Fréttablaðið - 23.12.2006, Blaðsíða 10
Ef flutningaskipið Wil-
son Muuga hefur staðið af sér
vonskuveðrið, sem spáð var í
Sandgerði í nótt, eru meiri líkur
en minni til þess að það standi um
hríð í fjörunni þar sem straumur
fer minnkandi næstu daga. Davíð
Egilsson, forstjóri Umhverfis-
stofnunar, sagði í gærkvöld að í
dag yrði kannað hvernig skipinu
hefði reitt af eftir nóttina.
Tekin var ákvörðun hjá
Umhverfisstofnun í gær um að
draga úr aðgerðum á strandstað
þar til veður yrði skaplegra og
unnt að vinna samfellt í tíu tíma á
dag við að undirbúa dælingu og
annan eins tíma við að koma olí-
unni í land. Virkur vinnutími upp á
þrjá til fjóra tíma um borð dygði
of skammt.
Davíð segir að um leið og veður
lagist verði farið í að undirbúa
dælingu. Björgunarmenn verði að
geta ferðast á léttabát milli skips
og lands. Það gerist um leið og
flæði.
Fjórir starfsmenn Olíudreif-
ingar voru um borð í þrjá tíma í
gær og þyrlan flutti viðbótarbún-
að um borð. Skipið virðist traust
og hefur lítið hreyfst í fjörunni
þrátt fyrir vont veður og slæmt
sjólag. „Það eru mjög góðar fréttir
því að það gefur okkur svigrúm til
aðgerða,“ segir Dadvíð.
Engar breytingar hafa sést á
skrokk skipsins. Sjór ásamt svart-
olíu er í óþekktu magni í botntönk-
um en dísilolíutankur og síðutank-
ar virðast heilir. Könnunarflug
með ströndinni í gær sýndi 200
metra langa olíubrák frá skipinu.
„Þetta er hverfandi magn og
talið vera smurolía undan vélinni
en olíuflekkirnir sem sáust í fyrra-
dag voru horfnir í gær,“ segir
Davíð, „olíulekinn virðist lítill og
brimið sér um að dreifa olíunni.“
Veður hefur verið einstaklega
vont á strandstað, sjólag slæmt og
stuttur birtutími. Aðstæður eru
afar erfiðar, einkum vegna þess að
flytja þarf menn út í skipið með
þyrlunni. Ekki er hægt að koma
fyrir nauðsynlegum búnaði til að
dæla olíunni í land nema veður sé
skaplegt í minnst tíu tíma á dag.
Í kvöld og nótt var spáð vonsku-
veðri og hvassviðri og rigningu
með slæmu skyggni fram á annan
í jólum, þegar veður verður skap-
legra áður en það versnar á ný.
Vont veður og sjávarfallastraum-
ur fara saman næstu daga og gera
björgunaraðgerðir erfiðari um
jólahátíðina.
Komi til þess að olíuleki aukist
skyndilega verði undirbúningur
hafinn til að bregðast við því.
Dregið úr að-
gerðum í dag
Umhverfisstofnun ætlar að draga úr aðgerðum í
Hvalsnesfjöru þar til hægt verður að vinna samfellt
í minnst tíu tíma á dag við að dæla olíu úr skipinu.
Breskir fjöl-
miðlar og stjórnmálamenn
kalla nú eftir því að
íslömskum konum verði
alltaf gert að sýna andlit
sín þegar þær fara í gegn-
um öryggisgæslu á flug-
völlum.
Ástæðan er sú að
breska lögreglan óttast að
karlmaður sem myrti
lögreglukonuna Sharon
Beshenivsky, hafi flúið
land í fyrra íklæddur
hefðbundinni andlitsblæju
og kufli múslimakvenna. Talið er að Mustafa Jamma sé nú í Sómalíu,
heimalandi sínu.
Við komuna til Bretlands eru konur oftast beðnar um að lyfta
blæjunni, en ekki við för úr landi.
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Þú getur enn tekið þátt í söfnuninni. Viðskiptavinir Sparisjóðsins
þurfa ekki að greiða neitt, bara velja félag til að styrkja, og
Sparisjóðurinn leggur þá fram 1.000 kr. til félagsins. Farðu inn á
spar.is eða komdu í heimsókn og veldu félagið sem fær þinn styrk.
Söfnun til styrktar samtökum sem vinna að úrbótum
í geðheilbrigðismálum lýkur á aðfangadag
Þú getur enn
gefiðgeðveikt