Fréttablaðið - 31.01.2007, Blaðsíða 41
17 { íslensku tónlistarverðlaunin }
REGÍNA ÓSK
Eftir að hafa staðið baka til á sviðinu árum saman
og sungið bakraddir með öllum helstu söngstjörnum
landsins stekkur Regína Ósk fram fyrir flesta kollega
sína á vel heppnaðri plötu.
Söngkona
ársins
BUBBI MORTHENS
Átti enn eitt frábært árið, spilaði fyrir fimm þúsund manns í Laugardalshöll
á afmælisdaginn sinn þegar hann varð fimmtugur, og þar að auki tugi þús-
unda í gegnum sjónvarpið í leiðinni. Óþarfi að segja meira.
Söngvari ársins
BAGGALÚTUR
Hljómsveit sem fer á kostum hvort sem er á hljómplöt-
um eða á tónleikum; skemmtileg lög, frábærir textar
og útsetningar.
Flytjandi ársins
BAGGALÚTUR OG BJÖRGVIN HALLDÓRSSON:
ALLT FYRIR MIG
Björgvin Halldórsson sýnir okkur hvernig sá syngur sem
röddina hefur - og með húmor. Slær sjálfum sér eiginlega
við. Hann lyftir laginu með yfirvegun í háar hæðir, og fer
einkar vel með smellinn textann.
Lag ársins
ANDREA GYLFADÓTTIR
Andrea er meðal bestu söngkvenna
sem Íslendingar hafa átt. Hún er í
frábæru formi á nýju Todmobile-
plötunni, og hún fer líka vel með
gömlu íslensku lögin með Birni
Thoroddsen og félögum. Hún sýnir
enn á ný hversu fjölhæf söngkona
hún er og mikill listamaður.
LAY LOW
Ein sérstakasta gulrótin í matjurta-
garðinum þetta misserið. Einstakur,
nýr og spennandi tónn, sem bygg-
ir á og blandast gömlum blús- og
djassgrunni í anda Billie Holiday og
Bessie Smith.
Popp, rokk & jaðar, dægur-
tónlist og ýmis tónlist deila
með sér þessum verðlaunum.
FRIÐRIK ÓMAR
Stimplar sig sterkur inn með sinni
fyrstu sólóplötu eftir að hafa sungið
ótal bakraddir með ýmsum undan-
farin ár. Eins og Regína Ósk sýnir
hann og sannar að hann á líka vel
heima í forgrunninum.
PÉTUR BEN
Bæði kraftmikill og mjúkur
rokksöngvari, ein bjartasta
von íslensks tónlistarlífs.
Popp, rokk & jaðar, dæg-
urtónlist og ýmis tónlist
deila með sér þessum
verðlaunum.
BJÖRGVIN HALLDÓRSSON
Annað af B-unum stóru sem átti glæsilegan hljómleik
á árinu. SöngvarINN! (með stórum stöfum). Og það er
ekki bara röddin sem prýðir Björgvin, heldur textameð-
ferð og túlkun öll.
BUBBI MORTHENS
Hitt stóra B-ið... ótrúlegt; einn kall
með gítar og heil íþróttahöll tekur
undir fullum hálsi - með textana á
hreinu. Bubbi er kraftmikill flytj-
andi og sannfærandi og úthaldið
endalaust...mikill „sjómaður“.
Popp, rokk & jaðar,
dægurtónlist og
ýmis tónlist deila
með sér þessum
verðlaunum.
LAY LOW: PLEASE
DON´T HATE ME
Gítarleikur, söngur, lag-
lína, texti og túlkun...
allt gengur upp. Næstum
fullkomið lag.
Popp, rokk & jaðar, dægurtón-
list og ýmis tónlist deila með
sér þessum verðlaunum.
GHOSTIGITAL: NOT CLEAN
Stríðsrekstur Íslendinga (þorskastríðið) gerður upp í kraftmiklu og stórskemmtilegu
lagi. Fortíð og nútíð í framtíðarlegum hljómum. Frábær samvinna og samtvinn-
un texta, tónlistar og söng/tals. Hnyttinn texti og Mark E. Smith, söngvari The
Fall, kemur með skemmtilega
og óvænta vídd í lagið. Fyndni
og fagmennska fara ekki allt-
af saman, en hér tekst það svo
sannarlega.