Fréttablaðið - 27.01.2007, Síða 88
V
æntanleg er í bíó
kvikmyndin Factory
Girl sem fjallar um
ris og fall einnar
helstu súperstjörnu
Andy Warhol, Edie
Sedgwick. Myndin verður frum-
sýnd í Bandaríkjunum 2. febrúar
ef allt fer vel, en sjálfur texta-
boltinn Bob Dylan er búinn að fara
í mál við framleiðendur myndar-
innar. Einnig er gamli refurinn
Lou Reed búinn að lýsa henni sem
drasli og handritshöfundum sem
ólesandi hálfvitum. Af hverju, og
hver var þessi Edie? Sumum
fannst hún bara vera rík og snobb-
uð stúlka sem tók of mikið af
eiturlyfjum, En hún var þó músa
helstu listamanna þessa tíma –
Warhols og Dylans, villt og tryllt
ljóska sem skilgreindi útlit og óhóf
sjöunda áratugarins.
Edie Sedgwick fæddist í Santa
Barbara í Kaliforníu árið 1943.
Foreldrar hennar, sem voru efnaðir
og mótmælendatrúar, þjáðust af
alverlegum geðveilum og hafði
þeim verið ráðlagt af læknum að
eignast ekki börn þar sem geð-
veiki gengur í erfðir. Þau létu ekki
segjast og eignuðust átta börn og
var Edie næstyngst þeirra en öll
þjáðust þau á misstuttum ævum
sínum af geðkvillum. Edie barðist
við þunglyndi, kvíða og anorexíu
frá unga aldri, en hún ólst upp á
risavöxnum búgarði efnaðra for-
eldra sinna. Tvítug kynntist hún
Chuck Weiss, bóhem nokkrum og
kvennamanni, sem vildi ólmur
fara með hana til New York. Þar
hugðist hann kynna hana fyrir
Andy Warhol sem var þá orðinn
ein helsta fígúra listalífsins þar í
borg. Weiss var sannfærður um að
Warhol myndi gera hana fræga,
og haustið 1963 héldu þau til New
York og djömmuðu og dópuðu og
voru hress. Í janúar 1964 hittu
þau loks Andy Warhol í listasmiðju
hans, The Factory, og hann kolféll
fyrir hinni seiðmögnuðu Sedgwick
sem minnti hann á „fallegan
dreng“. Hann tók Edie upp á sína
arma og ljósmyndaði og kvik-
myndaði hana og gerði hana að
stjörnu eins og Wein hafði spáð
fyrir. Á þessum árum var Warhol
aðallega að gera kvikmyndir og
vildi meina að sá miðill væri mun
áhugaverðari en málaralist. Hann
gerði margar ódauðlegar myndir,
meðal annars „Sleep“, þar sem
fylgst er með manni sofa í heila
nótt, fyrirbæri sem svefnlausa,
amfetamín-dópaða Factory-geng-
inu fannst alveg magnað. Edie lék
í nokkrum myndum Warhols, þar
á meðal Kitchen og Poor Little
Rich Girl (eins og Warhol kallaði
Sedgwick). Einnig var Andy dug-
legur að fara með hana í teiti og
þótti hún afskaplega frumleg og
flott týpa. Edie klippti brúnu lokk-
ana sína stutta og litaði þá ljósa í
stíl við Warhol og eiturlyfjaneysla
hennar jókst til muna. Hún komst
tvisvar á síður bandaríska Vogue,
sem síðar fordæmdi hana fyrir
ólifnað. Síðar ánetjaðist hún
heróíni, sem hún á að hafa orðið
sér úti um hjá mótorhjólagengi
nokkru, og greitt fyrir með kyn-
lífi. Edie lagðist tvisvar inn á geð-
deild og fékk raflostsmeðferð og
er ljóst að hegðun hennar á manna-
mótum á þessu tímabili var afskap-
lega undarleg. „Hún var í eilífri
þoku og ótrúlega furðuleg. Hún
vissi alltaf hvað þú ætlaðir að
segja áður en þú sagðir það,“ eins
og bróðir hennar Jonathan lýsti
henni.
Kvikmyndin Factory girl einblínir
aðallega á samband Edie Sedg-
wick við hinn hvíthærða og
undarlega listamann Andy Warhol,
og tónlistarmanninn sem hún
kynntist stuttu síðar, Bob Dylan.
Warhol varð víst æfur þegar
Sedgwick yfirgaf The Factory og
bjó með vini Dylans, Bob
Neuwirth á Chelsea Hotel. Sam-
kvæmt mörgum var hún þó yfir
sig ástfangin af Dylan en engar
staðfestingar eru á að þau hafi
átti í kynferðislegu sambandi. Nú
eru bæði Edie Sedgwick og Andy
Warhol löngu látin, þannig að ekki
er hægt að heyra þeirra útgáfur,
en Bob Dylan er sprelllifandi og
er ekki hress. Samkvæmt mynd-
inni átti Dylan að hafa átt í ástar-
sambandi við Sedgwick, en hann
segir svo ekki hafa verið, eða alla-
vega muni hann ekki eftir því –
einkenni margra á þessum þoku-
kennda áratug. Samkvæmt
Dylanfræðingum samdi hann þó
nokkur lög um hana, þar á meðal
„Leopard-Skin Pill-Box Hat“.
Finnst honum sem myndin kenni
sér um sjálfsmorð Sedgwick en
hún lést eftir of stóran skammt af
svefnlyfjum árið 1971, 28 ára
gömul. Sienna Miller, sem leikur
Edie, er undrandi á viðbrögðum
Dylans. „Myndin kennir Andy
Warhol miklu frekar um sorgleg
örlög hennar“. Það þykir Lou
Reed ekki nógu gott heldur, þar
sem Andy er látinn og getur ekki
svarað fyrir sig. Sumsé er þó
almennt talið að Andy beri ábyrgð
á eiturlyfjanotkun hennar og
Dylan á að hafa valdið henni svo
mikilli ástarsorg – Edie uppgötv-
aði að hann var giftur og átti í
sambandi við aðra konu í viðbót –
að hún batt enda á líf sitt á þenn-
an tragíska hátt. Bíómyndin gefur
í það minnsta góða innsýn inn í
þetta skemmtilega og svala tíma-
bil í sögunni þar sem tónlist,
myndlist og tíska voru í fyrir-
rúmi. Ef til vill var Edie Sedg-
wick ekkert annað en partístelpa
en eins og henni var lýst af Roy
Lichtenstein, þá var hún, eins og
allir meðlimir The Factory, „ ...
Listaverk. Hún var hlutur, sterk-
lega skapaður hlutur.“
Áhugasamir um ævi og örlög
Edie Sedgwick geta gluggað í eftir-
farandi bækur: Girl on Fire, Up-
tight, The Velvet Underground
story, og nýju stóru Andy Warhol
bókina.
Þær fást í Eymundsson og Máli
og Menningu. Þið getið einnig horft
á myndina Ciao Manhattan þar
sem Edie leikur sjálfa sig.
Brothætta gyðjan
Edie Sedgwick – Stúlkan sem fyllti Warhol og Dylan innblæstri.
11. hve
r
vinnur
!
Sendu SMS BTC ABF
á númerið 1900 og þú
gætir unnið DVD myndina!
Vinningar eru Antbully á DVD, DVD myndir Og margt fleira
KemurÍ VERSLANIR25. janúar
Viltu
eintak?
Vin
nin
ga
rv
er
ða
af
he
nd
ir h
já
BT
Sm
ár
ali
nd
. K
óp
av
og
i. M
eð
þv
í a
ð t
ak
a þ
át
t e
rtu
ko
m
inn
í S
M
S k
lúb
b.
14
9 k
r/s
ke
yt
ið.