Fréttablaðið - 23.12.2006, Blaðsíða 43
BMW hefur fest kaup á vöru-
merki og tækniþekkingu John
Cooper Works. Þetta er gert til
að styrkja MINI merkið.
Fæstum sem til þekkja koma
kaupin á óvart, en BMW og Coop-
er hafa unnið náið saman síðan
BMW eignaðist MINI.
Cooper gerir það sama fyrir
Mini og ///M gerir fyrir BMW. Það
er góðan bíl betri, miklu betri.
Þess vegna er mikilvægt fyrir
BMW að eignast fyrirtækið, þó
svo að samstarfið hafi verið orðið
svo náið að um formsatriði hafi
verið að ræða.
Næsta kynslóð MINI Cooper
verður því BMW væddari en áður
og munu fingraför Þjóðverjanna
vera vel sýnileg. Þar með er eitt
síðasta og um leið sterkasta vígi
breskrar bílaframleiðslu endan-
lega fallið.
BMW kaupir Cooper
Suðurafríska bílablaðið
Wheels24 stóð fyrir könnun á
netinu á því hvaða bílar þættu
karlmannlegastir, hommaleg-
astir og með fallegasta aftur-
endann.
Úrslitin urðu nokkuð óvænt, bæði í
flokki karlmannlegra bíla og
þeirra sem þykja hæfa samkyn-
hneigðum. Það er ljóst að suðuraf-
rískir bílaáhugamenn líta bíla ekki
sömu augum og við á norðurhjara
veraldar. Karlmannlegasti bíllinn
var valinn Audi RS4, en Audi hefur
hingað til þótt frekar tæpur hvað
varðar töffheit. TT slapp reyndar
lengi vel en svo sá ofurkvendið
Thandie Newton um að gera hann
að konubíl í Mission Impossible
II.
Í öðru sæti yfir karlmannleg-
ustu bílana varð Toyota Fortuner.
Dodge Caliber kom í þriðja sæti en
miklu púðri hefur verið eytt í að
auglýsa hann sem testósterón bíl.
Sigurvegari í flokki hommaleg-
ustu bílanna var Peugeot 207. Af
hverju Suður-Afríkubúum finnst
hann hommalegastur er ekki ljóst,
og ekki heldur hvað þeim finnst
gera bíl hommalegan. Í öðru sæti
var BMW 3-línan coupe, og Jaguar
XK kom þar á eftir.
Flottasta afturendann á Alfa
Brera en fast á stuðara hans kom
BMW Z4 Coupé. Þriðja sætið
vermdi svo Opel Astra GTC en
athygli vekur að Renault Megan
Scenic er hvergi á listanum.
Fallegasti afturend-
inn á Alfa Brera
Mosler er þekkt merki í heimi
kappaksturs. Þeir hafa nú búið
til sinn fyrsta götubíl.
Og hvílíkur götubíll. Mosler
MT900 S er með 435 hestafla vél
sem skilar honum upp í hundrað
kílómetra hraða á heilum 3 sek-
úndum og tíu sekúndubrotum
betur.
Fyrsti bíllinn verður afhentur á
næstu dögum en það er stjörnu-
stríðsgoðið George Lucas sem
verður eigandi þess. Bíllinn ber
framleiðslunúmerið 003, en 001 og
002 voru notaðir til rannsókna og
betrumbóta á braut Mosler.
Bíllinn er örlítið breyttur eftir
séróskum Lucasar en búið er að
fjarlægja vindskeið (auðvitað vill
hann heldur líta vel út en halda sér
á veginum). Bíllinn er svartur og
sagan segir að búið sé að bæta við
tengi aftan við vélina fyrir R2D2,
en sú fullyrðing er ekki seld dýr-
ari en hún var keypt.
Svo er spurning hvort Daniel
Craig vilji ekki fá bíl með fram-
leiðslunúmerinu 007?
George Lucas fær
fyrsta Moslerinn
Audi frumsýndi nýja Audi TT
Roadster 2008 á dögunum.
Tímasetningin hefði vart getað
verið betri. Veturinn í ár er sá
hlýjasti í Evrópu í manna minnum
og hvern langar ekki að bruna um
frönsku Rivíeruna með blæjuna
niðri og jólamúsík í græjunum?
TT verður fáanlegur í tveimur
útgáfum. Annars vegar framhjóla-
drifinn með 2,0 lítra 200 hestafla
vél, og hins vegar fjórhjóladrifinn
með 3,2 lítra 250 hestafla vél. Í
báðum útgáfum verður boðið upp
á S-tronic skiptingu sem áður hét
DSG, og er ein albesta sjálfskipt-
ing sem hægt er að fá.
Audi valdi að hafa blæjuna
mjúka í stað samanbrjótanlegs
þaks. Þetta var gert til þess að
spara pláss og ekki síður til að
halda bílnum léttum. Engin van-
þörf á því enda TT orðinn ungling-
ur og hefur vaxið í stærð í sam-
ræmi við það. Hann er sömuleiðis
orðinn öruggari en búið er að
styrkja álgrindina og bæta við
loftpúðum.
TT Roadster verður ekki ódýr
bíll. Í Bandaríkjunum er áætlað að
framhjóladrifni bíllinn muni kosta
2,6 milljónir og óhætt er að bæta
nokkrum hundrað þúsund köllum á
hann áður en hann kemst hingað til
lands. Fjórhjóladrifna útgáfan mun
kosta um 3,2 milljónir úti.
Önnur
kynslóð TT