Fréttablaðið - 02.03.2007, Blaðsíða 76
!óíbí.rk045
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500
THE LAST KING OF SCOTLAND kl. 5.30, 8 og 10.35 B.I. 16 ÁRA
NOTES ON A SCANDAL kl. 6, 8 og 10 B.I. 12 ÁRA
PAN´S LABYRINTH kl. 5.45, 8 og 10.15 B.I. 16 ÁRA
LITTLE MISS SUNSHINE kl. 8 og 10.10 B.I. 7 ÁRA
KÖLD SLÓÐ/COLD TRAIL kl. 5.45 B.I. 12
THE NUMBER 23 kl. 5.45, 8 og 10.15 B.I. 16 ÁRA
THE LAST KING OF SCOTLAND kl. 5.20, 8 og 10.35 B.I. 16 ÁRA
THE LAST KING SÝND Í LÚXUS kl. 5.20, 8 og 10.35 B.I. 16 ÁRA
GHOST RIDER kl. 5.30, 8 og 10.30 B.I. 12 ÁRA
THE PURSUIT OF HAPPYNESS kl. 8 og 10.30
ANNA & SKAPSVEIFLURNAR ÍSL. TAL kl. 4 og 4.45 STUTTMYND
VEFUR KARLOTTU ÍSL. TAL kl. 3.40
NIGHT AT THE MUSEUM kl. 5.40
SMOKIN ́ACES kl. 5.50, 8 og 10.10* B.I. 16 ÁRA
THE NUMBER 23 kl. 8 og 10 B.I. 16 ÁRA
GHOST RIDER kl. 5.50 B.I. 12 ÁRA
* KRAFTSÝNING
MIÐASALA Í SMÁRABÍÓ OG REGNBOGANN Á
MIÐASALA Í SMÁRABÍÓ OG REGNBOGANN Á
TOPPMYNDIN Á ÍSLANDI
SVALASTA SPENNUMYND ÁRSINS
“FORREST WHITAKER ER HREINT ÚT SAGT
MAGNAÐUR Í HLUTVERKI HARÐSTJÓRANS
OG SÝNIR SVO AÐ EKKI VERÐUR UM VILLST
AÐ HÉR FER EINN FREMSTI LEIKARI
SAMTÍMANS. B.S. - FRÉTTABLAÐIÐ
HEIMSFRUMSÝNING
MYND EFTIR JOEL
SCHUMACHER
Forever er fimmta Gus Gus-plat-
an og sú fyrsta síðan Attention
kom út fyrir fimm árum. Gus Gus
byrjaði sem stór fjöllistahópur, en
er í dag þriggja manna sveit skip-
uð þeim Bigga Veiru (Birgi Þórar-
inssyni), President Bongó (Step-
hani Stephensen) og Earth (Urði
Hákonardóttur).
Gus Gus hefur verið að sækja í
sig veðrið sem tónleikasveit síð-
ustu ár og eftirvæntingin eftir
nýrri plötu hefur aukist eftir því
sem maður hefur heyrt fleiri ný
lög. If You Don’t Jump (You’re
English) sem notast við gítarlínu-
brot út laginu „Augun úti“ með
Purrki Pillnikk, Lust, Porn, Need
In Me og Mallflowers eru allt lög
sem voru komin út á smáskífum
eða voru orðin áberandi á tón-
leikadagskrá sveitarinnar áður en
Forever leit dagsins ljós. Það var
greinilegt á þessum lögum að Gus
Gus var í stuði.
Attention var að mörgu leyti
ágæt plata og hefur elst vel. Á
henni tók hin nýja og smækkaða
útgáfa af Gus Gus á sig mynd. Í
staðinn fyrir að herja á poppmark-
aðinn með háþróuðu og hugmynda-
ríku rafpoppi eins og á fyrstu plöt-
unum þá var stefnan tekin á
sálarfulla danstónlist. Það voru
nokkur frábær lög á Attention (t.d.
David og Dance You Down), en að
mínu mati vantaði samt herslu-
muninn upp á heildarmyndina.
Það vantaði meiri kraft og hljóm-
urinn var of einsleitur. Forever er
í raun í grunninn ekki svo ólík
Attention, en hún er hnitmiðaðri,
fjölbreyttari og kraftmeiri.
Það eru 12 lög á Forever. Helm-
ingur þeirra er sunginn, hinn
helmingurinn er instrúmental.
Platan er mjög vel upp byggð og
virkar vel í samfelldri spilun.
Fjögur laganna eru sungin af Urði.
Meistaralega. Hún sýnir að hún er
ein af bestu söngkonum landsins.
Lögin You’ll Never Change (sem
er gamall soul-smellur), Hold You,
Need In Me og Sweet Smoke eru
öll frábær. Nýja smáskífulagið
Moss sem Daníel Ágúst syngur er
líka mjög flott. Það sama má segja
um instrúmental lög eins og Lust,
Forever og Demo 54. Tónlistin
sækir áhrif í mismunandi tímabil í
danstónlistarsögunni; soul, house,
teknó, elektró og heildaryfir-
bragðið nær því að vera í senn
ferskt og klassískt – nútímalegt og
retró…
Taktarnir og riffin eru oft keim-
lík hjá Gus Gus, en fjölbreytnin
fæst m.a. með flottum smáatriðum
í hljómi og útsetningum, t.d. gítar-
leik Ómars Guðjónssonar í You’ll
Never Change og bakröddum Páls
Óskars og Aarons Carl í Hold You.
Á heildina litið er Forever frá-
bær plata sem sýnir að Gus Gus er
sveit í fullum blóma. Platan nýtur
sín best á miklum styrk í góðum
græjum. Heildin er óvenju sterk:
Það er langt síðan ég hef heyrt
danstónlistarplötu sem svínvirkar
svona frá fyrsta tóni til þess síð-
asta. Trausti Júlíusson
Nýr hápunktur á ferlinum
TónlisT
Forever
Gus Gus
HHHHH
„Forever er frábær danstónlistarplata
sem svínvirkar frá fyrsta tóni til þess
síðasta. Nýr hápunktur á ferli Gus
Gus.“
Strákasveitin
Take That ætlar í
lok ársins í sína
aðra tónleikaferð
um Bretland
síðan hún kom
saman á nýjan
leik á síðasta ári.
Ferðin mun heita
The Beautiful
World Tour og
munu þeir félagar meðal annars
spila í London, Glasgow og í
Manchester.
Smáskífulag Take That, Pati-
ence, og plata þeirra Beautiful
World nutu gríðarlegra vinsælda
á síðasta ári og fóru beint á topp-
inn í Bretlandi. Skömmu áður
hafði sveitin farið í vel heppnaða
tónleikaferð um Bretland.
„Við getum ekki hugsað okkur
betri leið til að
ljúka árinu en að
gefa aðdáendum
okkar eitthvað
fyrir aurinn
sinn,“ sagði Gary
Barlow úr Take
That. „Við erum
allir ótrúlega
þakklátir fyrir
stuðninginn sem
við höfum fengið á undanförnum
átján mánuðum.“
Hljómsveitin spilaði fyrir
rúmlega hálfa milljón áhorfenda
á síðustu tónleikaferð sinni um
Bretland. Seldist platan Beauti-
ful World í rúmlega einni milljón
eintaka í Bretlandi sína fyrstu
mánuði frá útgáfu. Lagið Pati-
ence hlaut jafnframt Brit-verð-
laun sem besta smáskífan.
Í aðra tónleikaferð
Take ThaT Strákasveitin Take That
ætlar í aðra tónleikaferð um Bret-
land í lok ársins.
Mugison, Baddi úr Jeff Who?,
Jenni úr Brain Police og Þorsteinn
Einarsson, fyrrverandi söngvari
Hjálma, eru á meðal þeirra sem
munu syngja á nýrri plötu til heið-
urs bandaríska blúsrokkaranum
Tony Joe White.
Guðmundur Kristinn Jónsson
og Sigurður Halldór Guðmunds-
son, sem hafa einnig gert garðinn
frægan með Hjálmum, og Bragi
Valdimar Skúlason úr Baggalúti
eru mennirnir á bak við plötuna,
sem er væntanleg í sumar. „Siggi
fann lag á netinu og sendi mér. Þá
fann ég disk í einkasafni Rúnars
Júl. og við höfum mikið hlustað á
hann. Við ákváðum að gera plötu
því það þekkir hann enginn hérna,“
segir Guðmundur Kristinn um
Tony Joe White, sem er frá Louisi-
ana. „Hugmyndin að plötunni er
að á henni syngi helstu rokkarar
Íslands af yngri kynslóðinni,“
bætir hann við. Lögin á plötunni
eru öll eftir Tony Joe en textarnir
eftir Braga.
Á meðal fleiri þekktra nafna
sem munu hugsanlega syngja á
plötunni eru Krummi, Steini úr
Hjálmum, Ómar úr Quarashi, Ótt-
arr Proppé, Ragnar Kjartansson.
Ólafur Darri Ólafsson og meistari
Megas.
Til heiðurs Tony Joe White
mugison Tónlistarmaðurinn Mugison
mun syngja á plötu til heiðurs Tony Joe
White.
Tony Joe whiTe Íslenskir tónlistarmenn
ætla að gera plötu til heiðurs bandaríska
blúsrokkaranum Tony Joe White.
Vi
nn
in
ga
r v
er
ða
af
he
nd
ir
hj
á
BT
Sm
ár
al
in
d.
K
óp
av
og
i.
M
eð
þv
í a
ð
ta
ka
þ
át
t e
rt
u
ko
m
in
n
í S
M
Sk
lú
bb
. 9
9
kr
/s
ke
yt
ið
.
HÖRKU HASARMYND FRÁ LEIKSTJÓRA NARC
Sendu SMS skeytið JA SAF á númerið1900 og þú gætir unnið miða fyrir tvo! Vinningar eru:Miðar á myndina, fullt af Pepsi, DVD myndir og margt fleira
FUMSÝND 2. MARS