Fréttablaðið - 27.01.2007, Síða 10
Flestir sagnfræðingar
eru sammála um að þegar Japanir
hertóku borgina Nanking í Kína
árið 1937 hafi japanskir hermenn
drepið tugþúsundir óbreyttra
borgara þar í blóðbaði sem eitrað
hefur samskipti Japana og Kín-
verja æ síðan.
En nú hefur japanskur kvik-
myndagerðarmaður boðað að hann
sé að vinna að heimildamynd með
gerólíkum boðskap: að fjölda-
morðið hafi aldrei átt sér stað.
Myndin, sem bera mun titilinn
„Sannleikurinn um Nanking“ og til
stendur að frumsýna í ágúst, verð-
ur byggð á viðtölum við japanska
uppgjafarhermenn, samtíma-
myndefni og skjölum sem aðstand-
endur hennar segja að sanni að
frásagnir af hinum meintu fjölda-
morðum hafi aldrei verið annað en
kínverskur áróður.
„Þetta verður fyrsta tilraun
okkar til að leiðrétta söguna með
kvikmynd,“ sagði aðalhöfundur
myndarinnar, Satoru Mizushima,
á blaðamannafundi sem hann hélt
í Tókýó ásamt nokkrum þing- og
fræðimönnum af hægri væng jap-
anskra stjórnmála.
Blóðbaðið sagt vera áróður
Tæknifyrirtækið Sony
tilkynnti á dögunum útgáfudag
leikjatölvunnar Playstation 3 í
Evrópu. Hún kemur út hinn 23.
mars og mun kosta 599 evrur eða
sem samsvarar um 53 þúsund
krónum. Þetta kemur fram á
fréttavef BBC.
Tölvan kom út í Bandaríkjun-
um og Japan í nóvember, en
vandamál við fjöldaframleiðslu
ollu því að útgáfu hennar í
Evrópu var seinkað. Nú sér fyrir
endann á þeirri bið Evrópubúa.
Forveri tölvunnar, Playstation
2, er vinsælasta leikjatölva í
heimi. Yfir hundrað milljónir
slíkra tölva hafa verið seldar.
Playstation 3
kemur 23. mars
Afnám sextíu ára gamals
banns við því að refsa nemendum
í japönskum skólum er meðal þess
sem nefnd á vegum stjórnvalda
leggur til og BBC greinir frá á
fréttavef sínum.
Vaxandi áhyggjur eru í Japan
af einelti meðal nemenda, sem er
talið vera orsök fjórtán af fjörutíu
sjálfsvígum ungmenna á árunum
1999 til 2005. Nefndin hvetur skóla
til að refsa nemendum sem stunda
einelti. Síðan árið 1947 hafa refs-
ingar í japönskum skólum verið
bannaðar, hvort sem er að láta
nemendur standa frammi á gangi
eða að leggja á þá hendur.
Japanskir skólar
megi refsa á ný
Tekjur finnska
farsímaframleiðandans Nokia
árið 2006 voru hærri en tekjur
finnska ríkisins. Þetta kom fram
á fréttavef Bloombergs í gær.
Sölutekjur Nokia á síðasta ári
voru 41,1 milljarður evra eða um
3.700 milljarðar íslenskra króna
en tekjur finnska ríkisins voru
39,6 milljarðar evra, eða um 3.567
milljarðar.
Nokia birti í gær tölur yfir
tekjur fyrirtækisins á síðasta
fjórðungi ársins 2006, sem voru
meiri en væntingar fjárfesta, og
hækkuðu hlutabréf í fyrirtækinu
um fimm prósent í kjölfarið.
Hærri en tekjur
finnska ríkisins
Menningarsjóður
Glitnis, Hafnarborg og Byggða-
safn Hafnarfjarðar undirrituðu í
gær samstarfssamning sem felur
í sér að boðinn verður ókeypis
aðgangur að sýningum í Hafnar-
borg og Byggðasafni Hafnar-
fjarðar á þessu ári.
Auk þess að auðvelda almenn-
ingi að njóta þess sem söfnin hafa
upp á að bjóða verður stuðlað að
auknu samstarfi safnanna og
skóla í Hafnarfirði.
Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri í
Hafnarfirði, undirritaði samning-
inn fyrir hönd Hafnarborgar og
Byggðasafns Hafnarfjarðar og
Einar Sveinsson, stjórnarformað-
ur Glitnis, fyrir hönd bankans.
Landsbankinn styrkir Lista-
safn Reykjavíkur með svipuðum
hætti svo gestir þurfa ekki að
greiða aðgangseyri.
Menning efld
með samstarfi
MINNEAPOLIS
– ST. PAUL
ORLANDO BOSTON
HALIFAX
GLASGOW
LONDON
STOKKHÓLMUR
HELSINKI
KAUPMANNAHÖFN
OSLÓ
BERLÍN
FRANKFURT
MÜNCHEN
MÍLANÓ
AMSTERDAM
BARCELONA
MANCHESTER
PARÍS
NEW YORK
BALTIMORE –
WASHINGTON
REYKJAVÍK
ÍSLAND BERGEN
GAUTABORG
STYRKIR VERÐA VEITTIR TIL BARNA Á ALDRINUM 6-16 ÁRA
Ferðasjóður Vildarbarna er sameiginlegt átak Icelandair og
viðskiptavina félagsins til að gera langveikum börnum og fjölskyldum
þeirra, og börnum sem búa við sérstakar aðstæður vegna veikinda,
kleift að ferðast. Ferðasjóður Vildarbarna hefur gert yfir 100 börnum
og fjölskyldum þeirra kleift að fara í ógleymanlega og uppbyggjandi
fjölskylduferð. Landsbankinn annast fjárhald sjóðsins.
Verndari Vildarbarna er Vigdís Finnbogadóttir.
Umsóknarfresturinn er til 1. mars 2007.
Úthlutað verður úr sjóðnum sumardaginn fyrsta 19. apríl 2007.
+ Umsóknareyðublöð eru á www.vildarborn.is
UMSÓKNIR UM FERÐASTYRKI
VILDARBARNA ICELANDAIR
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
I
C
E
3
58
99
0
1
/0
7
Árni Mathiesen fjármálaráð-
herra hafnar því að ríkið hafi gengið of har-
kalega fram í kröfugerð sinni um þjóðlendur.
Hann segir að sönnunarbyrðin um réttmæti
krafnanna sé hjá óbyggðanefnd og dómstól-
um en ekki hjá ríkinu. „Krafa ríkisins er ein-
ungis rannsóknarkrafa, hún er ekki endan-
leg.“
Aðferðafræðin í kröfugerðarlýsingum
ríkisins hefur verið gagnrýnd síðustu daga.
Björgvin G. Sigurðsson, þingmaður Samfylk-
ingarinnar, og Jón Kristjánsson, þingmaður
Framsóknarflokksins, héldu því fram á
Alþingi á fimmtudaginn að þjóðlendukröfur
ríkisins væru of miklar. Hæstaréttarlög-
mennirnir Ragnar Aðalsteinsson og Ólafur
Björnsson, sem eru lögmenn landeigenda,
hafa haldið því fram það sé ríkisins að rök-
styðja eignarrétt sinn á tilteknum jörðum
með gögnum þegar það setji kröfurnar fram.
Landssamtök landeigenda samþykktu yfir-
lýsingu á stofnfundi sínum á fimmtudaginn
þar sem þess var krafist að þjóðlendulögun-
um yrði breytt þannig að ríkisvaldið gerði
ekki kröfur um að jarðir með athugasemda-
lausum þinglýstum landamerkjabréfum yrðu
gerðar að þjóðlendum.
Árni segir að þjóðlendulögunum verði ekki
breytt, en að hann hafi boðað breytingar á
kröfugerðarlýsingunum til að koma til móts
við þá gagnrýni sem sett hafi verið fram. „Ég
leitast við að gera breytingar á verklaginu
þannig að ríkið setji ekki fram kröfur fyrr en
rannsókn óbyggðanefndar hefur hafist og þar
af leiðandi muni þinglýsingarnar ekki hvíla á
jörðunum eins lengi. Með þessu verður minna
um þinglýsingar á óvissum kröfum,“ segir
Árni og bætir því við að kröfurnar verði betur
rökstuddar á þennan hátt. Hann segist vilja
forðast að íþyngja landeigendum að óþörfu.
Guðný Sverrisdóttir, formaður Landssam-
taka landeigenda, segir að stjórn samtakanna
muni funda með fjármálaráðherra í næstu
viku og krefjast þess að þjóðlendulögunum
verði breytt.
Segir kröfur ríkisins ekki harkalegar