Fréttablaðið - 23.12.2006, Blaðsíða 57
Skemmtileg og vel lyktandi gjafavara
fyrir fólk sem elskar að fara í bað.
Hjá eðalfyrirtækinu L‘Occitane er nú fáan-
legur kassi með góðum baðvörum fyrir
konur og karla. Vörurnar eru með mildum
og góðum appelsínukeim og umbúðirnar
eru skemmtilega gam-
aldags en sígildar í
senn. Kassinn inniheld-
ur ferskan appelsínu-
ilm, sturtusápu, húð-
krem og sykur-skrúbb
sem er samsettur úr
grófum sykri, möndlu
og apríkósuolíum.
Eitthvað sem á eflaust
eftir að gleðja þau sem
elska að baða sig og
finna góða lykt.
L‘Occitane með appelsínuilmi
Marc Jacobs hefur tilkynnt
hver verður andlit vorlínunnar
2007.
Greint hefur verið frá því hver
verður nýjasta andlit Marc Jaobs
og fellur það í skaut barnastjörn-
unnar Dakotu Fanning,
sem hefur gert það gott
með leik í kvikmyndum á
borð við Man on Fire
(2004), War of the Worlds
(2005) og I am Sam
(2001).
Tökum á auglýsingum
við herferð Marc Jacobs
lauk nýverið í Los Angel-
es, en þar var tískuljós-
myndarinn heimsþekkti
Juergen Teller við stjórn-
völinn. Hefur Juergen meðal ann-
ars átt í samstarfi við fyrirsætuna
Kate Moss og Yves Saint Laurent
og er talinn hafa haft töluverð
áhrif á tískuheiminn.
Þess má geta að sérsauma varð
öll fötin sem Fanning klæddist í
nýju auglýsingunum,
vegna þess hversu lítil
og fíngerð leikkonan
knáa er, enda ekki
nema tólf ára þótt hún
hafi náð að skipa sér á
bekk með skærustu
stjörnum Hollywood.
Fanning situr fyrir
Advanced night repair protect-
ive recovery complex eða ANR
eins og það er nefnt í daglegu
tali er án efa krúndjásn Estée
Lauder snyrtivörufyrirtækisins.
ANR droparnir innihalda meðal
annars serum sem Estée Lauder
sérhannaði fyrir dropana á sínum
tíma. ANR vinnur djúpt i nn í húð-
ina yfir nótt og sér til þess að gefa
góðan raka, hressir þreytta húð og
vinnur gegn línum og roða.
Droparnir eru framleiddir eftir
sömu uppskrift síðastliðin 23 ár og
það stendur alls ekki til að breyta
henni, enda 3681 konur sem kaupa
ANR á degi hverjum.
Undradropar
fyrir húðina