Fréttablaðið


Fréttablaðið - 27.01.2007, Qupperneq 104

Fréttablaðið - 27.01.2007, Qupperneq 104
 Það gekk mikið á eftir leik Íslands og Póllands á fimmtu- dag og mátti sjá Alfreð Gíslason og Bogdan Wenta, þjálfara Pól- lands, rífast heiftarlega á gólfinu. Það var ekki að ástæðulausu, að því er Alfreð tjáði Fréttablaðinu í gær. „Ég byrjaði að rífast við Jur- asik því hann sagði mér að Wenta hefði logið því á fundi fyrir leik- inn að ég hefði sagt ýmislegt miður gott um Pólverja og verið að hæðast að þeim, sem er náttúr- lega algjört kjaftæði. Wenta sagði strákunum að ég hefði sagt að þeir hefðu engan karakter og margt annað. Þetta voru lygar sem voru notaðar í þeim tilgangi að æsa liðið upp. Ég sagði Wenta mjög hreint út eftir leikinn að hann væri búinn að vera í mínum augum,“ sagði Alfreð en má Wenta þá ekki vænta þess að fá jólakort frá honum um næstu jól? „Hann er kominn á útfararlist- ann eftir þetta. Það er ýmsu beitt í þessu sporti en menn verða að virða ákveðnar reglur og þessi hegðun var langt út fyrir þær regl- ur,“ sagði Alfreð að lokum. Wenta sagði Alfreð hafa hæðst að Pólverjum Ísland á þrjá leikmenn meðal þeirra sex efstu á opinber- um lista mótsins yfir flest sköpuð mörk á fyrstu fimm leikdögum HM í handbolta í Þýskalandi. Þeir Ólafur Stefánsson (2. sæti), Logi Geirsson (4. sæti) og Guðjón Valur Sigurðsson (6. sæti) eru allir í hópi efstu manna en efstur er Tékkinn Filip Jicha sem jafnframt er annar markahæsti leikmaður mótsins til þessa. Það eru síðan Egyptinn Ahmed El Ahma og Grænlendingurinn Angutimmarik Kreutzmann sem komast í hóp þeirra sex efstu en þessi 18 ára grænlenska skytta er markahæsti maður mótsins með 43 mörk. Ólafur Stefánsson er efstur íslensku leikmannana en hann hefur nánast skorað jafnmörg mörk (25) og hann hefur lagt upp en Ólafur hefur átt 26 stoðsend- ingar í fyrstu fimm leikjum Íslands. Logi Geirsson sem skipar fjórða sætið á listanum er einnig að skora svipað mörg mörk (25) og hann er að búa til fyrir félaga sína en alls hefur Logi gefið 21 stoð- sendingu í fyrstu fimm leikjun- um. Ólafur Stefánsson hefur gefið flestar stoðsendingar allra á mót- inu og Logi Geirsson er þar í 3. sætinu. Á milli þeirra er Spánverj- inn Jose Maria Vaquero en hann hefur gefið einni stoðsendingu minna en Ólafur. Guðjón Valur er þriðji marka- hæsti leikmaðurinn á mótinu til þessa en næstu menn þar eru þeir Alexander Petersson (10. sæti) og síðan Ólafur og Logi sem eru jafn- ir í 20. sætinu. Þrír Íslendingar meðal sex marksæknustu Það er ekki hægt að kvarta yfir frammistöðu horna- manna íslenska liðsins á HM í Þýskalandi. Bæði þeir Guðjón Valur Sigurðsson og Alexander Petersson hafa átt mjög góða og jafna leiki, Guðjón Valur hefur skorað mun fleiri „erfið mörk“ en áður og Alex er alltaf flottastur þegar mest er undir. Þeir félagar eru áfram bestu hraðaupphlaups- menn íslenska liðsins en viðbótin er að báðir eru þeir að finna leiðir til að skora þegar mótherjarnir hafa náð að hægja á hröðum upp- hlaupum liðsins. Guðjón Valur Sigurðsson hefur oft verið gagnrýndur fyrir að skora ekki meira úr horninu en hann hefur heldur betur bætt úr því á HM í Þýskalandi. Guðjón Valur, sem er þriðji markahæsti leikmaður keppninnar, hefur skorað flest mörk allra utan af velli en aðeins 1 af 36 mörkum hans hefur komið af vítalínunni. Guðjón Valur hefur skorað 18 mörk úr hraðaupphlaupum, sem eru áfram hans sérsvið, en aukn- ingin á mörkum hans úr uppsett- um sóknum hefur verið mjög ánægjuleg. Þegar tölfræði Guðjóns Vals frá síðustu keppnum er skoðuð má sjá mjög jákvæða þróun. Guð- jón Valur bæði skorar fleiri mörk úr horninu sem og nýtir færin sín þar betur. Guðjón Valur hefur skorað alls 18 mörk úr vinstra horninu í fyrstu fimm leikjunum, 14 eftir uppsetta sókn og 4 til við- bótar eftir aðra bylgju í hraða- upphlaupum. Þetta gera 3,6 horn- mörk að meðaltali í leik, sem er rúmu marki meira en á EM í fyrra og tveimur mörkum meira en hann skoraði á síðasta heims- meistaramóti sem fram fór í Túnis 2005. Guðjón Valur hefur nýtt 78% skota sinna úr horninu sem er gríðarleg bæting frá því í Sviss fyrir ári þegar hann nýtti aðeins 47% skota sinna úr vinstra horn- inu. Hann nýtir skotin sín mun betur en á undanförnum mótum þrátt fyrir það að hann taki fleiri erfiðari skot úr þrengri færum. Guðjón Valur hefur nú í fyrsta sinn á stórmóti skorað yfir helm- ing marka sinna úr sinni stöðu. Hraðaupphlaupsmörkin hafa allt- af verið meginuppistaðan í hans markaskori en sú er ekki raunin á HM í Þýskalandi þar sem 51% marka hans hafa komið úr vinstra horninu. Þjónustan fyrir vinstra hornið skiptir miklu máli og Logi Geirs- son, sem þekkir það að spila í vinstra horninu, hefur hjálpað Guðjóni Vali mikið. Logi hefur alls gefið 12 stoðsendingar á Guð- jón Val niður í vinstra hornið, þar af átta þeirra í uppsettri sókn. Það hefur ekki alltaf verið raunin að íslenska liðið finni Guðjón því sem dæmi á Ólympíuleikunum í Aþenu 2004 og á HM í Túnis 2005 var það Ólafur Stefánsson sem átti flestar stoðsendingar niður í hornið á Guðjón Val. Guðjón Valur hefur sýnt þroskamerki á þessu móti, hann hefur tekið meiri ábyrgð, hann er meira áberandi í leikhléum og sem leiðtogi liðsins. Hluti af því að vera leiðtogi er að taka meira af skarið sem hann hefur gert með frábærum árangri. Það er ekki nóg með að Guðjón Valur sé besti hraðaupphlaupsmaður heims því hann er á góðri leið með að vera einn besti hornamaðurinn líka. Ísland er búið að skora flest mörk úr horni á HM í Þýskalandi, ekki síst vegna þess að vinstra hornið hefur skilað fjölmörgum mörkum í fyrstu fimm leikjunum. Frakkar hafa jafnað sig á tapinu gegn Íslendingum og liðið hefur unnið tvo fyrstu leiki sína í milliriðlinum með miklum yfirburðum. Pólverjar voru yfir gegn Frökkum í hálfleik, 12-11, en síðan þá hafa Frakkar unnið þrjá síðustu hálfleiki sína gegn Pólverjum og Slóvenum með 6 mörkum eða meira. Frakkar unnu seinni hálfleik- inn gegn Pólverjum 20-10, fyrri hálfleikinn gegn Slóvenum 18-10 og loks þann seinni 15-9. Marka- tala Frakka í þessum þremur frábæru hálfleikjum liðsins er 53- 29 eða 24 mörk í plús. Nikola Karabatic, sem átti skelfilegan leik gegn Íslendingum, hefur nýtt 11 af 15 skotum sínum í þessum tveimur leikjum. Frakkar búnir að jafna sig „Það er gott að fá frí í dag en það er enn erfitt og sárt að rifja upp það sem gerðist í gær. Það var erfitt að sofna því um leið og maður lagðist á koddann byrjaði maður að hugsa um leikinn á ný og varð þar af leiðandi pirraður,“ sagði horna- maðurinn frábæri Alexander Petersson í gærmorgun. „Við verðum samt að halda áfram ótrauðir. Frídagurinn er kærkominn og gott að geta gleymt öllu öðru og nýtt mót hefst fyrir okkur á morgun. Við eigum enn góða möguleika á að komast í átta lið úrslit,“ sagði Alex og brosti út í annað. Erfitt að sofna Brynjólfur Jónsson, læknir íslenska landsliðsins, sagðist hafa nokkrar áhyggjur af meiðslum þeirra Guðjóns Vals Sigurðssonar og Loga Geirssonar sem þeir urðu fyrir gegn Pólverj- um. Brynjólfur segir Guðjón, sem fékk slæmt högg á lærið, varla hafa getað gengið kvöldið eftir leikinn. Guðjón var betri þegar Fréttablaðið hitti á hann í gær en hann var í stífri meðferð allan daginn. Logi Geirsson fór upp til Lemgo þar sem hann fór í segulbylgjumeðferð hjá sama lækni og kom honum fljótt í stand er hann fór úr axlarlið. Logi sagðist staðráðinn í því að spila gegn Slóveníu. Læknirinn hefur áhyggjur
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.