Fréttablaðið - 23.12.2006, Side 42
Fiat Grande Punto er sölu-
hæsti bíll Evrópu. Líklegast
vegna þess að hann er einstak-
lega þægilegur í allri umgengni
og akstri.
Flestir tengja nafn Fiat við hinn
ódauðlega Uno bíl þeirra. Litla
ódýra blikkdollu í þjónustu annað-
hvort skólafólks eða ömmu þeirra.
Svoleiðis var Fiat lengi vel. Eitt
sinn ítalskur risi sem framleiddi
bíla sem litu svo sem ágætlega út,
en voru hræðilegir þegar kom að
viðhaldi og rekstri. Slíkt er ekki
vænlegt til árangurs og þetta átt-
uðu Fiatmenn sig á og tóku sig
saman í andlitinu. Gæðamálin
voru tekin í gegn og á síðustu
árum hefur þessi yfirhalning verið
að skila sér margfalt.
Fiat Grande Punto er orðinn
söluhæsti bíll í Evrópu enda um
vel heppnaðan bíl að ræða. Engum
dylst að Ítalir gera fallega hluti og
er allt útlit, bæði innra og ytra,
afar stílhreint og snyrtilegt. Bak-
sýnisspeglarnir eru afar sportleg-
ir og fyrstu metrana í bílnum varð
maður að passa sig á að festast
ekki í því að kíkja stöðugt í hliðar-
speglana. Mælaborðið er aðgengi-
legt en Ítalirnir skutu aðeins yfir
markið með appelsínugula litnum
í mælaborðinu.
Þegar keyrt er af stað er það
fyrsta sem maður tekur eftir
hversu léttur bíllinn er í stýri. Það
gerir aksturinn einkar ánægjuleg-
an. Sé bíllinn hins vegar keyrður
mjög stíft kemur léttleikinn niður
á aksturseiginleikunum. Gírkass-
inn er sömuleiðis nettur og hann í
bland við létt stýrið gefur þá til-
finningu að maður sé á fisléttum
bíl. 1,4 lítra vél var í prufubíl og
þótt megi alltaf deila um hvað sé
nægt afl er hægt að segja með
góðri samvisku að hestöflin 77 séu
nóg fyrir þann akstur sem bílnum
er ætlaður.
Farþegarýmið aftur í og skott-
pláss er eftir stærð bílsins. Virkar
lítið og nett en er þegar á reynir
hæfilegt bílnum. Eitt er þó undar-
legt við skottið og það er hvernig
það er opnað. Það er gert með fjar-
stýringu eða innan úr bílnum. Það
er ekkert hald til að taka í það og
því þarf maður að taka um bríkina
á skotthurðinni til að draga hana
upp. Í slabbinu varð sú gjörð frek-
ar subbuleg.
Bíllinn hlaut 5 stjörnur í Euro-
NCAP árekstrarprófinu og ætti
því að vera nokkuð öruggur. Þar
að auki eru litlir gluggar framan
við hliðarspegla sem taka út blinda
hornið sem truflar oft.
Grande Punto fæst í nokkrum
útgáfum, ýmist þriggja eða fimm
dyra, með 1,2 eða 1,4 lítra bensín-
vél eða 1,3 eða 1,9 lítra dísil vél.
Síðastnefnda vélin er 130 hestöfl.
Grande Punto er afar þægileg-
ur bíll. Hann er enginn kappakst-
ursbíll en í sínum flokki ætti hann
að vera meðal þeirra fremstu í
kappakstrinum um hylli kaup-
enda.
Einstaklega þægilegur
Fiat Grande Punto
ÁSKRIFTARSÍMI 550 5060 | WWW.VISIR.IS
100 HUGMYNDIR FYRIR JÓLABÖRNIN
LAGT Á HÁTÍÐARBORÐIÐ
ÆVINTÝRIÐ Í ENGLABORG
JÓLABLAÐIÐ KOMIÐ ÚT!
MÁLUM BÆINN RAUÐAN