN 24 10 7 7 29-24 37
KALMAR 24 10 5 9 35-28 35
MALMÖ 24 9 8 7 41-35 35
IFK GÖTEB. 24 9 8 7 38-34 35
GEFLE 24 8 6 10 26-36 30
HALMSTADS 24 5 11 8 22-29 26
GAIS 24 5 10 9 23-31 25
ÖSTER 24 4 7 13 18-42 19
HÄCKEN 24 3 9 12 25-40 18
ÖRGRYTE 24 3 7 14 21-40 16
Hollenska úrvalsdeildin
FEYENOORD-TWENTE 2-1
Arnar Þór Viðarsson sat á bekknum hjá Twente.
WILLEM II-AZ ALKMAAR 0-4
Grétar Rafn Steinsson lék allan leikinn fyrir AZ en
Jóhannes Karl Guðjónsson sat á bekknum.
Heimsbikarinn í handbolta
A-RIÐILL
TÚNIS-GRIKKLAND 33-24
SVÍÞJÓÐ-SPÁNN 28-19
LOKASTAÐAN
SVÍÞJÓÐ 3 2 0 1 91-77 4
TÚNIS 3 2 0 1 97-92 4
SPÁNN 3 2 0 1 76-74 4
GRIKKLAND 3 0 0 3 64-85 0
B-RIÐILL
SERBÍA-KRÓATÍA 26-41
ÞÝSKALAND-DANMÖRK 25-29
LOKASTAÐAN
DANMÖRK 3 3 0 0 100-89 6
KRÓATÍA 3 2 0 1 104-87 4
ÞÝSKALAND 3 1 0 2 92-91 2
SERBÍA 3 0 0 3 89-118 0
NÆSTU LEIKIR
UNDANÚRSLIT (Á MORGUN)
SVÍÞJÓÐ-KRÓATÍA DANMÖRK-TÚNIS
KEPPNI UM 5.-8. SÆTI
SPÁNN-SERBÍA ÞÝSKALAND-GRIKKLAND
FÓTBOLTI Þjálfari og fyrirliði Bar-
celona, Frank Rijkaard og Carles
Puyol, voru ánægðir með frammi-
stöðu Eiðs Smára Guðjohnsen sem
skoraði bæði mörk Börsunga í
sigri liðsins á neðrideildarliðinu
Badalona í spænsku bikarkeppn-
inni. Leikurinn var sá fyrri af
tveimur en á þriðjudaginn mætast
liðin á Nou Camp í Barcelona.
Eiður kom Börsungum í 2-0 for-
ystu í síðari hálfleik eftir að stað-
an var markalaus í hálfleik. Eiður
fékk reyndar gott færi til að skora
í fyrri hálfleik en brást bogalistin.
En mörkin tvö sem hann skoraði
voru það eina jákvæða við leik
Börsunga. Marga byrjunarliðs-
menn vantaði í liðið, svo sem Ron-
aldinho og Lionel Messi sem og
vitanlega Samuel Eto‘o sem verð-
ur frá næstu mánuði vegna
hnjámeiðsla.
„Ég er afar ánægður fyrir hans
hönd,“ sagði Rijkaard. „Það er
afar mikilvægt fyrir framherja að
skora mörk.“ Eiður byrjaði sem
framliggjandi miðjumaður en Rijk-
aard færði hann svo eftir 20 mín-
útna leik í framlínuna þar sem
hann lék við hlið Javier Saviola.
Fram að því höfðu Börsungar ekki
komið skoti að marki en það
breyttist fljótlega eftir þessa
breytingu.
Fyrra markið skoraði hann
eftir laglegan undirbúning Saviola
og það síðara eftir að markvörður
Badalona náði ekki að halda föstu
skoti sem kom á markið. Eiður var
þó líklega rangstæður í því marki
en það fékk að standa.
„Við höfum alltaf haft trú á
honum,“ sagði Puyol um Eið Smára.
„Hann er frábær leikmaður og það
mikilvæga er að hann skapar mörg
marktækifæri því mörkin koma
þegar hæfileikamaður eins og hann
spilar í liðinu.“
Mörkin voru kærkomin eftir
vonbrigði síðustu viku er Barce-
lona tapaði fyrir Chelsea á Stam-
ford Bridge og Real Madrid á
Santiago Bernabeu nokkrum
dögum síðar. Eiður var í byrjunar-
liðinu í bæði skiptin en hvorki
honum né félögum hans tókst að
skora í leikjunum. Eiður fékk þó
afar gott færi gegn Real Madrid
en skaut framhjá af stuttu færi.
Hann hefur þó skorað fjögur mörk
alls með Barcelona í haust. - esá
EIÐUR SMÁRI Hér í baráttu við Macanas, leikmann Badalona. NORDIC PHOTOS/AFP
Frank Rijkaard og Carles Puyol hrósa Eiði Smára Guðjohnsen í hástert eftir sigurinn í bikarkeppninni:
Við höfum alltaf haft trú á Eiði Smára
FÓTBOLTI Daníel Hjaltason mun
ekki spila með Víkingum á næsta
ári og samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins mun hann annað
hvort spila með Val eða Fylki á
næstu leiktíð. Sjálfur vildi hann
ekki staðfesta hvaða lið hann ætti
í viðræðum við. „Ég er að tala við
eitt lið eins og er og gengur vel.
Ég býst við því að það klárist í
næstu viku,“ sagði Daníel við
Fréttablaðið. - esá
Daníel Hjaltason úr Víkinni:
Daníel til Vals
eða Fylkis?
FÓTBOLTI Ágúst Gylfason verður
áfram í herbúðum KR-inga næsta
árið. Hann hefur skrifað undir
eins árs framlengingu á samningi
sínum en hann gat lítið leikið með
liðinu síðasta sumar vegna
meiðsla. Hann gekk til liðs við KR
árið 2003 og er 35 ára gamall. - esá
Ágúst Gylfason:
Áfram í KR
KÖRFUBOLTI Skallagrímur sýndi
góða takta í KR-heimilinu í gær.
Eftir að hafa lent í ógöngum í loka-
leikhlutanum leiddi Jovan Zdra-
vevski liðið áfram í átt að ljósinu
en stórleikur hans í lokaleikhlut-
anum, þar sem hann skoraði 15
stig, skilaði Sköllunum verðskuld-
uðum sigri.
Skallarnir mættu gríðarlega
grimmir til leiks og komust fljót-
lega í 1-8. Á meðan allt datt niður
hjá gestunum gekk hvorki né rak
hjá heimamönnum sem voru
ískaldir og þá sérstaklega Banda-
ríkjamaðurinn Tyson Patterson
sem var í tómu rugli, gaf boltann
hvað eftir annað í hendurnar á
Sköllunum og hitti lítið.
Þessi sjö stiga munur hélst út
fyrsta leikhlutann og það var ekki
síst að þakka fínum leik Péturs
Sigurðssonar sem setti niður átta
stig í leikhlutanum en staðan var
13-20 eftir fyrsta leikhluta.
Fyrsti leikhluti var illa leikinn
af báðum liðum og hreint ótrúleg
klaufamistök litu dagsins ljós.
Sömu gæði voru á boðstólum í
öðrum leikhluta en Valur Ingi-
mundarson, þjálfari Skallagríms,
gat unað betur en kollegi hans,
Benedikt Guðmundsson, enda
leiddu hans menn í leikhléi með
níu stigum, 35-44.
Benedikt hefur klárlega beitt
hárblástursaðferðinni á sína menn
í leikhléi því þeir komu gríðarlega
grimmir út úr klefanum og áður
en Skallarnir voru búnir að átta
sig á að seinni hálfleikur var
byrjaður höfðu heimamenn minnk-
að muninn í eitt stig, 43-44.
Þá tók Valur leikhlé, sló sína
menn utan undir og skipaði þeim
að vakna sem þeir og gerðu. Jafnt
var á flestum tölum út leikhlutann
en Skallarnir gáfu aðeins í undir
restina og leiddu með átta stigum
fyrir síðasta leikhlutann, 55-63.
Aftur byrjuðu KR-ingar vel og
voru fljótir að minnka muninn enn
á ný í eitt stig, 62-63. Eins og
venjulega tóku Skallarnir kipp
þegar byrjað var að anda ofan í
hálsmálið hjá þeim en það dugði
skammt því KR náði loks að jafna,
69-69, með þriggja stiga körfu
Brynjars og hann kom KR síðan
yfir skömmu síðar, 72-69.
Þá spýttu Skallarnir í lófana
enn eina ferðina og með mikilli
seiglu sigu þeir fram úr á ný og
lönduðu verðskulduðum sigri, 81-
88.
„Við áttum þetta fyllilega skil-
ið,“ sagði himinlifandi þjálfari
Skallagríms, Valur Ingimundar-
son, en hann var að vinna sinn
fyrsta leik í KR-húsinu með Skalla-
grím. „Ég er mjög stoltur af strák-
unum því þeir sýndu mikinn kar-
akter og liðsheild og kláruðu
leikinn.“ henry@frettabladid.isDARRYL FLAKE Skoraði 23 stig gegn KR í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Sanngjarn sigur Skallanna á KR
Strákarnir í Skallagrími sýndu mikinn karakter og þrautseigju er þeir lögðu KR í Vesturbænum, 81-88.
Þetta var fyrsta tap KR og fyrsti sigur Skallanna í vetur. „Áttum sigurinn skilinn,“ sagði þjálfari Skallanna.
KÖRFUBOLTI Snæfellingar gerðu
góða ferð í Hafnarfjörðinn í gær
og sigruðu heimamenn í Haukum
með þremur stigum, 63-66. Leik-
urinn var ekki mikið fyrir augað
og oft á tíðum vandræðalegur
sóknarleikurinn hjá báðum liðum.
Það var mikið jafnræði með lið-
unum í byrjun leiksins í gær. Lítið
var skorað í fyrsta leikhluta, Snæ-
fellingar voru oft á tíðum ragir við
að skjóta og enduðu því oft með að
taka erfið skot vegna tímaleysis.
Haukar höfðu þó yfirhöndina í
fyrsta leikhluta og leiddu, 17-14,
þegar honum lauk.
Haukar skoruðu hins vegar
ekki nema 11 stig í öðrum leik-
hluta og Snæfellingar sigu fram-
úr. Munurinn var þó ekki nema
eitt stig í hálfleik, 28-29, gestunum
í vil.
Snæfellingar héldu yfirhönd-
inni í þriðja leikhluta, þar sem
leikmenn beggja liða kepptust við
að gera sóknarmistök. Snæfelling-
ar höfðu þriggja stiga forskot að
loknum þriðja leikhluta, 41-44.
Það stefndi allt í nokkuð örugg-
an sigur Snæfellinga, þeir fóru
mun betur af stað í síðasta leik-
hlutanum, en Haukar neituðu þó
að játa sig sigraða og leikurinn
var spennandi fram á síðustu sek-
úndu. Snæfellingar höfðu þrjú stig
yfir þegar rúmar þrjár sekúndur
voru eftir og Roni Leimu fékk
algjörlega frítt þriggja stiga skot
til að jafna leikinn en það mistókst
hjá honum.
Þriggja stiga sigur gestanna því
staðreynd í leik sem oft á tíðum
var átakanlega erfitt að horfa á
sökum lélegs leiks beggja liða.
„Við vorum að spila ömurlegan
körfubolta og við fengum líka að
heyra það frá þjálfaranum núna
áðan. Undir lokinn var eins og við
værum hræddir við að tapa leikn-
um en ekki til að vinna,“ sagði
Hlynur Bæringsson eftir sigurinn
í gær. „Við erum töluvert betri en
Haukarnir þó þeir séu sprækir.“
Sævar Ingi Haraldsson, fyrir-
liði Hauka, var ekki sáttur eftir
leikinn. „Þessi frammistaða var
mjög döpur og við vorum bara
drepnir í fráköstum. Við fáum
ágætis skotfæri í leiknum en við
erum bara ekki að setja þau
niður.“
- dsd
Haukar töpuðu í gær á heimavelli fyrir Snæfellingum í leik sem var ekki mikið fyrir augað:
Afar slakur körfubolti hjá báðum liðum
FRÁKAST Hlynur Bæringsson, leikmaður Snæfells, tekur eitt af sínum níu fráköstum í
leiknum gegn Haukum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON