Fréttablaðið - 23.12.2006, Blaðsíða 41
Smáauglýsingasími
550 5000
Auglýsingasími Allt
550 5880
Þú getur pantað
smáauglýsingar á visir.is
Sennilega trúa ekki margir því
að hægt sé að reka verslun
eingöngu með jólaskraut. Sig-
ríður María Birgisdóttir, annar
eigenda Jólahússins við Skóla-
vörðustíg, er sjálfsagt á allt öðru
máli.
„Það er alveg troðfullt út úr dyrum
alla daga, allan ársins hring. Á
sumrin eru það náttúrlega mest
megnis ferðamenn sem koma og
þeir standa fyrir utan og bíða eftir
að við opnum á morgnana.“ Þó að
sumarviðskiptin séu mest við
ferðamenn í leit að fallegu íslensku
jólaskrauti er þó farið að færast í
aukana að Íslendingar komi í leit
að skrauti yfir sumartímann. „Við
erum með helling af dóti hérna
sem hefur söfnunargildi, fólk er
að safna að sér settum og kemur
allt árið til að kaupa sér hluti sem
vantar inn í, desember notar fólk
nú oftast til þess að kaupa handa
öðrum. Jólasveinarnir eru vinsæl-
ir í söfnun og fólk talar um að
kaupa einn á ári, maður verður nú
kominn á ellilífeyri þegar það
verður komið. Þetta eru nú þrett-
án sveinar, Grýla, Leppalúði og
kötturinn þannig að ef byrjað er í
ár má reikna sextán ár í þetta.“
Samkvæmt Sigríði eru þó sumir
sem taka styttri tíma í að safna
öllum sveinunum því nokkrir fast-
ir viðskiptavinir séu eiginlega í
áskrift hjá búðinni, byrja að kaupa
í janúar og koma svo einu sinni í
mánuði til að bæta í safnið.
Vöruúrvalið í Jólahúsinu er
veglegt og þar er hægt að fá jóla-
skraut frá ýmsum löndum allt frá
Danmörku til Kanada. Íslenskt
handverk er einnig í hávegum haft
í versluninni, og það selst, að sögn
Sigríðar, mjög vel allt árið. „Það
hefur breyst mikið með Íslending-
ana að hér fyrir nokkrum árum
þótti ekki fínt að kaupa mikið
íslenskt en nú leggur fólk miklu
meira upp úr því að eiga fallegt
íslenskt handverk.“
Heldur jólin allt árið um kring
TAKTU NÆSTA SKREF
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
1
5
1
2
8
ALLT A‹
100%
LÁNS
HLUTFALL
LÆGRI
VEXTIR
LÆGRA
LÁNTÖKUGJALD
TRYGGINGAR-
FÉLAG
ENGIN
SKILYR‹I UM
BÍLALÁN
Vi› lánum fyrir n‡jum og notu›um bílum á hagstæ›um kjörum án tillits til fless hvar flú tryggir bílinn e›a
hefur flín bankavi›skipti. Reikna›u láni› flitt á www.frjalsi.is, hringdu í síma 540 5000 eða sendu okkur
línu á frjalsi@frjalsi.is. Við viljum að þú komist sem lengst!