Fréttablaðið - 31.01.2007, Side 8
MCSA
Aðalmarkmið MCSA námskeiðsins er að gera þátttakendur hæfa til
að starfa sem sérfræðingar og umsjónarfólk Microsoft netkerfa og
veita þeim jafnframt eftirsótta alþjóðlega vottun því til
staðfestingar.
Nám á þessari braut hentar því vel
þeim sem þurfa að styrkja stöðu
sína og samkeppnishæfni á
vinnumarkaði með aukinni
þekkingu, færni og alþjóðlegum
prófgráðum.
Námsbrautin samanstendur af námskeiðunum:
• Installing, Configuring, and Administering Microsoft Windows
XP Professional
• Managing and Maintaining a Microsoft Windows Server 2003
Environment
• Implementing, Managing, and Maintaining a Microsoft
Windows Server 2003 Network Infrastructure
• Implementing and Managing Microsoft Exchange Server 2003
Kennt er mánudaga og miðvikudaga kl 17.30 - 21.30 og að auki
síðasta laugardag (4X) í hverjum mán. kl. 9 -13
Kennsla hefst 5. feb og lýkur 18. júní. Lengd 60 std.
Verð kr. 266.000,- Allt kennsluefni og 4 próf innifalin.
Fengu vinnu meðan á námi stóð
„Mjög praktískt nám sem hefur margborgað sig fyrir mig.
Metnaðarfullt nám með frábærum kennara í skemmtilegum
hópi.“
Rúnar Páll Rúnarsson, kerfisfræðingur hjá Anza
„Nám sem stóð undir öllum mínum væntingum. Þetta nám
skapaði mér aukin tækifæri á vinnumarkaði og opnaði fyrir
mig leiðir í starf kerfisfræðings hjá stóru fyrirtæki.“
Teitur Hjaltason kerfisfræðingur hjá Þekkingu
MCDST
Kennsla hefst 20. feb. og lýkur 26. apríl.
Lengd 108 std. Verð kr. 137.900,-
Allt kennsluefni og 2 próf innifalin
Nánari upplýsingar á www.tsk.is
FAXAFEN 10
108 REYKJAVÍK
GLERÁRGATA 36
600 AKUREYRI
WWW.TSK.IS
SKOLI@TSK.IS
SÍMI: 544 2210
X
STR
E
A
M
D
E
S
IG
N
A
N
07 01 004
Fjörður • Hafnarfirði • 565 7100
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
Viðkvæmt vopnahlé á
milli stríðandi fylkinga Palestínu-
manna í Hamas-samtökunum og
Fatah-hreyfingunni tók gildi í
gærmorgun. Ismail Haniyeh, for-
sætisráðherra palestínsku heima-
stjórnarinnar og einn helsti leið-
togi Hamas, skoraði á alla
Palestínumenn að hindra að
bræðravígin hæfust á ný, en
minnst 34 manns hafa látið lífið í
átökunum á síðustu dögum.
Saud al-Faisal, utanríkisráð-
herra Sádi-Arabíu, hvatti Mah-
moud Abbas, forseta Palestínu-
manna og helsta leiðtoga Fatah, og
forystumenn Hamas til að þiggja
boð Sádi-Araba um að halda sátta-
fund í hinni helgu borg Mekka.
Talsmenn beggja fylkinga hafa
tekið vel í boðið, sem Abdullah,
konungur Sádi-Arabíu, kynnti á
sunnudaginn.
Á Gaza-svæðinu, þar sem harð-
ast var barist síðustu daga, virtist
vopnahléð ætla að halda í gær. En
reynslan af fyrri slíkum vopna-
hléssamningum er ekki góð; þeir
hafa jafnan farið fljótt út um
þúfur. Fátt benti til að aðilar væru
nú reiðubúnir að fara að öllum
skilmálum nýja samkomulagsins,
svo sem að framselja í hendur lög-
mætra lögregluyfirvalda þá sem
tekið hafa þátt í mannvígum.
Alexander Saltanov, aðstoðar-
utanríkisráðherra Rússlands sem
fer með málefni Miðausturlanda,
hvatti í gær til þess að alþjóðleg
einangrun Hamas-stjórnarinnar
yrði rofin. Saltanov sagðist myndu
leggja þetta til á fundi Kvartetts-
ins svonefnda í Washington í lok
vikunnar, það er með fulltrúum
Evrópusambandsins, Bandaríkj-
anna og Sameinuðu þjóðanna, auk
Rússlands. Á fundinum á að leita
leiða til að endurvekja hinn svo-
nefnda Leiðarvísi til friðar, sem
ætlað var að stuðla að varanlegum
friðarsamningum milli Palestínu-
manna og Ísraela og leiða til stofn-
unar sjálfstæðs ríkis Palestínu-
manna í framhaldinu.
Hina alþjóðlegu einangrun er
til þess að rekja, að Hamas hefur
ekki viljað viðurkenna tilvistar-
rétt Ísraelsríkis eða sverja af sér
beitingu ofbeldis til að ná fram
pólitískum markmiðum.
Fylkingar Palestínu-
manna hvíla vopnin
Enn var mikil spenna í lofti á Gaza í gær, fyrsta dag nýs vopnahlés milli stríðandi
fylkinga Palestínumanna. Sádiarabískir ráðamenn brýna leiðtoga Hamas og Fatah
að þekkjast boð um sáttafund í Mekka. Rússar vilja slaka á einangrun stjórnarinnar.
Samkvæmt áliti
Persónuverndar á ekki að veita
tryggingafélaginu Sjóvá-Almenn-
um aðgang að gögnum lögreglu
um umferðarlagabrot ökumanna.
„Skráning á upplýsingum um
umferðarlagabrot manna fer fram
í þágu starfsemi ríkisins á sviði
refsivörslu. Í samræmi við það
hefur aðgangur að upplýsingun-
um fyrst og
fremst verið tak-
markaður við þar
til bær stjórn-
völd til þess að
þau geti sinnt
lögboðnu hlut-
verki sínu. Sjóvá-
Almennar leggja
hins vegar til að
tryggingafélög
fái aðgang að þessum upplýsing-
um til útreikningar iðgjalda. Sú
notkun er augljóslega önnur og
ósamrýmanleg þeim tilgangi
skráningarinnar sem lesa má út úr
ákvæðum fyrrnefndra laga,“ segir
meðal annars í niðurstöðu Per-
sónuverndar sem einnig vísaði til
ákvæða stjórnarskrárinnar um
friðhelgi einkalífs manna.
Þór Sigfússon, forstjóri Sjóvár-
Almennra, hafði skrifað sam-
gönguráðuneytinu bréf og lýst því
sjónarmiði að æskilegt væri að
láta þá sem brjóti alvarlega af sér
í umferðinni greiða hærri iðgjöld
af ökutækjatryggingum en aðra
ökumenn. Slíkt hefði bæði varnað-
aráhrif og leiddi til eðlilegri dreif-
ingaráhættu. Því væri nauðsyn-
legt að tryggingafélög fengju
aðgang að upplýsingum um
umferðarlagabrot.
Tryggingafélög ekki upplýst
um umferðarbrot ökumanna
Risaþotan Airbus A-380 kom
til Íslands í gær til æfinga, í annað
sinn á skömmum tíma. Prófað var
hvernig þessi stærsta farþegaþota
heims stendur sig í lendingum þar
sem hliðarvindur er mikill.
Vélin tók á loft og lenti nokkr-
um sinnum en æfingin tók alls um
eina og hálfa klukkustund. Hún
kom í nóvember síðastliðnum í
sama tilgangi, að prófa lendingar í
miklum hliðarvindi.
Airbus A-380 er 560 tonn og
hefur um áttatíu metra vænghaf.
Hún rúmar 850 farþega á tveimur
hæðum. Áætlað er að vélin verði
tekin í notkun í almennu flugi
næsta haust.
Vélin, sem einnig gengur undir
nafninu Superjumbo, tekur við af
Boeing 747-400 sem stærsta far-
þegaþota heims, en Boeing-vélin
tekur mest sex hundruð manns í
sæti.
Levy lávarður, sem
sá um fjármögnun kosningabar-
áttu breska Verkamannaflokks-
ins, var handtekinn í annað sinn í
gær. Levy var yfirheyrður vegna
rannsóknar á hvort heiðurstitlar
hefðu verið veittir gegn fjár-
framlögum í kosningasjóði.
Levy er tennisfélagi Tonys
Blair, forsætisráðherra Bret-
lands, og gerir stjórnarandstaðan
sér mat úr hneykslinu.
Þingmaður frjálslyndra
demókrata segir til að mynda að
málið minni á Watergate-
hneykslið, sem kom Nixon,
fyrrverandi forseta Bandaríkj-
anna, frá völdum.
Handtekinn
í annað sinn