Fréttablaðið - 27.01.2007, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 27.01.2007, Blaðsíða 24
Við karlmennirnir í fjölskyldunni héldum þorrablót í kvöld í boði Eggerts á Þinghóls- brautinni. Við vorum býsna ánægðir með okkur og drjúgir yfir því að geta treyst fjölskyldu- böndin án þess að betri helmingarnar kæmu þar nærri. Það var glatt á hjalla og meira að segja stjarfir sviðakjammarnir brostu út að eyrum. Stjörnuspá dagsins: „Bogmaður- inn er sterkur einn síns liðs. Haltu þig frá nefnd- um og ákvarðana- ferli sem þær iðka. Samhljóða álit hópsins er of útvatnað fyrir þinn smekk.“ Þetta kalla ég almenni- lega stjörnu- spá. Og tel að fleiri en vér bogmenn hefðu gott af að fara spar- lega með nefnd- ir og fundi. „Samfylkingin mælist í 21,2% sem er hið minnsta í könnunum Frétta- blaðsins frá upphafi blaðsins árið 2001. Á sama tímapunkti fyrir síðustu kosn- ingar var Samfylkingin með tæp 40% í könnunum og þá stærst.“ Ég er í sjálfu sér ekki hissa á þessu nema hvað mér kemur það helst á óvart að hinn nýi formaður Samfylkingarinnar skuli enn geta státað af því að ná meira en 20% fylgi í skoðanakönnun. Landsleikur við Frakka. Ég er ekki góður í að horfa á handbolta. Í hálfleik þegar kominn var 10 marka munur fór ég frá tækinu vegna þess að ég hef tekið eftir því að þegar ég horfi á íslensk landslið keppa þá fer þeim oftast að ganga illa. Þess vegna ákvað ég að fórna mér. Þegar ég kom að sjónkanum aftur var enn tíu marka munur. Fjarvera mín hafði komið að góðu gagni! Enda unnum við leikinn, strákarnir og ég! En ekki var fyrr búið að flauta leikinn af en eitthvert bjartsýnis- tröll í sjón- varpinu fór að tala um að „við ættum að kom- ast alla leið...“ Málþóf- inu um Ríkisút- varpið var hætt. Þetta mál- þóf var misskilning- ur frá upphafi. Álíka gáfulegt og þegar Sverrir Her- mannsson flutti maraþ- onræður gegn því að afnema zetuna sem enginn sakn- aði. Ríkisútvarpið er ekki lengur menningarleg þungamiðja þjóðar- innar og þaðan af síður hefur Ríkisútvarpið eitthvert tilfinn- ingalegt gildi. Sú tíð er liðin. Ég væri þó til í að eiga gömlu gufuna áfram og fjármagna hana með tolli af auglýsingatekjum annarra fjölmiðla. Margir á förnum vegi eru að spjalla um sam- kvæmislíf ríka fólksins. Íslenskir pen- ingamenn hafa ekki átt svona skemmti- lega spretti síðan Ástþór kom fram á sjónarsviðið og breytti forseta- kosningunum í revíu. Í saman- burði við það er ekki mikið varið í ámátlegar tilraunir nýríkra bjálfa þess til að berast á með því að leigja skallapoppara eins og Duran Duran og Elton John til að koma fram í einkasamkvæmum. Þetta ætla menn að toppa á þorrablóti Spíritistafélags- ins í annað kvöld en þar verður þessi dagskrá: María Callas og Enrico Caruso syngja ástardúetta og Franz Liszt leikur undir á slag- hörpu. Síðan sýnir bandaríski galdra- maðurinn Houdini nokkur töfra- brögð. Listdanssýning: Sjöslæðudans- inn. Fröken Salóme Heród- esardóttir dansar. Spurningakeppni: Albert Einstein og Ari fróði takast á. Því næst flytur Mídas konung- ur hátíðarræðuna (á táknmáli vegna þess að hann er með slæmsku í hálsinum) og Jósep Göbbels túlkar fyrir hann. Veislustjóri verður Goðmund- ur á Glæsivöllum. Forn frægð Föníka, Karþagó-manna og Fíla-Hannibals kom að litlum notum! Strákarnir okkar og ég unnum Túnis-búa. Ég skil ekki af hverju ég er alveg að fara á taugum meðan á þessum leikjum stendur. Get ekki setið fyrir framan skerminn. Er sannfærður um að þá fari allt í vaskinn. Ráfa um húsið, kíki á sjónvarpið, læt mig hverfa, kalla svo og spyr hvernig staðan sé. Sennilega er þetta þjóðlegur æsingur manns sem frá blautu barnsbeini hefur séð þjóð sína fara halloka fyrir öðrum þjóðum. Borgari lítillar þjóðar finnur fyrir óumræðilegu stolti þegar litla þjóðin hans sannar að hún sé gjald- geng í hinum stóra heimi. Í kvöld byrjuðum við Krummi á frönsku-námskeiði. Lærimeistarinn heitir Jacques Melot, alveg frábær kennari, og við sátum þarna eins og bergnumin, Soffía, Elías, Finnbjörn, Frosti, Krummi og ég þegar hann fór yfir franska stafrófið, framburð þess og kenjar með okkur. Og þá kom í ljós að allt á sér sínar skýringar, meira að segja furðuleg- ar sérviskur eins og þakkomman circonflex „ˆ“ og cedille, litli krók- urinn niður úr c-inu í orðum eins og François. Verst að nú er heillar viku bið eftir næsta tíma. Þetta tungumálanám mitt stafar ekki af því að ég sé á leiðinni til Parísar að spjalla við dansmeyjar á Rauðu myllunni heldur af annarri ástæðu. Rétt eins og líkaminn þarf á hreyfingu að halda þarf heilinn að leysa einhver ný verkefni. Við- fangsefnin útvega ég honum sum- part með því að fara á námskeið. Skriðsund, myndvinnslu- og umbrotsforrit og þýska í fyrra. Franska í vetur. Gjarna vildi ég fara á fleiri námskeið en ég hef ekki meiri tíma. Út af námskeiðinu hafði ég lítinn tíma til að elda kvöldmatinn svo að ég hafði grænmetisbuff í matinn, en það keypti ég tilbúið úti í búð. Það gerði ekki mikla lukku hjá smá- fólkinu. Mér er óskiljanlegt hvaðan börn- um kemur sú umfangsmikla þekk- ing á næringarfræði sem er nauð- synleg til að geta staðfastlega forðast allt sem er hollt og ratað á ruslfæði í staðinn. Hvernig getur staðið á þessu? Reyndar tekst mér að véla ofan í þau alls konar grænmeti með því að setja það í matvinnsluvél eða hakka- vél og lauma því svo í fiskbollur eða ketbollur. Mér líður eins og eiturbyrlara af Borgia-ættinni þegar blessuð börn- in eru að háma í sig grænmeti af góðri lyst án þess að hafa hugmynd um að þau séu að innbyrða heilsu- samlegt fæði – og svo glotti ég við tönn þegar þau biðja um meira á diskinn. Af hverju hefur engum mat- vælaframleiðanda dottið í hug að framleiða hollar pylsur? Eða þjóna þeim stóra kúnnahópi sem kærir sig ekki um alls konar óhollustu í matvælum? Ljótum leik er lokið. Í dag kvað hæstiréttur upp sýknudóm í Baugsmálinu. Nei, reyndar er þessu dæmalausa einelti ekki endan- lega lokið því að ríkissaksóknari segir niðurstöðuna engin áhrif hafa á þá 18 ákæruliði sem héraðsdómur fjallar um í næsta mánuði. Ég veit ekkert um bókhaldið hjá Baugi fremur en öðrum stór- fyrirtækjum í landinu en hitt veit ég að svona umfangsmikil rann- sókn út af jafn óljósum sakargift- um á aðeins eitt fordæmi í réttar- sögu lýðveldisins og það fordæmi er svartasti bletturinn á íslenskri réttarsögu. Sakborningarnir í fyrra málinu voru vissulega bornir þyngri sökum og höfðu ekki aðgang að dýrustu lögfræðingum landsins til að verja sig – en offors og þrákelkni ákæruvaldsins er hið sama. Af hverju? Þrýstingur mynd- ast ekki af sjálf- um sér. Í Dagbók Þráins Bertelssonar er fjallað um ljótan leik og þá er ekki átt við handbolta. Ennfremur er minnst á brosmilda sviðakjamma, stjörnuspár, skoðanakönnun, útvarp og skemmtikrafta vikunnar á Íslandi: Maríu Callas, Enrico Caruso, Houdini og Albert Einstein. Ljótur leikur Kæra Dagbók Þráinn Bertelsson skrifar Morgunverður frá kl. 9:00 - 11:00 195,- Þú átt allt gott skilið! mánudaga - laugardaga verslun opnar kl. 10:00
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.