Fréttablaðið - 27.01.2007, Blaðsíða 94
Myrkir músíkdagar standa nú
sem hæst og hafa tónlistarunn-
endur nú úr mörgu að moða. Í dag
leika Þórunn Ósk Marínósdóttir
víóluleikari og Steinunn Birna
Ragnarsdóttir píanóleikari verk
eftir Þórð Magnússon, Kjartan
Ólafsson og Hafliða Hallgrímsson
í Listasafni Íslands en sömu verk
léku þær norður í Laugaborg í
Eyjafjarðarsveit fyrr í vikunni.
Píanóleikarinn Susanne Kessel
heldur tónleika í Salnum í Kópa-
vogi í kvöld og flytur þar íslenska
og þýska tónlist, á efnisskránni er
meðal annars nýtt verk eftir Atla
Heimi Sveinsson, verk eftir
Þorkel Sigurbjörnsson og Hauk
Tómasson. Susanne leikur einnig
verk eftir yngsta tónskáld Myrkra
músíkdaga þetta árið, Katharinu
Binder, sem er þrettán ára gömul.
Kessel mun síðan halda norður og
leikur hún í Laugaborg síðdegis á
morgun.
Á morgun geta menn fyrir sunn-
an flykkst í Salinn og heyrt dúett-
inn The Slide Show Secret, Kristján
Orra Sigurleifsson kontrabassa-
leikara og Evu Zöller harmonikku-
leikara frumflytja verk eftir Hauk
Tómasson sem sérstaklega er samið
fyrir dúettinn sem aukinheldur
flytur fimm önnur verk. Tónleik-
arnir hefjast kl. 14.
Um kvöldið heldur ítalski
píanóleikarinn Sebastiano Brusco
einnig tónleika í Salnum en í milli-
tíðinni geta gestir Myrkra músík-
daga skroppið út á Nes og hlýtt á
nýtt verk eftir Eirík Árna
Sigtryggsson, „Truflaðan tangó“, í
flutningi Blásarasveitar Reykja-
víkur í Seltjarnarneskirkju. Á
efnisskrá þeirra verður aukin-
heldur Konsert fyrir klarinettu og
blásarasveit eftir Tryggva M.
Baldvinsson, þar sem Helga Björg
Arnardóttir leikur einleik á klar-
inettu. Einnig verða flutt verkin
„Konstantin“ eftir Trónd Bogason
og „Köld sturta“ eftir Tryggva M.
Baldvinsson, en Tryggvi er stjórn-
andi Blásarasveitarinnar á tón-
leikunum.
Þess skal einnig getið að áður
auglýstir tónleikar Michaels Clarke
og Þórarins Stefánssonar fara
ekki fram í dag heldur næstkom-
andi þriðjudag en þá leika þeir
félagar verk úr Söngbók Garðars
Hólm eftir Gunnar Reyni Sveins-
son í Laugaborg.
Nánari upplýsingar um dag-
skrá Myrkra músíkdaga má finna
á heimasíðunni www.listir.is.
Kl. 13.00
Þórunn Hjartardóttir sýnir mál-
verk og ljósmyndir í Anima galleríi,
Ingólfsstræti 8, 101 Reykjavík.
Anima er opið þriðjudaga til laugar-
daga kl. 13-17, www.animagalleri.is.
Í tilefni af afmæli Mozarts
Pólitískt leikhús hefur lengi
verið bannorð í íslensku
samfélagi en á morgun
verður frumsýnt fyrsta
„millistjórnenda-dramað“
þar sem valdastrúktúr og
stefnumótun koma talsvert
við sögu.
Ekki er lát á frumsýningum í leik-
húsum á suðvesturhorninu, tvær
danssýningar og fimm leikverk eru
frumsýnd á örfáum dögum til
sunnudagskvölds frá miðvikudegi.
Aðeins eitt þessara verka er þýtt,
hin eru öll frumsmíðar yngri kyn-
slóða listamanna. Á sunnudags-
kvöld verður frumsýning á Litla
sviði Borgarleikhússins á nýju
verki sem Hið lifandi leikhús stend-
ur fyrir. Forgöngumaður þessa
hóps er Þorleifur Arnarsson.
Þorleifur er sonur þeirra Þór-
hildar Þorleifsdóttur og Arnars
Jónssonar og er annað barna
þeirra sem leggur fyrir sig störf í
leikhúsi. Hann stundaði nám við
leiklistardeild Listaháskólans og
stofnaði þennan hóp þegar eftir
útskrift. Setti hópurinn upp nokkr-
ar smærri sýningar, þeirra veiga-
mesta var American Diplomacy
sem fjallaði um mótun utanríkis-
stefnu. Þorleifur hefur starfað í
Finnlandi við sviðsetningar og er
nú í námi í leikstjórn í Þýska-
landi.
Nýja verkið heitir Eilíf
hamingja og var í kynningarefni
snemma á æfingaferlinu lýst sem
fyrsta íslenska millistjórnenda-
dramanu. Þorleifur fékk til liðs
við sig Andra Snæ Magnason rit-
höfund til að semja eða móta
ramma verksins og viðfangsefni.
Var síðan unnið með leikhópnum
við að móta persónur og fram-
vindu, bæta í og draga úr. Úr þeirri
bendu hugmynda og flækju
greiddu síðan höfundarnir og
komu saman handriti sem fór í
frekari úrvinnslu á lokatörn
æfingatímabilsins.
Þorleifur hefur lýst því yfir á
síðustu dögum að hann vilji sýna
pólitísk efni í gegnum persónuleg
örlög og ræðir opinskátt um til-
raunir sínar til að takast á við
pólitískt leikhús, sem hefur verið
bannorð í íslensku samfélagi lengi.
Þorleifur segir skilning okkar á
pólitík þröngan: „Pólitík liggur
ekki á einum stað í samfélaginu.
Hún dreifist víða og nú erum við
að sjá flutning á valdi frá almanna-
stofnunum, eins og Ríkisútvarp-
inu nýlega, yfir á einkaaðila. Við
völdum píramídastrúktur fyrir-
tækja sem eitt svið þar sem pólitík
er allsráðandi. Þar presentera
persónurnar hugmyndaheim sem
við vinnum síðan dramatískt úr.“
Höfundarnir stilla upp verk-
efni sem er sótt í valdastrúktúr
fyrirtækis. Heimilið er hætt að
vera vettvangur átaka um per-
sónuleg og samfélagsleg efni.
Úrslit hinna dramatísku átaka eru
á sviði vinnunnar, nánar tiltekið
hvernig er stjórnað og hverjir
stjórna. Þar segir frá fjórum
einstaklingum, þremur körlum og
konu, sem vinna saman í markaðs-
deild stórfyrirtækis á Íslandi. Þar
vinna þau að stefnumótun fyrir-
tækisins um leið og þau kljást við
stefnumótun síns eigin lífs. Þessa
einstaklinga leika þau Orri Hug-
inn Ágústsson, Sara Dögg Ásgeirs-
dóttir, Jóhannes Haukur Jóhann-
esson og Guðjón Þorsteinn
Pálmarsson.
Þorleifur vill meiri umræðu
um íslenskt leikhús. Hann segir
vanda okkar vera skort á sam-
komulagi um skilgreiningar: hér
sé allt lagt að jöfnu í umræðunni,
söngleikur og drama. Dramatískt
leikhús – „listrænt“ eins og það er
kallað – og skemmtileikhús á ekki
að leggja að jöfnu. Erindi þess er
annað og umfjöllun um það verður
að vera á ólíkum nótum og „pólit-
ískt leikhús hefur enn annað
erindi.“
Leikmyndahönnuður sýningar-
innar er Drífa Ármannsdóttir en
framkvæmdastjóri hópsins er
Greipur Gíslason. Eilíf hamingja
er samstarfsverkefni Leikfélags
Reykjavíkur og hópsins. Verður
verkið sýnt á Litla sviðinu meðan
aðsókn leyfir en í lok febrúar
heldur leikhópurinn til Berlínar
þar sem eitt af stærstu leikhúsum
borgarinnar, Maxim Gorkí leik-
húsið, hefur falast eftir sýning-
unni. Þegar hafa verið festar
tvær sýningar ytra en boðið kom
til fyrir meðmæli áhrifamanna
með hinum unga höfundi og leik-
stjóra.
Kaup á eilífri hamingju
Ríkuleg dagskrá
!
„Köld slóð er afbragðs
sakamálasaga sem hægt
er að mæla með”
JVJ / topp5.is
20% afsláttur ef greitt er með korti frá Kaupþingi
Sýnd í Smárabíói • Regnboganum • Borgarbíói Akureyri (síðustu sýningar)
Nýja Bíói Keflavík • Sauðárkróki • Ísafirði • Fjarðarbíói Eskifirði