Fréttablaðið - 02.03.2007, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 02.03.2007, Blaðsíða 46
BLS. 10 | sirkus | 2. marS 2007 Lítil og látlaus athöfn „Við gengum í það heilaga um verslunarmannahelgina,“ segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, en hún og eiginmaður hennar, Hjörleifur Sveinbjörnsson, höfðu búið saman í tólf ár áður en þau létu pússa sig saman árið 1994. Athöfnin og veislan fóru fram í gróðurskála í Grasagarð- inum í Laugardalnum og samkvæmt Ingibjörgu rigndi lítillega á brúð- kaupsdaginn. Spurð um brúðkaups- kjólinn segist Ingibjörg hafa keypt sér tvískiptan kjól. „Ég ákvað að kaupa mér kjól sem ég gæti notað við ýmis tilefni enda hafði ég engan áhuga á brúðarkjól sem ég myndi aldrei nota. Þetta var falleg og látlaus athöfn, spilað var á tvær þverflautur og aðeins nánustu vinir og fjölskylda viðstödd. Við fórum ekki í neina brúðkaupsferð heldur aðeins út að borða með okkar nánustu vinum um kvöldið,“ segir Ingibjörg og bætir við að séra Karl Sigurbjörnsson hafi gefið þau saman. Ingibjörg segir þau Hjörleif sjaldan hafa hugsað út í brúðkaup öll árin sem þau bjuggu saman ógift. „Við hugsuðum lítið um að formfesta þessa sambúð okkar en þegar þess var gætt að ég ráðlagði öðrum konum að gifta sig svo réttarstaða þeirra væri skýr varð hálf öfugsnúið að ég væri ógift. Við ákváðum að slá til enda vorum við löngu búin að gera það upp við okkur að við ætluðum að ganga saman okkar æviveg og styðja hvort annað og styrkja.“ Hafði beðið hennar tvisvar „Athöfnin fór fram í Dómkirkjunni og veislan á Kaffi Reykjavík,“ segir Andrés Þór Björnsson, innanhúss- arkitekt og fyrrverandi Herra Ísland, sem gekk að eiga kærustuna sína, Evu Ingimarsdóttur, sem einnig er innanhússarkitekt, hinn 10. júní í fyrra. Andrés hafði beðið Evu tvisvar áður en þau létu pússa sig saman. „Fyrra bónorðið kom fyrir átta árum þegar við vorum á leiðinni til Akureyrar en Eva er að norðan. Í Borgarfirðinum stoppaði ég bílinn og batt fyrir augu hennar en ég hafði komið fyrir kampavíni, jarðarberjum og hringunum á fallegum stað. Síðan fórum við út í nám og ekkert varð að brúðkaupinu svo ég skellti mér á skeljarnar aftur í Mílanó og þá var þetta skothelt,“ segir hann brosandi. Andrés og Eva héldu partí í brúð- kaupsveislunni og voru sjálf síðust til að yfirgefa fjörið. „Þetta var frábær endir á frábærum degi. Við höfðum gist hvort í sínu lagi daginn fyrir brúðkaupið svo ég sá Evu ekki í kjóln- um fyrr en í kirkjunni og hún var stórglæsileg. Um kvöldið leigðum við hljómsveit og barinn var opinn alla nóttina. Um fjögurleytið röltum við svo á svítuna sem við höfðum leigt okkur.“ Spurður um brúðkaupsferð segir Andrés að öll fjölskyldan hafi farið saman til Mallorka. „Við eigum tvö börn, strák sem er tveggja ára og sjö ára dóttur. Við tókum þau með okkur í týpíska og notalega fjöl- skylduferð til Mallorka.“ Andrés Þór Björnsson og Eva Ingimarsdóttir giftu sig í Dómkirkjunni í Reykjavík. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Hjörleifur Sveinbjörnsson á brúðkaupsdaginn. Sigrún Hjálmtýsdóttir og Þorkell Jóelsson. Halldóra Björnsdóttir og dætur hennar á brúðkaupsdaginn. BrúðkaupSdagurinn er einn aLLra StærSti dagurinn í Lífi fLeStra. SirkuS ræddi við fjögur áStfangin hjón og Spurði út í Brúð- kaupSdaginn. öLL eru þau SammáLa um að dagurinn hafi verið yndiSLegur. DAGuR óGLEymAnLEGuR ynDISLEGuR Hugsuðu málið í 13 ár „Við hugsuðum okkur um í 13 ár áður en við létum loks til skara skríða,“ segir Sigrún Hjálmtýsdóttir söngkona en hún og eiginmaður hennar, Þorkell Jóelsson, gengu í það heilaga hinn 20. júní árið 1987. Sigrún og Þorkell ætluðu sér að flytja búferlum til Ítalíu en þar gátu aðeins hjón leigt íbúð. „Þetta hafði þó staðið til lengi,“ segir hún og bætir við að Ítalíuferðin hafi ýtt á þau. „Dagurinn var ógleymanlegur en athöfnin fór fram í Mosfellskirkju í frábæru veðri sem spillti ekki fyrir. Veislan fór svo fram í félagsheimil- inu Fólkvangi á Kjalarnesi.“ Diddú gifti sig í jakka sem saumaður var af Maríu Lovísu en tengdamamma hennar saumaði pilsið. Í tilefni dagsins fór hún í hárgreiðslu og lét í fyrsta skiptið á ævinni lakka neglur sínar. „Hárgreiðslan var einföld þar sem ég var með stutt hár en ég var ofsalega fín með hárauðar neglurn- ar,“ segir hún hlæjandi og bætir við að þau hjónakornin hafi ekki setið á altarinu eins og venjan sé. „Kirkjan var troðfull af gestum og við urðum að sitja á fremsta bekk ásamt foreldrum okkar. Það var varla pláss fyrir okkur,“ segir Diddú og hlær dátt. „Mamma, tengdamamma og systur mínar hjálpuðu mér að útbúa pinnamat og snittur og svo var sungið og dansað í veislunni enda mikið af hæfileikaríku fólki í kringum okkar. Um kvöldið fórum við fínt út að borða en þangað komu um 30 bestu vinir okkar svo veislan hélt áfram. Þetta var yndislegur dagur.“ Keypti brúðkaupskjólinn mörgum árum áður „Dagurinn var alveg yndislegur en athöfnin fór fram í Háteigskirkju,“ segir Halldóra Björnsdóttir leikkona sem giftist eiginmanni sínum, Úlfari Lúðvíkssyni, 28. ágúst árið 1999. Um litla og notalega athöfn var að ræða þar sem aðeins nánustu fjölskyldu var boðið. Spurð um bónorðið segir Halldóra að Úlfar hafi ekki farið niður á hnén. „Hann gaf mér hins vegar svo fallega hálsfesti þegar hann kom úr ferðalagi frá Kína um vorið að ég ákvað að giftast honum,“ segir hún en þau höfðu verið saman í tólf ár áður en þau létu pússa sig saman. Halldóra hafði fjárfest í brúðkaups- kjólnum nokkrum árum áður og hálsfestin smellpassaði við kjólinn. „Ég sá kjólinn í búðarglugga á Laugaveginum og fannst hann svo fallegur. Ég greiddi mánaðarlega inn á hann þangað til ég eignaðist hann en svo var hann geymdur inni í skáp þangað til við höfðum ákveðið daginn. Úlfar vissi aldrei neitt um kjólinn,“ segir Halldóra brosandi og bætir við að dagurinn hafi verið yndislegur. „Þrátt fyrir að athöfnin hafi verið lítil var þetta allt svo hátíðlegt og æðislegt.“ indiana@frettabladid.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.