Fréttablaðið - 06.11.2006, Page 28
Nýjar íbúðir til sölu
Íslenskir aðalverktakar hf. Höfðabakka 9, 110 Reykjavík, sími 530 4200
Rúmgóðar íbúðir á frábærum stað
í Grafarvogi
Nýjar íbúðir í lágreistum og fallegum fjölbýlishúsum við Gull-
engi 2–6. Engjahverfið er gróið og heillandi hverfi á frábærum
stað í Grafarvoginum. Stutt er í alla þjónustu, í næsta nágrenni
eru leik-, grunn- og framhaldsskóli og þjónustumiðstöðin
Spöngin aðeins steinsnar frá.
Húsin eru sérlega vönduð og viðhaldslétt, hönnuð af Tekton
arkitektum. Útveggir eru með steiningaráferð og viðarklæddir
að hluta og lóð frágengin með snjóbræðslu í hluta hellulagðra
göngustíga. Aðeins níu íbúðir eru í hverju húsi, sex íbúðir eru
fimm herbergja (130–140 fm), tvær fjögurra herbergja (120 fm)
og ein þriggja herbergja (100 fm). Landslagsarkitektastofan
Landslag sá um hönnun lóðar og leiksvæðis.
Íbúðirnar eru bjartar og rúmgóðar og er þeim skilað fullbúnum
án gólfefna en með flísalögðum þvottahúsgólfum og bað-
herbergjum. Innréttingar eru vandaðar og hægt er að velja milli
þriggja viðartegunda í innréttingum og hurðum. Heimilistæki
eru frá AEG eða sambærileg, með burstaðri stáláferð. Salerni
eru vegghengd og sturtubaðker fylgir flestum íbúðum.
Íbúðirnar eru 3ja, 4ra og 5 herbergja, 102–140 fm.
Verð frá 24,7 millj.
GULLENGI – REYKJAVÍK
3ja, 4ra og 5 herbergja
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
Glæsihús í miðbæ Reykjavíkur
Lindargata 27 er glæsilega hannað viðhaldslítið átta hæða
lyftuhús. Íbúðum er skilað fullbúnum með parketi á gólfum
og með flísalögðum baðherbergis- og þvottahúsgólfum. Sér
þvottahús er í hverri íbúð og rúmgóðar geymslur í kjallara fyrir
hverja íbúð. Innréttingar eru spónlagðar. Kaupendur geta valið
um þrjár viðartegundir. Í eldhúsi verður keramikhelluborð með
fjórum hellum, blástursofn og gufugleypir. Heimilistæki eru af
AEG-gerð með burstaðri stáláferð eða sambærilegt. Dyrasími
er tengdur myndavél í aðalanddyri. Sjónvarpsloftnets- og síma-
tenglar eru frágengnir í stofu, borðkrók og svefnherbergjum. Í
íbúðunum er tengikassi fyrir stjörnutengingar síma, loftnets,
tölvu og ljósleiðara. Sameign og lóð eru fullfrágengin. Snjó-
bræðsla er við aðalanddyri, aðkomurampa og í bílastæðum.
Göngustígar og hluti bílastæða er hellulagður. Leiksvæði er
með gúmmíhellum og leiktæki.
Frábær staðsetning og stutt í alla þjónustu. Nútímaleg hönnun
og allur frágangur er sérlega vandaður.
Íbúðirnar eru 2ja og 3ja herbergja, 80–195 fm.
Verð frá 30,1 millj.
Glæsilega hannaðar íbúðir
Ásakór er fallegt þriggja hæða fjölbýlishús með lyftu og 6 íbúðum á hæð. Sérinngangur er í hverja íbúð og fylgir eitt bílastæði
hverri íbúð. Svalagangar 2. og 3. hæðar eru með glerskermum.
Íbúðum er skilað fullbúnum án gólfefna en með flísalögðum baðherbergis- og þvottahúsgólfum. Innréttingar eru vandaðar frá
HTH. Þvottaherbergi er í öllum íbúðum.
Íbúðirnar eru 3ja og 4ra herbergja, 98–110 fm.
Örfáar íbúðir eru óseldar. Til afhendingar strax.
Verð frá 22,9 millj. með sér stæði í bílageymslu
LINDARGATA – REYKJAVÍK
2ja–3ja herbergja
SÓLTÚN – REYKJAVÍK 2ja–3ja herbergja
ÁSAKÓR 2–4 – KÓPAVOGI 3ja–4ra herbergja
Opið h
ús mán
udag
og þrið
judag
kl. 16 –
18
Ásakór
2–4 íb
úð 102
Húsið vinstra megin er númer 8–12 og húsið hægra megin 14–18
www.iav.is