Fréttablaðið - 31.01.2007, Page 65
Hinn fimmtánda janúar var sjón-
varpsmynd á dagskrá More4 í
Bretlandi: Réttarhaldið yfir Tony
Blair. Hún fékk frekar slaka dóma
en þar var leikið með þá framtíðar-
sýn að Blair sæti enn á valdastóli
2010, Hillary Clinton væri sest í
Hvíta húsið og þá væri breski for-
sætisráðherrann dreginn fyrir
alþjóðlegan rétt fyrir ...stríðs-
glæpi. Þetta var níutíu mínútna
sjónvarpsmynd og lék Robert
Lindsey (My Family, GBH)
forsætisráðherrann. Þetta er í
annað sinn sem hann leikur Tony
en Michael Sheen hefur líka tekist
á við forsætisráðherra í tvígang,
síðast í The Queen.
Satírur þekkjum við úr sjónvarpi
hér: Spaugstofan hefur um langan
aldur gert sér mat úr skopstæling-
um í stuttum sketsum. Þær eru fast-
ur þáttur af Áramótaskaupinu. Við
þekkjum engar tilraunir höfunda
lengri verka til að takast á við
nálæga viðburði og fjalla um lifandi
persónur opinskátt. Í Bretlandi hafa
menn séð talsvert mikið af leiknu
efni af þessu tagi í löngu formi. A
Very Social Secretary hét mynd
fyrir skömmu sem lýsti framgangi
og falli James Plunkett innanríkis-
ráðherra, nú er í burðarliðnum sjón-
varpsmynd um John Prescott, fyrr-
um andskota Íslendinga í
landhelgisdeilunni og varaforsætis-
ráðherra bresku ríkisstjórnarinnar,
sem er umvafinn hneykslismálum.
Þar í landi gera menn greinar-
mun á verkum sem skoða stjórn-
málamenn sem alvarlega hugsandi
einstaklinga sem staddir eru í miðj-
um átökum samtímans og verkum
sem skoða þá á sama stað en gera
þá að fíflum, líkt og Robert Lindsey
gerir með stríðsglæpamanninn
Blair.
Þar eru menn líka ýmsu vanir
samanber The Queen sem nú má
sjá í Reykjavík. Opinberar persón-
ur verða að sætta sig við umfjöllun
af öllu tagi sem hér á landi yrði
aldrei leyfð. Geta menn ímyndað
sér verk í sjónvarpi þar sem fjallað
væri um þá ákvörðun Davíðs og
Halldórs að ganga í lið með hinum
staðföstu þjóðum, alvarlegt drama
um Ólaf Ragnar og Dorrit í tilhuga-
lífinu, einkamál þeirra Baugs-
feðga í aðdraganda málaferlanna?
Breska pressan fór ómildum
höndum um Réttarhaldið yfir Tony
Blair. Voru flestir á því að mann-
gerðin væri klisja og það sem
honum væri lagt í munn stæði langt
frá því sem haft væri eftir honum
opinberlega og hann hafi í ógáti
misst út úr sér.
Blair í sjónvarpinu
FYRSTUR MEÐ
FRÉTTIRNAR
www.visir.is
www.xd.is
ALDRAÐRA
Í ÞÁGU
Opinn fundur í Valhöll um bætt kjör aldraðra fimmtudaginn 1. febrúar klukkan 17.15
Ræðumenn á fundinum verða:
Árni M. Mathiesen, fjármálaráðherra - Yfirlit um breytingar á kjörum aldraðra og öryrkja
Ásta Möller, alþingismaður - Bættur hagur eldri borgara
Salome Þorkelsdóttir, formaður Samtaka eldri sjálfstæðismanna - Velferðin og þriðja kynslóðin
Margrét S. Einarsdóttir, fyrrverandi forstöðumaður - Almannatryggingar – allra hagur
Fundarstjóri: Helga Þorbergsdóttir, hjúkrunarfræðingur
Miklar breytingar urðu á kjörum aldraðra um áramótin. Með breytingunum var komið til móts við óskir eldri borgara
og byggt á samkomulagi ríkisstjórnarinnar og Landssambands eldri borgara frá júlí síðastliðnum. Í breytingunum felst m.a.:
• Lífeyrir, tekjutrygging og heimilisuppbót hækka • Tekjuskerðing bóta lækkar
• Tekjur maka hafa minni áhrif á lífeyri • Um sjö milljörðum króna verður varið árlega í breytingarnar til ársins 2010
Eldri borgari með 100 þúsund krónur
í atvinnutekjur á mánuði fékk 154.996 kr.
á mánuði 1. janúar 2006.
Eftir breytingarnar fær hann 196.741 kr.,
sem er 27% hækkun.
Eldri borgari með 150 þúsund krónur
í atvinnutekjur á mánuði fékk 173.061 kr.
á mánuði 1. janúar 2006.
Eftir breytingarnar fær hann 231.843 kr.,
sem er 34% hækkun.
Dæmi 2
Dæmi 1
VELFERÐARNEFND SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS
SAMTÖK ELDRI SJÁLFSTÆÐISMANNA
Léttar veitingar að fundi loknum
ALLIR SKÍÐAPAKKAR
MEÐ 20% AFSLÆTTI
BARNAPAKKI
Verð frá 22.995
UNGLINGAPAKKI
Verð frá 25.995
FULLORÐINS/
STÓRIPAKKI
Verð frá 29.995
Snjóbrettapoki. Verð frá 3 .995
Snjóbrettahjálmur. Verð frá 5.995SN
JÓ
B
R
ET
TA
PA
K
K
A
R HR
EY
FI
N
G
•
K
R
A
FT
U
R
•
Á
N
Æ
G
JAFRÁBÆRIR
SKÍÐAPAKKAR
ALPARNIR
Íslensku
Takmarkaðmagn