Fréttablaðið - 06.11.2006, Blaðsíða 18
fréttir og fróðleikur
Málefnin sem voru á aðal-
dagskrá Norðurlandaráðs-
þings í Kaupmannahöfn í
vikunni sem leið, svo sem
hvernig norræna velferðar-
módelinu reiddi af í hnatt-
væðingunni, vöktu minni at-
hygli fjölmiðla en hliðarefni
á borð við jafnréttismál í
Færeyjum.
Það breytti litlu um fjölmiðlaat-
hyglina þótt bryddað hefði verið
upp á þeirri nýjung að formleg dag-
skrá Norðurlandaráðsþings hæfist
á svonefndum leiðtogafundi, þar
sem ríkisstjórna- og stjórnarand-
stöðuleiðtogarnir kölluðust á um
efnið „samkeppnishæfni Norður-
landa í hnattvæðingunni og nor-
ræna velferðarmódelið“.
Í sínu innleggi í þessum umræðum
sagði Geir H. Haarde forsætisráð-
herra að forgangsraða þurfi í nor-
rænu samstarfi og leggja áherzlu á
þau samstarfssvið sem sennilegust
eru til að skila áþreifanlegum
árangri, þar á meðal menntun,
rannsóknir, nýsköpun og afnám
hindrana í vegi frjálsra flutninga
milli Norðurlanda. Geir sagðist
sannfærður um að með þessum
hætti gætu norrænu samstarfs-
stofnanirnar, Norðurlandaráð og
Norræna ráðherranefndin, stuðlað
að því að bæta samkeppnishæfni
Norðurlanda.
Samkeppnishæfni Norðurland-
anna verður líka í brennidepli for-
mennskudagskrár Finna í Norrænu
ráðherranefndinni á árinu 2007. Í
opnunarræðu sinni á Norðurlanda-
ráðsþinginu lagði finnski forsætis-
ráðherrann Matti Vanhanen jafn-
framt áherzlu á samhengi milli
formennskudagskrár Finna í Evr-
ópusambandinu og í Norrænu ráð-
herranefndinni. Finnar gegna for-
mennskunni í ESB til áramóta.
Samkeppnishæfnina vilja Finn-
ar tryggja með tilstyrk eflds sam-
starfs á sviði rannsókna, þróunar
og nýsköpunar; þetta sé til þess
fallið að gera norræn fyrirtæki
betur í stakk búin að mæta áskor-
unum hnattvæðingarinnar.
Í umræðunni komu skýrt fram
ólík sjónarmið vinstri- og hægri-
manna gagnvart því hvernig bregð-
ast skuli við áskorunum hnattvæð-
ingarinnar. Nýi sænski
forsætisráðherrann, Fredrik Rein-
feldt, lagði til að stofnað yrði nor-
rænt ráð um hnattvæðinguna, sem
starfi með hliðstæðum ráðum í
þjóðlöndunum. Bauðst hann til að
leiða skipulagsstarf fyrir slíkt ráð.
Hann lagði í máli sínu áherzlu á það
sem hann kallar neikvæðar afleið-
ingar velferðarkerfisins, en það
væri að of margir stæðu utan við
atvinnulífið og væru þar með svo
gott sem útilokaðir frá virkri þátt-
töku í samfélaginu.
Fulltrúar vinstrisósíalista, svo
sem Norðmaðurinn Jan-Henrik
Frederiksen, tóku annan pól í hæð-
ina. Að þeirra sögn verði Norður-
landaþjóðirnar að standa vörð um
velferðarkerfin gegn áhrifum
hnattvæðingarinnar. Steingrímur
Sigfússon, formaður Vinstrihreyf-
ingarinnar-græns framboðs, spurði
hvort það væri hinni nýju sam-
keppnismenningu að kenna að svo
margir stæðu nú utan vinnumark-
aðarins.
Sænski jafnaðarmaðurinn Sven-
Erik Österberg, fulltrúi sænsku
stjórnarandstöðunnar í umræð-
unni, sagði norræna velferðarkerf-
ið hafa veitt Norðurlandabúum
öryggi sem hafi styrkt stöðu þeirra
í hinni alþjóðlegu samkeppni.
Siv Jensen, leiðtogi norska
Framfaraflokksins, hrærði aðeins
upp í umræðunni með því að tala
máli einkavæðingar í umönnunar-
þjónustu. Hún sló því föstu að opin-
beri geirinn væri allt of stór á Norð-
urlöndunum og það stæði þeim
fyrir þrifum í alþjóðasamkeppn-
inni.
En eins og fyrr segir voru það frek-
ar ýmis hliðarmál sem vöktu meiri
athygli á þessu Norðurlandaráðs-
þingi. Allsnörp umræða varð um
stöðu samkynhneigðra og jafnrétt-
ismála í Færeyjum.
Í nýrri tölfræðihandbók Norður-
landa kemur meðal annars fram
sláandi misræmi milli atvinnuþátt-
töku kvenna og hlutfalls þeirra á
þingi. Þessi munur er langmestur í
Færeyjum, þar sem yfir 88 prósent
kvenna stunda atvinnu, en aðeins
12,5 prósent fulltrúa á færeyska
Lögþinginu eru konur. Hvernig
staðan er í þessum málum á öllum
Norðurlöndunum má lesa betur út
úr súluritunum hér á síðunni.
Jógvan á Lakjuni, þingmaður
íhaldsmanna á færeyska Lögþing-
inu og samstarfsráðherra Norður-
landa í færeysku landstjórninni,
brást ókvæða við því að vakið væri
máls á meintri mismunun samkyn-
hneigðra í Færeyjum, en Rannveig
Guðmundsdóttir, þingmaður Sam-
fylkingarinnar, var ein þeirra sem
það gerði. Honum fannst einnig að
sér vegið þegar Jónína Bjartmarz,
samstarfsráðherra Íslands, innti
hann eftir því hvað færeysk yfir-
völd hefðu aðhafst til að framfylgja
vestnorrænni jafnréttisáætlun,
sem samþykkt var árið 1999. Hann
svaraði gagnrýninni með því að
vísa til þess að tölfræðin sýndi
aðrar mjög jákvæðar hliðar á fær-
eysku samfélagi; til dæmis væru
fóstureyðingar og hjónaskilnaðir
hvergi færri.
Óháð þessu lýstu margir þing-
fulltrúar, þar á meðal þeir íslenzku,
yfir stuðningi við sjálfstæða aðild
Færeyja og hinna norrænu sjálf-
stjórnarsvæðanna, Grænlands og
Álandseyja, að Norðurlandaráði.
Þjóðréttarleg atriði eru helzta
hindrunin fyrir því að þetta gangi
eftir.
Annað mál sem talsverð fjölmiðla-
umræða spannst um var hvernig
staðið var að vali á næsta fram-
kvæmdastjóra Norrænu ráðherra-
nefndarinnar. Finnum fannst
greinilega freklega framhjá sínum
manni gengið er forsætisráðherr-
arnir tilkynntu á þriðjudagsmorg-
un að þeir hefðu ákveðið að Íslend-
ingurinn Halldór Ásgrímsson tæki
við stöðunni er Svíinn Per Unckel
lætur af henni um áramótin. Jan-
Erik Enestam, sem er umhverfis-
ráðherra og samstarfsráðherra
Norðurlanda í finnsku ríkisstjórn-
inni, hafði líka sótzt eftir stöðunni.
Hann er einn fremsti stjórnmála-
maður Finnlands-Svía, en það skýr-
ir hvers vegna viðbrögðin við vali
Halldórs skyldu vera mun harðari í
sænskumælandi pressunni í Finn-
landi en hinni finnskumælandi. Í
Hufvudstadsbladet, elzta starfandi
dagblaði Finnlands og helzta mál-
gagni sænskumælandi minnihlut-
ans, var Vanhanen forsætisráð-
herra sagður hafa látið undan
„baktjalda-yfirgangi Íslendinga“,
en viðlíka orðbragð var ekki að
finna í Helsingin Sanomat eða
öðrum helztu fjölmiðlum Finn-
lands. En í öllum finnskum miðlum
var lýst áhyggjum af því að Finnar
bæru skarðan hlut frá borði í nor-
rænu samstarfi og ef áhugi þeirra á
samstarfinu ætti ekki að minnka
enn frekar en orðið er yrði að bæta
úr þessu.
Svo fór að lokum að á fundi
menningarmálaráðherranna var
ákveðið að nýrri norrænni menn-
ingarmálaskrifstofu, Kulturkon-
taktNord, yrði fundinn staður í
Sveaborg við Helsinki. Danir beittu
sér fyrir því að þessi skrifstofa
yrði í Kaupmannahöfn, og Íslend-
ingar, Grænlendingar og Færey-
ingar höfðu óskað sér að hún yrði
til húsa á sama stað og vestnorræna
menningarmiðstöðin á Norður-
bryggju.
Athyglin á hliðarmálunum
Einnig kölluð hrafnreyður
9.
HVER
VINN
UR!
TAKTU
ÞÁTT!
AÐEI
NS
Á PSP
GLÆNÝR GRAND
THEFT AUTO!
SENDU SMS BTC FGT Á 1900 OG
ÞÚ GÆTIR UNNIÐ EINTAK!
VINNINGAR ERU PSP, GTA LEIKIR, AÐRIR TÖLVULEIKIR,
DVD MYNDIR OG MARGT FLEIRA!
AÐALV
INNIN
GUR
ER PS
P TÖLV
A
OG GT
A!
!
V
i n
n
in
g
ar
ve
rð
a
a f
h
en
d
ir
h
já
BT
S
m
ár
al
in
d
. K
ó
p
av
o
g
i .
M
eð
þ
ví
a
ð
t
ak
a
þ
át
t
er
tu
k
o
m
in
n
í
SM
S
kl
ú
b
b.
1
4 9
kr
/s
ke
yt
ið
.
Aukin fræðsla
skiptir sköpum