Fréttablaðið - 07.03.2007, Blaðsíða 32
Auglýsingar sendist á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5000.
„Þegar einar dyr lokast
opnast aðrar en oft
einblínum við á lokuðu
dyrnar og tökum ekki
eftir þeim opnu.“
Íslenska alpafélagið verður
þrjátíu ára næstkomandi
sunnudag.
Í tilefni af afmælinu
stendur félagið fyrir ýmsum
viðburðum á þessu ári. Á
föstudag kemur hingað til
lands einn áhrifamesti fjall-
göngumaður af sinni kyn-
slóð, Steve House, og mun
hann dvelja hér í tæpa viku.
„Þetta er mjög stórt nafn og
merkilegur karl. Það eru
nokkrir aðilar sem ætla að
sjá um hann og sjá til þess að
hann fái að kynnast landi og
þjóð,“ segir Ágúst Kr. Stein-
arsson, stjórnarmeðlimur
Íslenska alpafélagsins.
Á mánudag heldur House
fyrirlestur og myndasýningu
um ævintýri sín auk þess
sem hann ætlar að fara í fjall-
göngur, ísklifur og margt
fleira. House hlaut Gullnu
ísöxina (Piolet d’Or) árið 2005
ásamt klifurfélaga sínum,
Vince Anderson. Verðlaunin
hlutu þeir fyrir að klifra hið
hrikalega Rupal fés á Nanga
Parbat (8.125 m) í Pakistan
án allrar utanaðkomandi
aðstoðar. Áherslur House af
fjallamennsku einkennast af
virðingu fyrir náttúrunni auk
þess sem hann leggur áherslu
á að ferðast hratt með lítinn
farangur og skilja engan
búnað eftir á fjallinu.
Að sögn Ágústs eru fimm
til sex hundruð manns skráð-
ir í alpafélagið, þar sem
áhersla er lögð á jaðarsport á
borð við ísklifur, fjallgöngur
og skíðamennsku. „Við bjóð-
um upp á námskeið fyrir
okkar félagsmenn í öllum
greinum sem falla undir
okkar áherslur. Við höldum
líka árlegar myndasýningar
þar sem við sýnum stutt-
myndir af köppum sem eru í
þessu sporti,“ segir hann.
Ágúst vill ekki meina að klif-
ur sé erfitt sport. „Rétt eins
og fólk getur labbað upp
tröppur getur fólk alltaf
fundið eitthvað til að klifra.
Þetta er fyrir alla og fólk
finnur bara það sem hentar
því.“
Elskulegur faðir minn og afi,
Bonne Bosch
fæddur 9. sept. 1935,
andaðist á heimili sínu í Ommen, Hollandi föstu-
daginn 2. mars síðastliðinn. Benni, eins og hann var
alltaf kallaður, kom til Íslands í maí 1964 og bjó hér á
landi, lengst af í Vestmannaeyjum til ársins 1979. Útför
Benna fer fram 10. mars næstkomandi í Hollandi.
Margrét Ásta Bosch og dætur.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og
amma,
Hólmfríður Sigurðardóttir
(Lilla Lúthers frá Fosshóli)
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu Akureyri 3. mars.
Útförin verður auglýst síðar.
Svava Sigurðardóttir Hilmar Sæmundsson
Sif Sigurðardóttir Rúnar Jóhannesson
Sigurður Lúther Gestsson Valgerður Kr. Guðbjörnsdóttir
Guðbjörg Birgisdóttir Guðmundur G. Norðdahl
og ömmubörn.
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Símar: 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is • runar@utfarir.is
Alhliða útfararþjónusta
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Þorbergur
Þórðarson
Ástkær móðir mín, tengdamóðir og amma,
Bára Ingibjörg Vigfúsdóttir
Stigahlíð 6, Reykjavík,
lést á Landspítalanum við Hringbraut föstudaginn
2. mars. Útför hennar verður gerð frá Grafarvogskirkju
miðvikudaginn 14. mars kl. 13.00.
Guðrún Katrín Aðalsteinsdóttir Stefán Stephenssen
Íris J. Stephensen Gunnlaugur Hans Stephensen
Aðalsteinn Stefán Stephensen
Albrecht Ehmann Birgitta M. Braun
Árni Kristjánsson Daníela Ehmann
Ingvar Ehmann
og aðrir aðstandendur.
50 ára
er í dag
Margrét
Jónsdóttir
ferðafræðingur og jógakennari
Tunguási 6, Garðabæ.
Hjartans þakkir fyrir veitta samúð og
hlýhug vegna fráfalls okkar ástkæru,
Rögnu Dagmar Sölvadóttur
Snægili 23, Akureyri.
Sérstakar þakkir fær Heimahlynning á Akureyri fyrir
ómetanlegan stuðning. Guð blessi ykkur öll.
Guðmundur Logi Óskarsson
Tinna Dögg Guðmundsdóttir Bjarki Runólfsson
Rakel Ósk Guðmundsdóttir
Andrea Rut Guðmundsdóttir
Baldvina Gunnlaugsdóttir
Anton Sölvason Margrét Sölvadóttir
Gunnlaugur Sölvason María Sölvadóttir
Egill Sölvason Guðfinna Sölvadóttir
og systkinabörn hinnar látnu.
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Jósef H. Sigurðsson
fv. útibússtjóri, Drápuhlíð 44, Reykjavík,
lést á Landspítalanum Fossvogi miðvikudaginn 28.
febrúar. Útförin verður frá Fossvogskirkju fimmtudag-
inn 8. mars kl. 15.00.
Sveinbjörg Á. Jónsdóttir
Jón Jósefsson Kristín Gísladóttir
Anna Guðrún Jósefsdóttir
Sesselja Ingibjörg Jósefsdóttir Guðjón Hilmarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður, faðir, tengdafaðir,
afi og sonur,
Ingvar Árnason
Lækjarbergi 56, Hafnarfirði,
lést sunnudaginn 4. mars. Jarðarförin verður auglýst
síðar.
Elsa Aðalsteinsdóttir
Árni Ingvarsson Helena Jensdóttir
Þórður Ingvarsson Anna María Bryde
Ingvar, Arnar, Elsa Rún, Ásgeir Bragi
Árni Ingvarsson Gerða Garðarsdóttir
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Óskar Hinrik Ásgeirsson
Byggðavegi 114, Akureyri,
lést sunnudaginn 4. mars. Útförin fer fram frá
Akureyrarkirkju mánudaginn 12. mars kl. 13.30.
Lilý Erla Adamsdóttir
Adam Ásgeir Óskarsson Hugrún Helgadóttir
Elías Örn Óskarsson Agnes Eyfjörð
Sigurður Viðar Óskarsson Ulrica Sillus
Hörður Óskarsson Erna Rós Ingvarsdóttir
Bryndís Óskarsdóttir Ólafur Aðalgeirsson
afa- og langafabörn.
15% afsláttur af öllum
legsteinum og fylgihlutum
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóð-
ir, amma, langamma og langalangamma,
Málfríður Sigurðardóttir
Stillholti 9, Akranesi,
sem andaðist á Sjúkrahúsinu á Akranesi miðvikudag-
inn 28. febrúar, verður jarðsungin frá Akraneskirkju
föstudaginn 9. mars kl. 14.
Guðmundur Ó. Guðmundsson
Sigurður Guðmundsson Hulda Guðbjörnsdóttir
Björgvin Guðmundsson Lidia Andreeva
Birgir Guðmundsson Ragnheiður Hafsteinsdóttir
Jón Þór Guðmundsson Ástríður Jónasdóttir
Barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur hlýhug og vináttu, við andlát og
útför ástkærrar móður, tengdamóður,
ömmu, langömmu og langalangömmu,
Signýjar Stefánsdóttur
Dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri.
Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki
Dvalarheimilisins Hlíðar fyrir einstaka umönnun
og hlýju.
Heiða Þórðardóttir, Jón Geir Ágústsson, Signý, Þórður,
Margrét, Þórdís, María Sigríður, Jóhann Heiðar
og fjölskyldur.
AFMÆLI