Fréttablaðið - 06.11.2006, Side 61
Shakira var drottning Latin
Grammy Awards, sem haldin var í
New York í gærkvöldi. Söngkon-
an, sem er ekki eingöngu dáð fyrir
fagra rödd sína heldur nýtur líka
mikillar athygli vegna framúr-
skarandi fagurlaga mjaðma, hlaut
fjögur af þeim fimm Latin
Grammy-verðlaunum sem hún
var tilnefnd til. Þar á meðal voru
verðlaun fyrir bestu plötu og besta
lag ársins, en þetta er í fyrsta
skipti sem söngkona hefur unnið
einhver af þremur helstu verð-
launum Latin Grammy Awards.
Shakira sóp-
aði að sér
verðlaunum
Söngvarinn og tískufrömuðurinn
P Diddy hefur áhuga á að leika
James Bond einhvern tímann.
„Dag einn mun tími koma fyrir
þeldökkan Bond og vonandi mun
ég koma til greina í hlutverkið,“
sagði Diddy. „Það er gamall
draumur minn að fara með svona
hlutverk.“
Diddy er engu að síður ánægð-
ur með hinn nýja Bond. „Hann er
frábær leikari og ég held að þeir
hafi valið hárréttan mann.“ Diddy
hefur lítið leikið í gegnum tíðina.
Þekktastur er hann fyrir hlutverk
manns á dauðadeild í myndinni
Monster´s Ball.
P Diddy vill
leika Bond
Þótt það þyki eftirsóknarvert að
vera magur í borg draumanna
hefur það ýmsa fylgikvilla í för
með sér eins og allir vita. Nicole
Richie lagðist inn vegna fjaður-
vigtar fyrir skemmstu og nú hefur
Milla Jovovich greint frá því að
henni gangi illa að verða ólétt
vegna þyngdar sinnar. Milla segist
vera að gera allt rétt, fyrir utan að
borða nógu mikið. Hún segist því
verða að taka sér
ársfrí, setjast
niður, horfa á
kvikmyndir og
borða óhollan
mat, þá hafi
hún fulla trú á
að þungun
verði að veru-
leika.
Of létt fyrir
þungun
Óskarsverðlaunaleikkonan
Nicole Kidman hefur hætt við að
taka þátt í kynningu nýjustu
myndar sinnar, Fur On Sunday.
Kidman ætlaði að mæta á
frumsýningu myndarinnar í New
York á dögunum en ákvað þess í
stað að eyða tíma með eigin-
manni sínum, sveitatónlistar-
manninum Keith Urban, sem er í
meðferð í Nashville vegna
drykkju- og eiturlyfjavandamála
sinna.
Urban skráði sig í meðferð og
gaf fljótlega út yfirlýsingu þar
sem hann baðst afsökunar á
framferði sínu. „Mér þykir það
afar leitt að ég hafi valdið Nicole
og þeim sem elska mig og styðja
vonbrigðum. Maður má aldrei
sofna á verðinum þegar menn
eru að jafna sig á vímuefna-
vandamálum en ég gerði það,“
sagði hann. „Með þeim stuðningi
sem ég hef frá eiginkonu minni,
fjölskyldu og vinum, er ég viss
um að ég kemst yfir þetta.“
Talið er að Urban hafi farið í
meðferð vegna klásúlu í hjóna-
bandssáttmála sem Tom Cruise,
fyrrum eiginmaður Kidman,
krafðist að yrði höfð með. Þar
stóð að ef hann yrði háður vímu-
efnum á nýjan leik yrði hann að
fara í meðferð. Gerði Cruise
þetta til verndar börnum þeirra
tveggja sem þau ættleiddu á
sínum tíma. Hafa börnin verið
mikið hjá Cruise og kærustu
hans, Katie Holmes, að undan-
förnu vegna vandamálanna hjá
Kidman og Urban.
Kidman hættir við kynningu
fullkomnasta svefnkerfiðStuðningur sem þú treystir, þægindi sem þú elskar
Einkaleyfin 4 frá Sealy:
15%afsláttur