Fréttablaðið - 27.01.2007, Síða 102
Alfreð Gíslason var
nokkuð brattur morguninn eftir
tapið gegn Póllandi er blaðamaður
Fréttablaðsins hitti á hann eftir
morgunmat á hóteli landsliðsins.
„Ég er enn aðeins að ergja mig á
tapinu og get ekki neitað því að það
var lítið sofið í nótt,“ sagði Alfreð
og brosti góðlátlega.
Hann gaf leikmönnum sínum
frí í gær og var meðal annars farið
í bæjarferð til Bielefeld en hótel
strákana er úti í sveit þar sem lítið
er að sjá. Þeir hlökkuðu til að kom-
ast aðeins á meðal fólks þar sem
hægt væri að kíkja í búðir sem og
á kaffihús.
„Það er gott fyrir strákana að
sleppa aðeins frá handboltanum
og svo kíkjum við á Pólverjaleik-
inn eftir kvöldmat. Við æfum svo
um morguninn og tökum einnig
vídeófund fyrir leik,“ sagði Alfreð
sem hefur ekki gleymt því að þrátt
fyrir þetta óþarfa tap gegn Pól-
verjum er enn góður möguleiki til
að gera góða hluti á HM.
„Það er hárrétt og við verðum
að vinna Slóvena. Það er ekkert
flóknara en það. Þjóðverjaleikur-
inn verður miklu þyngri fyrir
framan fulla Westfalen-höll af
áhorfendum og svo verða þeir
væntanlega að berjast fyrir lífi
sínu,“ sagði Alfreð en Slóvenar
litu mjög illa út gegn Frökkum er
þeir voru kjöldregnir, 33-19.
„Þeir voru skelfilegir í þessum
leik en ég held að þeir hafi fyrir-
fram álitið að þeir ættu ekki mikla
möguleika og fyrir vikið hafi
ákveðnir lykilmenn bara verið á
hálfum hraða. Mér fannst menn
eins og Rutenka hafa verið að
spara sig fyrir leikinn gegn okkur
en vonandi hef ég rangt fyrir
mér,“ sagði Alfreð, en hvað þarf
liðið að varast í leiknum?
„Við verðum að spila mun betri
leik en gegn Póllandi. Sérstaklega
þarf varnarleikurinn að verða
betri og við þurfum að hafa gætur
á Rutenka sem er mikil sleggja,“
sagði Alfreð en Siarhei Rutenka,
sem er liðsfélagi Ólafs Stefáns-
sonar hjá Ciudad Real, hefur áður
farið illa með íslenska liðið.
Alfreð Gíslason segir nauðsynlegt að klára leikinn í dag með sigri ætli liðið sér í
átta liða úrslit. Hann óttast að Slóvenar hafi verið að hvíla sig gegn Frökkum.
Í gær var dregið í
undankeppni EM 2008 sem fer
fram í Noregi eftir ár. Íslenska
landsliðið dróst á móti því
serbneska og mætast liðin í
tveimur leikjum í júní. Fyrri
leikurinn fer fram í Serbíu en sá
seinni á Íslandi.
Þetta verður í fyrsta sinn sem
við mætum Serbum án Svart-
fjallalands sem er nú með í fyrsta
sinn og spilar við Portúgal.
Goran Kovacevic, fulltrúi
Serba á drættinum var vonsvik-
inn með dráttinn. „Þetta var það
versta sem gat gerst. Íslendingar
eru með frábært lið og þeir eru
að sanna það nú á HM. Þeir spila
mjög hraðan handbolta og eru
erfiðir við að eiga,“ sagði
Kovacevic en Serbar eru nú að
einbeita sér að því að byggja upp
nýtt lið.
Frakkar (meistarar), Spánn,
Danmörk, Króatía, Þýskalandi og
Rússland (2. til 6. sæti á EM 2006)
og gestgjafar Noregs hafa þegar
tryggt sér sæti í lokakeppninni
sem fer fram 17. til 27. janúar
2008.
Svíþjóð mætir Rúmeníu en
liðið hefur misst af síðustu
tveimur stórmótum eftir að hafa
tapað sínum viðureignum í
undankeppninni. Fyrst gegn
Póllandi og svo Íslandi.
Ísland mætir
Serbíu í júní
Var fyrsti valkostur en er nú fjórði
Þjálfararnir Bárður
Eyþórsson og Andri Þór Kristins-
son fengu báðir eins leiks bann á
fundi aganefndar KKÍ á dögunum
en þeir voru báðir reknir af velli
vegna tveggja tæknivillna.
Bárður, sem þjálfar Fjölni í
Iceland Express deild karla, fékk
sinn brottrekstur í 90-102 tapi
sinna manna í Keflavík en Andri,
sem þjálfar lið Hamars í Iceland
Express deild kvenna, var rekinn
út í 50-56 tapi fyrir ÍS í Hvera-
gerði.
Andri Þór mun ekki stýra
Hamarsliðinu gegn Grindavík í
Lýsingarbikarnum á mánudaginn
og Bárður mun missa af leik
Fjölnis gegn KR en hann fer fram
föstudaginn 2. febrúar.
Tveir þjálfarar
dæmdir í bann
Sir Alex Ferguson,
knattspyrnustjóri Manchester
United, segir að portúgalski
vængmaðurinn Cristiano Ronaldo
sé ekki til sölu, sama hve hátt
tilboðið er. Ronaldo hefur verið
orðaður við spænska liðið Real
Madrid og sögusagnir í gangi um
að verðmiðinn á honum sé 35
milljónir punda.
„Við seljum þá leikmenn sem
við viljum selja og það er ekki
fræðilegur möguleiki á að
Cristiano Ronaldo fari,“ sagði
Ferguson.
Cristiano Ron-
aldo ekki til sölu
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
I
C
E
3
50
33
0
1/
07
Skráðu þig á www.ibliduogstridu.is
Þú getur sýnt stuðning þinn í verki með því að fara á
vefsíðuna ibliduogstridu.is og skrá þig í „Í blíðu og
stríðu“, stuðningssamtök handboltalandsliðsins fyrir
heimsmeistarakeppnina í Þýskalandi.
Á vefsíðunni mætast stuðningsmenn og landsliðsmenn,
þar birtast nýjustu fréttir, sýnd eru valin myndbrot úr
leikjum, allir blogga, spjalla, hvetja íslenska landsliðið og
birta myndir frá keppninni og af íslenskum stuðnings-
mönnum á leikjunum sem hafa staðið sig frábærlega.
STYÐJUM STRÁKANA Í BLÍÐU OG STRÍÐU