Fréttablaðið - 02.03.2007, Side 24

Fréttablaðið - 02.03.2007, Side 24
 2. mars 2007 FÖSTUDAGUR24 Umsjón: nánar á visir.is KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf] icex-15 7.370 +0,91% Fjöldi viðskipta: 1059 Velta: 12.508 milljónir HLUtAbréF Í úrVALSVÍSitÖLU: 365 3,72 -0,54% ... Actavis 68,20 +1,04% ... Alfesca 4,77 +1,49% ... Atlantic Petroleum 590,00 +0,00% ... Atorka 7,34 -0,54% ... Bakkavör 62,40 +0,65% ... Eimskipafélagið 36,90 -1,34% ... FL Group 30,20 +0,33% ... Glitnir 27,30 +0,37% ... Kaupþing 1.003 +1,72% ... Landsbankinn 31,90 +0,00% ... Marel 75,00 +1,35% ... Mosaic Fashions 15,70 +3,97% ... Straumur-Burðarás 20,20 +0,00% ... Össur 118,00 +0,86% MEStA hæKKUn Mosaic 3,97% Kaupþing 1,72% Alfesca 1,49% MEStA LæKKUn teymi 1,62% eimskipafélagið 1,34% Atorka 0,54% Stuart Rose, forstjóri Marks & Spencer, segir að fyrirtækið íhugi að leggja fram tilboð í Sainsbury, þriðju stærstu stórmarkaðakeðju Bretlands. „Eignir sem þessar koma ekki oft inn á markaðinn,“ sagði hann á miðvikudaginn og bætti við að eigendur M&S myndu álíta hann vera fífl ef hann skoð- aði ekki málið. Hlutabréf í Sainsbury hækk- uðu um tæp átján prósent í febrú- ar eftir að þrír fjárfestingasjóðir undir forystu CVC Capital Partn- ers sögðust vera að íhuga að taka Sainsbury yfir. Það myndu verða stærstu skuldsettu fyrirtækja- kaup í evrópskri sögu. Styrkur M&S liggur í fatnaði en Sainsbury hefur sterka stöðu í matvörunni. Ef félögin færu í eina sæng mætti ná fram hagstæðari samningum við birgja og spara tugir milljónir punda í stjórnunar- kostnað. Samanlögð velta félag- anna yrði 25 milljarðar punda á ári samanborið við 30 milljarða punda hjá Tesco, stærstu stór- markaðakeðju Bretlands. Stjórnendur M&S ætla ekki að svo stöddu að leggja fram form- legt tilboð en áskilja sér rétt til þess ef stjórn Sainsbury óskar eftir slíku eða CVC Capital Partn- ers setur fram formlegt yfir- tökutilboð. - eþa M&S fylgist grannt með Sainsbury Sparisjóður Vestfirðinga skilaði 801 milljón króna í hagnað í fyrra sem er 276,6 prósenta aukning á milli ára. Þar af var tekjufærsla skatta upp á 193 milljónir. Arð- semi eigin fjár var 80 prósent. Gengishagnaður skýrir þenn- an mikla hagnað að mestu en hann nam 944 milljónum króna. SPVF átti eignarhlut í fjármála- þjónustufyrirtækinu Existu þegar það fór á hlutabréfamark- að í haust og er enn meðal eig- enda. Athygli vekur að hreinar vaxtatekjur voru 163 milljónir og drógust saman um fjörutíu pró- sent á milli ára. Eignir sparisjóðsins námu 9.657 milljónum króna í árslok. Eigið fé var 1.805 og óx um 80,5 prósent á nýliðnu ári. - eþa Mikill gengishagn- aður á Vestfjörðum Sparisjóður Vestfirðinga hagnaðist um 800 milljónir. Handhæg stafræn framköllun Síminn og hans Petersen hafa skrifað undir samning um stafræna framköllun í kjölfar þess að Síminn markaðssetti þjónustuna Safnið í fyrra. Safnið er örugg geymsla fyrir ýmis rafræn gögn, en ljósmyndirnar þar er hægt að skoða bæði í tölvu og á sjónvarpsskjá auk fleiri möguleika. Safn- ið er sagt uppfylla framtíðarsýn Símans um stafræna tilveru þar sem aukið virði fyrir viðskiptavini fyrirtækisins felist í að hafa öruggan aðgang að eigin gögnum í þeirri gátt sem best hentar hverju sinni. Með samstarfinu við hans Petersen verður eftir- leiðis hægt að senda stafrænu ljósmyndirnar í framköllun beint úr Safninu, ásamt því að fá þær sendar heim eða sækja í næsta útibú hans Petersen. Fleiri kostir í stöðunni Í kynningu Símans á samstarfinu í gær segir að það muni auka enn gæði og þjón- ustu við viðskiptavini fyrirtækisins í gegnum Safnið. Margir kannast hins vegar við og nota jafnvel aðra vinsæla vistunarkosti fyrir ljósmyndir á netinu. Má þar nefna netsamfélag á borð við Flickr, sem er í eigu Yahoo, eða Picasa ljós- myndavef Google. Á þeim bæjum hafa viðlíka samningar og Síminn gerði við hans Petersen verið gerðir við framköllunarstofur í Bandaríkjunum og spurning hvort hans Petersen gæti ekki líka hugað að því. Peningaskápurinn ... MArKAðSPUNKtArActavis hefur gert samstarfssamning við þýska sjúkrasamlagið Allgemeine Ortskrankenkassen (AOK). Í samningn- um felst að AOK mælir með að læknar í Þýskalandi ávísi tilteknum lyfjum frá Actavis í þeim tilgangi að lækka kostnað í þýska heilbrigðiskerfinu. Gengi Mosaic Fashions hækkaði um tæp sex prósent í Kauphöll Íslands í gær eftir að Landsbankinn birti nýtt verðmat þess. Í matinu er vænt verð bréfa 22,9 krónur á hlut en til samanburðar stóð það í 15,70 við lokun markaðar í gær. Gengi hlutabréfa hélt áfram að lækka á helstu fjármálamörkuðum í Evrópu í gær. Mest lækkaði gengi frönsku CAC-vísitölunnar, sem fór niður um 2,1 prósent. Uppgjör Actavis á pari við spár Hagnaður Actavis árið 2006 nam níu milljörðum króna. Vöxtur félagsins á síðasta ársfjórðungi var mestur í Mið- og Austur- Evrópu og Bandaríkjun- um. Actavis skilaði tæplega 102,7 milljóna evra hagnaði á árinu 2006, sem nemur rúmlega níu milljörðum króna. Hagnaðurinn á fjórða ársfjórðungi nam 32,5 milljónum evra, um 2,9 milljörð- um íslenskra króna. Tekjur félagsins rúmlega tvö- földuðust á árinu og námu 1.379 milljónum evra, 121 milljarði íslenskra króna. EBITDA-fram- legðarstig, hlutfall rekstrarhagn- aðar fyrir skatta af rekstrartekj- um, var 20,8 prósent. Tekjur á síðasta fjórðungi jukust um átta- tíu prósent í 350,2 milljónir evra. EBITDA-framlegð á fjórðungn- um nam 19,9 prósentum. Hagnaður Actavis var að mestu leyti í takti við spár grein- ingardeilda Glitnis og Lands- bankans. Tekjur og framlegð voru hins vegar undir vænting- um þeirra. Greiningardeild Kaup- þings gerði ráð fyrir minni hagn- aði á fjórðungnum, eða 23,5 milljónum króna. Skýrist það meðal annars af því að gengis- hagnaður ársins var mun hærri en gert var ráð fyrir. Vöxtur Actavis á fjórðungnum var mestur í Mið- og Austur-Evr- ópu og Asíu. Þar jókst sala um 31,3 prósent og nam 148,6 millj- ónum evra. Þá var vöxtur einnig góður í Bandaríkjunum. Salan jókst einnig í Vestur-Evrópu, Mið-Austurlöndum og Afríku. Þar stóðu tekjur hins vegar í stað vegna áhrifa af miklum verð- lækkunum í Þýskalandi. Af sömu ástæðu varð samdráttur í sölu til þriðja aðila um 25,5 prósent. Á kynningarfundi uppgjörsins í gær kom fram að bandaríska lyfjaeftirlitið hefði veitt Actavis viðvörun í kjölfar skoðunar á starfsemi félagsins í Little Falls í New Jersey. Segjast stjórnendur hafa brugðist við henni. Hún muni engin fjárhagsleg áhrif hafa á árinu 2007. - hhs Fær hálfsárseinkasölu- leyfi í Bandaríkjunum Actavis hefur fengið sam- þykki bandarísku mat- væla- og lyfjastofnunar- innar til að markaðssetja meltingarfæralyfið Ranitidine mixtúru þar í landi. Í tilkynningu Actavis til Kauphallar Íslands um málið kemur fram að þar sem fyrirtækið sé fyrst til að sækja um markaðsleyfi á lyf- inu hafi það fengið 180 daga einkarétt á sölu þess. Lyfið er sagt munu fara í dreifingu á næstu vikum. Róbert Wessman, for- stjóri Actavis, fagnar einkarétt- inum og segir þetta í fyrsta sinn í sögu félagsins sem slíkur áfangi náist. Hann segir vonir standa til að lyfið verði á meðal þeirra söluhæstu í Bandaríkjunum á árinu. Ranitidine mixtúra er samheitalyf frumlyfsins Zantac Syrup frá Glaxo- SmithKline og er þriðja lyfið sem Actavis markaðs- setur í Bandaríkjunum á árinu. Actavis segir að í fyrra hafi sala lyfsins í Bandaríkjunum numið um 121 milljón Bandaríkjadala, sem nemur um átta millj- örðum króna. - óká Aðalfundur Tryggingamiðstöðvarinnar hf. verður haldinn fimmtudaginn 15. mars 2007 kl. 16.00 í Hvammi á Grand Hótel Reykjavík, Sigtúni 38, Reykjavík. Dagskrá: 1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins á síðastliðnu starfsári. 2. Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár ásamt skýrslu endurskoðenda lagður fram til staðfestingar. 3. Ákvörðun um ráðstöfun tekjuafgangs félagsins, þ.m.t. greiðslu arðs. 4. Ákvörðun um tillögu stjórnar um starfskjarastefnu félagsins. 5. Ákvörðun um þóknun til stjórnar. 6. Tillögur um eftirfarandi breytingar á samþykktum félagsins: a. Breyting á 3. gr. um starfssvæði félagsins. b. Breyting á 6. gr. um að engin sérstök réttindi fylgi hlutum né að hluthafar verði skyldaðir til að sæta innlausn. c. Breyting á 15. gr. um að á dagskrá aðalfundar skuli vera ákvæði um að ákvörðun skuli tekin um ráðstöfun tekjuafgangs og hvernig mæta skuli rekstrarhalla, svo og að á dagskrá aðalfundar skuli vera tillaga um starfskjarastefnu félagsins. d. Um breytingu á 25. gr. þess efnis að félagsstjórn skuli leggja fyrir aðalfund tillögu um ráðstöfun tekjuafgangs og hvernig mæta skuli halla. e. Ákvæði um að 26. gr. samþykktanna eigi ekki við þegar breyta skal 10. gr. þeirra. f. Endurskoðun á 27. gr. varðandi ákvörðun um slit á félaginu. 7. Kosning stjórnar félagsins. 8. Kjör endurskoðenda (endurskoðunarfélags). 9. Tillaga um heimild stjórnar til kaupa á hlutum í félaginu. 10. Önnur mál löglega fram borin. Vakin er sérstök athygli á því að framboð til stjórnar skal tilkynna skriflega til félagsstjórnar, Aðalstræti 6, Reykjavík, skemmst fimm dögum fyrir aðalfundinn. Í tilkynningunni skal greina nafn frambjóðanda, kennitölu, heimilisfang, upplýsingar um aðalstarf, önnur stjórnarstörf, menntun, reynslu og hlutafjáreign í félaginu, hagsmunatengsl við helstu viðskiptaaðila og samkeppnisaðila félagsins, sem og hluthafa sem eiga meira en 10% í félaginu. Reikningar félagsins og tillögur liggja frammi á aðalskrifstofu, hluthöfum til sýnis, viku fyrir fundinn, en verða síðan afhent ásamt fundargögnum til hluthafa á fundarstað. Stjórn Tryggingamiðstöðvarinnar hf. Aðalfundur 2007 Aðalfundur TM TRYGGINGAMIÐSTÖÐIN / Sími 515 2000 / tm@tryggingamidstodin.is / www.tryggingamidstodin.is ÍS L E N S K A S IA .I S T M I 36 48 1 03 .2 0 0 7

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.