Fréttablaðið - 06.11.2006, Side 13
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
-
7
4
8
0
KIA umboðið á Ís landi er í e igu HEKLU. Laugavegi 172 • Reykjavík • s ími 590 5700 • www.kia. is
KIA er sá bílaframleiðandi sem er í mestum vexti í heiminum í dag.
Það er ekkert skrítið þegar hægt er að bjóða þessi gæði á svona verði.
3.475.000 kr.
Við kynnum nýjan alvörujeppa, KIA Sorento
– fullbúinn jeppi með ríkulegum staðalbúnaði
• hátt og lágt drif • 5 þrepa sjálfskipting
• ESP stöðugleikastýring • öflug 170 hestafla dísilvél
• ný og glæsileg innrétting • hraðastillir (Cruise Control)
• 16" álfelgur • þakbogar
• vindskeið • þokuljós
Sorento hefur slegið í gegn um allan heim og eignast dygga fylgismenn á
Íslandi. Það er ekki að ástæðulausu að Sorento er orðinn einn vinsælasti
jeppi landsins, enda líklega bestu jeppakaupin í dag.
Nýtt verð
Vinna er hafin hjá
borginni í að samræma heima-
hjúkrun og heimaþjónustu sem
mun koma til lækkunar á
gjaldskrá í heimaþjónustu að
sögn Jórunnar Frímannsdóttur,
formanns velferðarráðs Reykja-
víkurborgar. Heimahjúkrun er á
hendi ríkisins og heimaþjónusta
hjá sveitarfélögum.
„Stefnt er að því að skipta
heimaþjónustunni upp á milli
annars vegar þrifa og hins vegar
félagslegrar þjónustu sem mun
sameinast meira heimahjúkrun-
inni.“ Gert er ráð fyrir að
útfærsla af þessari vinnu komi í
vor.
Gjaldskrá mun
lækka í vor
Gjaldskrá fyrir heimaþjónustu,
félagsstarf, fæði og veitingar í félagsstarfi
og þjónustugjöld í þjónustuíbúðum aldraðra
í Reykjavík mun hækka um tæp níu prósent
næstu áramót samkvæmt samþykkt velferð-
arráðs Reykjavíkurborgar.
Í bókun meirihluta ráðsins segir að
hækkun vísitölu hafi verið vanáætluð í
fjárhagsáætlun ársins 2006 og 4,4 prósent
hafi vantað upp á hækkun gjaldskráa í fyrra.
Félag eldri borgara í Reykjavík lýsir yfir
undrun og vonbrigði með hækkanirnar.
Margrét Margeirsdóttir, formaður félagsins,
segir borgarstjórnarmeirihlutann ekki
standa við yfirlýsingar sínar frá í vor um að
bæta kjör aldraðra. „Örvænting er í fólki
sem hefur verið að hringja í mig og sér ekki
fram á að hafa efni á þjónustu sem það hafi
þörf fyrir.“
Jórunn Frímannsdóttir, formaður velferð-
arráðs, segir þessar hækkanir nauðsynlegar
til að ekki þurfi að draga úr þjónustunni og
bætir við að verið sé að auka þjónustu við
aldraða til dæmis með akstursþjónustu og
skipulögðum heimsóknum.
Jórunn tekur fram að þeir sem séu á
strípuðum bótum og lægstu laununum greiði
ekki fyrir heimaþjónustu.
„Hækkunin á því ekki að bitna á þeim
sem verst eru settir.“ Spurð um hvort
einhverjir lendi hugsanlega utan þess hóps
en hafi samt ekki efni á þjónustu telur hún
það ekki vera og því þurfi ekki að skoða það
sérstaklega.
Dýrari þjónusta fyrir aldraða
Paul F. Nikolov gefur
kost á sér í 1. til 3. sæti í forvali
Vinstri hreyfingarinnar – græns
framboðs í Reykjavík
norður, Reykja-
vík suður og
Suðvesturkjör-
dæmi, fyrir
alþingiskosning-
arnar 2007.
Paul hefur unnið
sem
blaðamaður hjá
Grapevine en
vinnur nú sem
blaðamaður hjá fréttastofunni
AFP, og sem stuðningsfulltrúi í
sambýli fyrir fatlaða. Nýlega
hóf hann störf sem útvarpsmaður
á 96,2 FM, útvarpsstöð fyrir
innflytjendur.
Paul F. Nikolov
í framboð
Ráðgert er að
byggja 2.000–2.500 fermetra
hjúkrunarheimili á Egilsstöðum á
næstu 2–3 árum. Sótt verður um
30 milljóna króna framlag úr
ríkissjóði sem mun skiptast niður
á þrjú ár til að lagfæra núverandi
húsnæði sjúkrahúss og heilsu-
gæslu til að það nýtist betur undir
starfsemina.
Soffía Lárusdóttir, forseti
bæjarstjórnar, segir að lögð sé
áhersla á að byggja sem fyrst
hjúkrunarheimili fyrir aldraða
sem eru langveikir og dvalar-
heimili fyrir aldraða á Egilsstöð-
um.
Nýtt hjúkrun-
arheimili byggt
Undanfarið hefur
hollenska dagblaðið De Telegraaf
birt fréttir af beinbrotum
ungbarna sem vakið hafa
töluverðan ugg þar í landi.
Samkvæmt De Telegraaf hafa
engar haldbærar skýringar
fengist við því hvers vegna
lærleggur tveggja daga gamallar
stúlku reyndist brotinn á sjúkra-
húsi í Tilburg. Tveim vikum áður
fundust sambærileg beinbrot hjá
ungbörnum á spítala Amsterdam
og í síðustu viku kom upp svipað
atvik á öðrum spítala í sömu borg.
Yfirvöld sjúkrahúsa í Hollandi
hafa nú gripið til aðgerða svo að
komið verði í veg fyrir að fleiri
sambærileg atvik eigi sér stað.
Dularfull bein-
brot ungbarna