Fréttablaðið - 27.10.2006, Síða 94
27. október 2006 FÖSTUDAGUR58
HRÓSIÐ …
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÁRÉTT
2 sakeyrir 6 hvað 8 hamfletta 9
hljóma 11 sem 12 fylgsni 14 trufla 16
golf áhald 17 niður 18 kúgun 20 guð
21 góla.
LÓÐRÉTT
1 ofneysla 3 hvort 4 prestur 5 lítill
sopi 7 heimsálfa 10 fæða 13 suss 15
megin 16 kaðall 19 á fæti.
LAUSN
LÁRÉTT: 2 sekt, 6 ha, 8 flá, 9 óma, 11
er, 12 felur, 14 raska, 16 tí, 17 suð, 18
oki, 20 ra, 21 gala.
LÓÐRÉTT: 1 óhóf, 3 ef, 4 klerkur, 5
tár, 7 ameríka, 10 ala, 13 uss, 15 aðal,
16 tog, 19 il.
Hannes Hólmsteinn Gissurarson,
prófessor í stjórnmálafræði, er
upp með sér yfir að Óttar Martin
Norðfjörð rithöfundur ætli að
skrifa ævisögu hans og gefa út í
þremur bindum. Eins og Frétta-
blaðið sagði frá í gær kemur fyrsta
bindið, sem telur reyndar ekki
nema tvær blaðsíður, út fyrir þessi
jól og ber titilinn Hannes - Nóttin
er blá, mamma.
Hannes var undir stýri þegar
Fréttablaðið truflaði hann. „Þetta
er bara auglýsing fyrir mig og ég
tek því auðvitað vel,“ segir hann
eftir að hafa lagt bifreið sinni út í
vegkanti. Hannes kvartar ekki
þótt Óttar hafi skrifað bókina án
samráðs við sig. „Hann getur
skrifað um mig eins og hann vill,
ég hef ekkert að fela. Hver veit
nema ég skrái sjálfur niður það
sem á daga mína hefur drifið
þegar fram líða stundir og þetta
verður bara til þess fallið að vekja
athygli á því. Bók um mig og þá
sem ég hef hitt í gegnum tíðina
gæti orðið mjög forvitnileg,“ segir
Hannes.
Hann hlakkar til að sjá fyrsta
bindi ævisögu sinnar, sem bregð-
ur ljósi á uppvaxtarár hans. „Ég
býst við að höfundurinn geri sér
far um að koma eintaki í mínar
hendur. Það verður gaman að sjá
hvernig honum hefur tekist til.“
- bs
Upp með sér yfir ævisögunni
HANNES HÓLMSTEINN Finnst líklegt að
hann muni skrá eigin endurminningar
þegar fram líða stundir.
... fær Eyjólfur Kristjánsson sem
syngur undurfagran óð til
hetjunnar sinnar, Björgvins
Halldórssonar, á nýrri plötu
sinni og Stebba Hilmars.
Matvöruverslanakeðjan Iceland
hefur gengið frá samkomulagi við
bresku sjónvarpsstöðina ITV um að
vera einn aðalbakhjarl raunveru-
leikaþáttaraðinnar I‘m a Celebrity,
Get Me Out of Here. Þættirnir hafa
notið mikilla vinsælda í Bretlandi
en í þeim birtast misfrægar per-
sónur úr bresku götublöðum og
keppa um glæsileg verðlaun.
Iceland er að mestu í eigu
Íslendinga en Fons, sem athafna-
maðurinn Pálmi Haraldsson á,
og Baugur Group eiga í
kringum sextíu pró-
senta hlut í versl-
anakeðjunni.
Pálmi, sem er
stjórnaformaður Ice-
land, hafði sjálfur lesið um
málið á netinu en vissi ekki meira
um það að svo stöddu. „Nei, ég hafði
ekki hugmynd um þetta, það er ein-
hver forstjóri þarna úti sem hefur
ákveðið þetta,“ útskýrði Pálmi, sem
sagði jafnframt að fyrirtækið hefði
ákveðnar fjárhæðir til að ráðstafa í
markaðsmál. „Ég
treysti því að þessi
samningur sé rétt
ákvörðun,“ sagði
Pálmi og viður-
kenndi að hann
hefði ekki hug-
mund um
hvaða
þátt væri um að ræða. „Nei, ég er
ekki mikill sjónvarpskarl, vinnst
ekki mikill tími til að glápa á það.“
Um sjöttu þáttaröðina í þessari
raunveruleikaþáttaröð er að ræða
og er reiknað með að hún fari í loft-
ið þann 19. nóvember. Þegar vin-
sældir hennar hafa verið hvað
mestar er talið að yfir sextán millj-
ónir hafi horft á þættina. Meðal
þeirra sem hafa slegið í gegn í þátt-
unum eru brjóstabomban Jordan
og hinn sykursæti unnusti hennar,
Peter Andre, en þau kynntust ein-
mitt við gerð þriðju þáttaraðarinn-
ar. - fgg
Iceland styrkir breskan raunveruleikaþátt
PÁLMI HARALDSSON Hafði lesið um málið en vissi
ekkert meira. Sagðist auk þess ekki vera mikill
sjónvarpskarl.
JORDAN OG PETER Slógu í gegn í þriðju
þáttaröðinni en þau féllu fyrir hvort
öðru á meðan á tökum stóð.
Björn Bjarnason hefur verið
duglegur við að kynna sjálfan sig
fyrir komandi prófkjör. Engu
að síður kom það mörgum
á óvart er hann ákvað að
mæta í útvarpsþáttinn
alræmda Capone á
X-FM. Björn stóð sig
með prýði í þættin-
um og ræddi við þá
Andra og Búa um allt á milli him-
ins og jarðar, m.a. brotthvarf hans
úr blaðamennskunni í stjórnmálin.
Talið barst einnig að Die Hard-
myndunum og játaði Björn að vera
hrifinn af þeim. Sagðist hann þó
ekki vera meiri aðdáandi Willis en
annarra og fannst fregnir um þessa
meintu aðdáun hans hafa verið
blásnar fullmikið upp á sínum tíma.
Andri spurði Björn hreint út hvort
hann hefði einhvern tímann notað
eiturlyf og þvertók Björn fyrir það.
Björn spurði á móti hvort þessi
þáttur, Capone, væri vinsæll og þeir
félagar önsuðu
því að hann væri
sá vinsælasti
á landinu
og slægi
auðveldlega
út allt annað,
þar á meðal
Bylgjuna, hvað sem hver hefði að
segja um það.
Allt stefnir í að allsherjarþing
Ásatrúarfélagsins, sem fram fer nú
á laugardaginn á Sögu, verði sögu-
legt, enda margir þar fornir í hátt-
um og fornir í lund. Talsverður hiti
er innan félagsins en hópur manna
er afar ósáttur við núverandi stjórn
og einkum það að hún hafi selt
húsnæði félagsins úti á Granda.
Torfi Geirmundsson hárskeri er
einn þeirra, eins og Fréttablaðið
greindi frá um daginn, og ætlar að
bjóða sig fram til stjórnar. Þá eru
þeir gráir fyrir járnum bræðurnir
Sigurður Þórðarson og ekki síður
bróðir hans alþingismaðurinn, og
goði fyrir Vesturland, Sigurjón,
sem ætla að láta sverfa til stáls
vegna málsins. Á hinn bóginn eru
margir innan stjórnar og
utan sem þykir Torfi hafa
verið heldur glannalegur
í yfirlýsingum á síðum
Fréttablaðsins. -fb/jbg
FRÉTTIR AF FÓLKI
„Ég vissi að það þýddi ekkert að
opna kosningaskrifstofu á einum
stað og segja: Leyfið fólkinu að
koma til mín,“ segir Róbert Mars-
hall prófkjörsframbjóðandi. Hann
flakkar nú um hið víðfeðma Suður-
kjördæmi á ljósbrúnum húsbíl
sem hann hefur merkt sér í bak og
fyrir og gert að fjórhjóladrifinni
kosningaskrifstofu.
„Suðurkjördæmi er gríðar-
stórt, teygir sig frá Garðskaga-
vita austur að Höfn í Hornafirði,
út í Eyjar og Uppsveitir,“ segir
Róbert, sem var á leið austan frá
Höfn þegar Fréttablaðið náði tali
af honum. „Ég þarf því að fara
sjálfur á staðinn á fund við kjós-
endur, bæði til að kynna mig og
heyra hvaða mál brenna á íbúum í
kjördæminu.“
Foreldrar Róberts eiga húsbíl-
inn, sem honum fannst kjörið að
taka í sína þjónustu til að fara á
fund við kjósendur. „Ég ek núna á
milli staða, ræði við fólk úti á götu
og í fyrirtækjum og hefur verið
afskaplega vel tekið,“ segir fram-
bjóðandinn en með honum í för er
Jói stjúpfaðir hans.
Þótt húsbíllinn sé í eigu fjöl-
skyldunnar hafði Róbert ekki
sofið í honum fyrr en nú en segir
ekki væsa um sig. „Það er stórfínt
að gista í honum og fer virkilega
vel um mann.“ Róbert er þekktur
kassagítarleikari, hljóp í skarðið
fyrir sjálfan Árna Johnsen í
Brekkusöng á Þjóðhátíð um árið
eins og þekkt er, og að sjálfsögðu
er gítarinn með í för. „Ég reyni
alltaf að taka hann með þegar ég
fer í ferðalög. Ég hef hins vegar
ekki tekið lagið enn sem komið
er,“ segir hann.
Eftir prófkjörið verður Róbert
hins vegar að finna sér aðra kosn-
ingaskrifstofu því að prófkjörinu
loknu ætla foreldrar hans að selja
bílinn hæstbjóðanda. „Og fyrir
rétt verð má jafnvel semja um að
láta merkingarnar fylgja með,“
segir Róbert að lokum.
bergsteinn@frettabladid.is
RÓBERT MARSHALL: FARANDFRAMBJÓÐANDI Á SUÐURLANDI
Kosningaskrifstofa á hjólum
og gítarinn í aftursætinu
FYRIR FRAMAN KOSNINGASKRIFSTOFUNA Róbert segir ekki væsa um sig í bílnum og sefur eins og barn.
Líka fyrir þig;
lífið, fréttirnar
og fjörið á ensku
Líka fyrir þig;
lífið, f éttirnar
og fjörið á ensku
F
í
t
o
n
/
S
Í
A