Fréttablaðið - 27.01.2007, Síða 40
Helgi Jón Jónsson keypti Traff-
ic-sendibíl og breytti honum í
húsbíl með litlum tilfærslum.
Það er ekki óþekkt að menn taki
stærri bíla og breyti þeim í hús-
bíla. Econoline, gömlu rúgbrauðin
og litlar rútur geta þannig endur-
nýjað lífdaga sína. Helgi Jón er
einn þeirra sem breytt hafa sendi-
bíl í húsbíl, en hann fór svolítið
aðra leið. „Ég keypti nýjan Ren-
ault Traffic-sendibíl og breytti
honum í húsbíl,“ segir Helgi Jón.
„Þetta var ekki flókin framkvæmd,
ég setti stóla í hann sem ég fékk úr
bíl sem hafði oltið og svo eru þetta
dýnur á gólfið og svoleiðis dótarí.“
Hægt er að fá Traffic í ýmsum
útfærslum og valdi Helgi Jón að
hafa glugga á hliðunum. „Þá verð-
ur hann mun bjartari og skemmti-
legri,“ segir Helgi Jón. „Eina
vandamálið var að þá sést auðveld-
lega inn en við leystum það á ein-
faldan hátt.“ Lausnin fólst í að
setja filmur í gluggana. „Valið stóð
á milli filmu og gardína. Gardínur
eru hins vegar sífellt flaxandi
þegar maður er á ferð svo ég valdi
filmur sem maður sér ekki inn um,
bara út,“ segir Helgi Jón.
Það var ekki þrautalaust að fá
skráningu og skoðun á bílinn eftir
að búið var að breyta honum. Svo
virðist vera sem mismunandi
reglugerðir stangist á, sumar segja
að þetta megi á meðan aðrar segja
þetta bannað. „Þeir neituðu að gefa
mér skoðun og settu á hann græn-
an miða, en ég var ekki sáttur við
það,“ segir Helgi Jón sem í góðu
samráði við skoðunaraðila fékk
loks skoðun með þeim skilyrðum
að bíllinn yrði skráður sem húsbíll.
„Þeir lofuðu mér að enginn auka-
kostnaður fylgdi því og það stóðst
hjá þeim.“
Helgi Jón á fleiri bíla en Traffic-
inn en vill sem minnst ræða um þá.
„Það er lítið að segja, ekki nema
um þann bíl sem ég held mest upp
á,“ segir Helgi Jón. „Það er Chevy
Nova árgerð 1978. Ég fékk hann
þegar búið var að keyra hann 1.200
kílómetra, en það var maður sem
vildi hagnast á verðbólgunni sem
flutti hann inn. Mig vantaði góðan
fjölskyldubíl og á þeim tíma voru
kostirnir ekki svo margir. Hann
hefur þjónað vel svo ég sé ekki
eftir kaupunum.“
Breytti sendibíl í húsbíl
Volvo hefur hannað hlaðbak
sem ætlað er að keppa við
minni lúxusbíla. Hann er sá
minnsti í Volvo-fjölskyldunni.
Brimborg frumsýnir í dag nýjan
fólksbíl frá Volvo milli 12 og 16 í
húskynnum sínum í Reykjavík
og á Akureyri. Bíllinn kallast
Volvo C30 SportsCoupe. Hann er
tveggja dyra, fjögurra manna
hlaðbakur (hatchback), en langt
er síðan Volvo setti slíkan bíl á
markað.
Sex mismunandi vélar standa
til boða í C30. Þær spanna allt frá
fjögurra strokka 100 hestafla vél
til fimm strokka díselvélar og
bensínvélar með forþjöppu sem
skilar 220 hestöflum.
Sem endranær er öryggi ofar-
lega í huga hönnuða Volvo. Meðal
staðalbúnaðar í C30 má nefna
bakhnykksvörn (WHIPS), hliðar-
vörn (SIPS) með loftpúðum og
loftpúðagardínum (IC). Einnig
verður hægt að fá Volvo C30 með
nýja BLIS-myndavélakerfinu,
sem lætur vita ef annað ökutæki
er í hinum svokallaða blinda
punkti til hliðar við bílinn.
Sölumarkmið Volvo á heims-
vísu gera ráð fyrir sextíu og
fimm þúsund eintökum á ári.
Búast forráðamenn Volvo við að
sjötíu og fimm prósent kaupenda
séu í Evrópu og stærstu markað-
irnir þar verði Ítalía, Þýskaland,
Spánn og Bretland. Bíllinn er
smíðaður í verksmiðjum Volvo
í Ghent í Belgíu.
Volvo C30 frum-
sýndur um helgina
Fyrir hálfri öld spáði bílaum-
boð því að menn ækju um á
fljúgandi bílum árið 2007.
Árið 1957 setti norskt bílaumboð
teikningu og lýsingu í helstu dag-
blöð landsins á því hvernig Volks-
wagen-bíllinn
kæmi til með
að verða hálfri
öld síðar. Nú
er sá tími
runninn upp
og ekki virðist
hafa ræst úr
spádómnum.
Á teikningu
umboðsins
sést fjöl-
skylda, karl,
kona og börn,
þeysast um á
fljúgandi bíl.
Karlinn
stjórnar öku-
tækinu með hugsanaflutningi, en
við annað eyra hans er áfastur
heilabylgjunemi sem sem miðlar
hugsunum hans í tölvu í bílnum. Á
meðan les konan blað og börnin
leika sér alveg áhyggjulaus.
Samkvæmt lýsingu umboðsins
átti bíllinn að vera búinn kjarn-
orkumótor og hjólum sem snúist
gátu í heilan hring. Sérstakur
skynjunarbúnaður í bifreiðinni
átti koma í veg fyrir að hún lenti
nokkurn tímann í árekstri og héldi
minnst 15 sentimetra fjarlægð frá
næsta bíl.
Bílastæðaskortur átti greini-
lega ekki að vera vandamál fyrir
eigendur framtíðarfólksbílsins,
þar sem bílaumboðið þóttist vita
að honum yrði hægt að leggja í
lausu lofti. 2,5 metrum fyrir ofan
jörðu.
Frá þessu er greint á vefsíðu
Félags íslenskra bifreiðaeigenda,
www.fib.is.
VW stýrt með
hugarorku
KERRUÖXLAR
Í ÚRVALI
og hlutir
til kerru-
smíða
Vagnhöfða 7
110 Reykjavík
Sími: 517 5000
Enginn veit hvað gæði eru fyrr en
reynt hefur Omega smurefnin !
Hamraberg ehf
Þverholti 2
270 Mosfellsbæ
S: 5667450
e-mail: magnusmv@simnet.is