Fréttablaðið - 06.11.2006, Síða 12

Fréttablaðið - 06.11.2006, Síða 12
Réttu hjálparhönd Félagsþjónusta Kópavogs óskar eftir að ráða fólk í heimaþjónustu. Fjölbreytt og gefandi starf með sveigjanlegum vinnutíma. Heilsdags- og hlutastörf. Kynntu þér kjörin, þau koma á óvart! Nánari upplýsingar veita þjónustustjórar heimaþjónustunnar í síma 570 1400. www.kopavogur.is Meginmarkmið Félagsþjónustu Kópavogs er að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi Kópavogsbúa á öllum aldri svo þeir fái tækifæri til að taka virkan þátt í samfélaginu. Um 22.000 manns hafa skrifað undir áskorun þess efnis að samþykkja beri lagafrum- varp um afnám fyrningarfrests vegna kynferðis- brota gegn börnum. Þetta segir Ágúst Ólafur Ágústsson, sem er fyrsti flutningsmaður frum- varpsins. Hann segir slíkan stuðning nánast fordæmalausan í sögu þingisins. „Þó að þetta sé í fjórða sinn sem frumvarpið er lagt fram hefur þingheimur ekki enn fengið tækifæri til að taka afstöðu til málsins, þar sem það hefur aldrei fengist til umræðu á þinginu,“ segir Ágúst Ólafur. Hann bendir á að sömuleiðis liggi fyrir frumvarp dómsmálaráðherra sem geri almennt ráð fyrir fjögurra ára lengingu á fyrning- arfresti. Með slíkri breytingu næðist fram mikil- vægur áfangasigur sem beri að fagna. Ágúst Ólafur og aðrir flutningsmenn telji hins vegar að stíga eigi skrefið til fulls og afnema fyrningarfrest. Sé litið til þess hvenær þolendur leiti sér aðstoðar, til að mynda hjá Stígamótum, komi í ljós að rúmlega 40 prósent eru 30 ára eða eldri. Sam- kvæmt núgildandi lögum séu öll kynferðisbrot gegn börnum fyrnd við 29 ára aldur þolanda. Með samþykkt á frumvarpi dómsmálaráðherra verði öll kynferðisbrot gegn börnum fyrnd við 33 ára aldur þolands. Átaksverkefninu „nóvember gegn nauðgunum“ var hleypt af stokkunum fyrir helgi. Það er jafningafræðsla Hins hússins sem stendur fyrir átakinu og verða fyrirlestrar um málefnið haldnir í framhaldsskólum í þesssum mánuði. Ösp Árnadóttir, framkvæmda- stjóri jafningjafræðslu Hins hússins, segir ástæðu átaksins vera aukinn fjölda misneytingar- mála meðal ungs fólks þar sem karlmenn notfæri sér ölvunar- ástand stúlkna og hafi við þær kynmök. Ösp segir að í fræðslunni verði lögð áhersla á sektarhugtak- ið og þá staðreynd að fórnarlamb beri aldrei ábyrgð á nauðgun. Nóvember gegn nauðgunum Í októbermánuði gaf Persónuvernd út sjö leyfi til vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við vísindarannsóknir. Það sem af er þessu ári hefur Persónuvernd gefið út 94 leyfi og segir Særún María Gunnarsdóttir, lögfræðingur Persónuverndar, stærstan hluta þeirra vegna vísindarannsókna. Sem dæmi um leyfi í október má nefna leyfi til aðgangs að sjúkra- skrám vegna rannsókna á þroskaferli barna með Downs- heilkenni og rannsókna á sjúk- lingum með sykursýki tegund 2 á Heilsugæslu Kópavogs. 94 leyfi það sem af er ári Ung vinstri græn lýsa sig algjörlega mótfallin trúboði í skólum og vísa hér til hinnar svokölluðu „vinaleiðar“ sem fram fer í opinberum skólum. Ung vinstri græn krefjast þess að gætt sé hlutleysis í öllu starfi grunnskóla landsins. Að mati stjórnar Ungra vinstri grænna er hin svonefnda vinaleið ekkert annað en trúboð þó reynt sé að breiða yfir það með því að tala um sálgæslu. Ung vinstri græn telja sálfræðinga og félagsráðgjafa mun betur í stakk búna til að sinna sálgæslu í grunnskólum enda hafa þeir sérfræðimenntun á því sviði. Sálfræðingar sinni sálgæslu Skjaldarmerki Íslands er notað á pólskri frétta- og spjall- síðu, www.iceland.pl, sem Pólverj- ar á Íslandi nota töluvert mikið. Skjaldarmerkið hefur einnig verið notað víðar, þar á meðal á vefsíðu starfsmannaleigunnar 2b ehf., en verið fjarlægt þaðan. Í lögum um þjóðfána og skjald- armerki Íslendinga kemur fram að skjaldarmerkið er auðkenni stjórnvalda ríkisins og að notkun þess sé aðeins heimil stjórnvöld- um. Þórhallur Vilhjálmsson, lög- fræðingur í forsætisráðuneytinu, segir að það sé aldrei veitt undan- þága frá því. Þórhallur segir að óheimil notkun skjaldarmerkisins sé eins og hvert annað lögbrot, sem beri að kæra. Brot varðar sektum. Hann kveðst vita til þess að lögreglan hafi talað við menn vegna ólögmætrar notkunar á skjaldarmerkinu og þá hafi þeir látið af athæfinu. Hörður Jóhannesson, yfirlög- regluþjónn hjá lögreglunni í Reykjavík, segir að engar kærur hafi borist og engin mál séu til skoðunar. Eiður Eiríkur Baldvinsson, forsvarsmaður 2b, segist hafa fjarlægt strax skjaldarmerkið á vefsíðu 2b. Hann hafi einfaldlega ekki gert sér grein fyrir að notkunin væri óheimil. Ekki náðist í forsvarsmenn iceland.pl. Aðeins heimilt stjórnvöldum Brotist var inn í félagsheimilið á Flúðum aðfara- nótt föstudags og stolið þaðan þremur fartölvum, tveimur skjávörpum, myndbandsupptöku- vél, fjarstýringum og lítilræði af skiptimynt. Samkvæmt upplýs- ingum lögreglunnar á Selfossi spenntu þjófarnir upp hurð á bakhlið hússins sem liggur bæði að félagsheimilinu og kennsluað- stöðu sem grunnskólinn á Flúðum notast við. Þá var gerð tilraun til að brjótast inn í verslunina í Árnesi og telur lögregla ekki ósennilegt að sömu menn hafi verið þar á ferð. Stálu raftækjum og skiptimynt Mennta- og fjármála- ráðuneyti leggja til, við aðra umræðu um frumvarp til fjárlaga, að fjölgað verði um tíu nema í hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri og fimmtán við Háskóla Íslands. Þetta er breyting því í fjárlaga- frumvarpi fyrir árið 2007 er gert ráð fyrir að nemendum á fyrsta ári í hjúkrunarfræði verði fjölgað um 25 og þeir nemar verði allir í Háskóla Íslands. Námið í fleiri en einum skóla

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.