Fréttablaðið - 06.11.2006, Síða 60
Leikarinn og leikstjórinn Mel
Gibson fékk nýverið Latino-heið-
ursverðlaun fyrir væntanlega
kvikmynd sína Apocolypto. Voru
verðlaunin afhent í Los Angeles,
þar sem fólk af suður-amerískum
uppruna er afar fjölmennt.
Myndin, sem fjallar um Maya
og var tekin upp í Mexíkó, verður
frumsýnd í desember. Fjallar hún
um hnignun hinnar háþróuðu
menningar Maya-frumbyggjanna
í Mexíkó.
Gibson, sem er fimmtugur, var
í sviðsljósinu á dögunum þegar
hann var handtekinn fyrir að aka
bíl sínum ölvaður. Bölvaði hann
gyðingum við handtökuna og sagði
þá bera ábyrgð á öllum styrjöld-
um heimsins. Baðst hann síðar
afsökunar á ummælunum.
Mel Gibson
heiðraður
Bresku blöðin halda áfram
umfjöllun sinni um skilnað
Pauls McCartney og Heath-
er Mills en málið tekur á sig
ýmsar myndir. Nú þykist
Daily Mail hafa heimildir
fyrir því að Mills sé komin
með nýjan mann.
Blaðið birti um helgina frétt þess
efnis að Heather Mills væri hugs-
anlega í tygjum við einkaþjálfara
sinn, Ben Amigoni, en þau hafa
sést æ meira saman eftir að hitna
tók í kolunum hjá Mills og McCartn-
ey. Þetta er reyndar ekki í fyrsta
skipti sem nafn Amigoni ber á
góma í umræðunni því 17. október
greindi Daily Mail frá því að Paul
McCartney hefði boðað einkaþjálf-
arann á sinn fund þar sem hann
ætlaði sér að fá svör við því hvort
hann ætti í ástarsambandi við
Heather.
Ben Amigoni gekk til liðs við
Heather fyrir þremur árum þegar
hún byrjaði að æfa í heilsuræktar-
stöðinni Hilsden Gym þar sem
Amigoni vann. Þegar hún gekkst
undir aðgerð á fæti réð Mills hann
á staðnum og fékk hann til að sjá
um endurhæfinguna. Amigoni, sem
er 22 ára, sagði síðan upp unnustu
sinni til margra ára til þess að geta
farið með hinum nýja skjólstæð-
ingi sínum um allan heim og séð til
þess að hún væri í fínu standi.
McCartney ákvað að ganga
hreint til verks þegar hann og Mills
höfðu tilkynnt skilnað sinn og
hringdi í Amigoni til að spyrja
hvort hann ætti í ástarsambandi
við Heather. „Ben fékk símtal og
vissi ekkert hvaðan á sig stóð veðr-
ið, trúði því hreinlega ekki að sir
Paul hefði áhuga á að tala við
hann,“ sagði heimildarmaður Daily
Mail. „Hann fullvissaði McCartney
um að ekkert væri í gangi, sam-
band þeirra væri eingöngu fag-
legt,“ bætti heimildamaðurinn við.
Samkvæmt götublaðinu á
McCartney að hafa tekið þessar
útskýringar gildar en Daily Mail
telur nokkuð ljóst að miklar sam-
verustundir einkaþjálfarans og
Mills hljóti að kveikja aftur grun-
semdir hjá vinalega Bítlinum, Ami-
goni hafi ekki vikið frá Mills síðan
fjaðrafokið hófst.
Þótt skilnaðurinn sé vissulega kom-
inn í hart virðist hann þó hafa ein-
hverjar jákvæðar hliðar. Börn
McCartneys hafa verið dugleg við
að heimsækja pabba sinn á heimili
hans. Samkvæmt mörgum vefsíð-
um hefur Paul ævinlega þurft að
heimsækja börnin sín en þau hafa
ekki viljað koma á meðan hann var
kvæntur Heather. Samkvæmt ein-
hverjum fréttamiðlum er Heather,
stjúpdóttir Paul, farin að láta sjá
sig enda hefur nafn móður hennar,
Lindu McCartney, verið dregið inn
í málaferlin vegna upptaka sem
hún gerði skömmu áður en hún
lést. „Heather hefur ekki sést í
mörg ár og starfsfólki brá heldur
betur í brún þegar hún birtist öllum
af óvörum.“ Þá hafa þau Mary og
James McCartney einnig verið
dugleg við að kíkja inn til pabba
síns.
Mest hefur hins vegar borið á
fatahönnuðinum Stellu McCartney
sem á von á barni. Samkvæmt
erlendum fréttaveitum er málið
sagt ógna meðgöngunni vegna þess
hversu mjög fatahönnuðurinn
tekur málið inn á sig. Frá því var
greint í News of the World fyrir
viku að hún vildi helst ganga
frá stjúpmóður sinni með
berum höndum. Á Stella að
hafa sagt við föður sínum að
hún vildi ekki koma með barn-
ið inn á heimili þar sem Heath-
er Mills væri.
Skilnaður McCartneys og
Mills hefur vakið upp minn-
ingar um annan skilnað
sem skók heimsbyggðina,
þegar Díana prinsessa
sagði skilið við Karl
Bretaprins. Mills og
McCartney hafa ráðið
sér sömu lögfræðinga
og málið hefur verið
nánast daglega á for-
síðum slúðurblaðanna
enda hafa ásakanirnar
gengið á víxl. Mills
hefur átt undir högg að sækja í
fjölmiðlaumfjölluninni og hefur
mörgum þótt nóg um, hafa bent á
að hún sé jafnvel meira fórnar-
lamb en McCartney.
Lögfræðingurinn James Stew-
art sagði við vefútgáfu USA Today
að málið gæti reynst erfitt fyrir
Mills og hún hefði jafnvel
gert taktísk mistök. „Sam-
kvæmt lögum í Bretlandi
er ekki heimilað að skilja
nema hægt sé að sýna
fram á óæskilega hegð-
un eða sifjaspell,“
sagði Stewart í
samtali við vefinn
og bætti því við að
líklegast hefði það
verið Paul sem
hefði lagt fram
beiðni um skilnað
á grundvelli fyrr-
nefnda atriðisins.
„Það sem hefði verið auðveldast
fyrir Mills var að mótmæla ekki og
semja síðan um einhverja upp-
hæð,“ segir Stewart og bendir á að
aðeins eitt prósent af öllum 150
þúsund skilnuðum hafi endað með
„sigri“ andmælanda.
Skilnaðarlögunum í Bretlandi
var breytt fyrir sex árum en fram
að því var eiginmönnum einungis
skylt að greiða það sem talið var að
eiginkonan þyrfti til að lifa af og
því ljóst að barist verður um háar
fjárhæðir í réttarhöldunum sem
hefjast á næsta ári.
Fjölmiðlastormurinn í kring-
um Önnu Nicole Smith hefur
geisað linnulaust í tvo mán-
uði, eða frá því að sonur
hennar, Daniel Smith lést á
grunsamlegan hátt aðeins
þremur dögum eftir að
Önnu fæddist dóttir-
in DannieLynn.
Þeir Howard K.
Stern, núverandi
kærasti Önnu, og
Larry Birkhead,
fyrrverandi kærasti
hennar, segjast báðir
vera feður stúlkunn-
ar. Fráfall Daniels
hefur eins og gefur að
skilja tekið mjög á
Önnu Nicole, og hafa
aðstandendur fyrr-
verandi Playboy-
stúlkunnar áhyggjur
af heilsu hennar, en
hún gekkst undir aðgerð
vegna samanfallins lunga
fyrir skömmu og er nú komin
aftur á sjúkrahús vegna
lungnabólgu.
Óljóst faðerni DannieLynn
tekur líka sinn toll, en á
dögunum gaf kona að
nafni Laurie Payne sig
fram og sagðist hafa
orðið vitni að því þegar
Anna Nicole neytti eit-
urlyfja á meðgöngunni,
sömu lyfja og fundust í
líkama Daniels eftir dauða
hans. Draumar Önnu um að
hafa ein forræði yfir Dannie-
Lynn virðast því ekki munu
rætast.
Sökuð um dópneyslu á meðgöngu
NÝJASTI
SINGSTAR9.
HVE
R
VIN
NUR
!
Sendu SM
S BTC VS
F
á 1900 og
þú gætir
unnið!
Aðalvinn
ingur er:
PS2 + Sin
gstar Leg
ends
Vinninga
r eru:
Singstar,
aðrir leik
ir
DVD myn
dir og flei
ra
Vinningar verða
afhendir hjá BT Smáralind. Kópavogi.
Með því að taka þátt ertu kominn
í SMS klúbb. 149 kr/skeytið.