Fréttablaðið - 07.03.2007, Side 38

Fréttablaðið - 07.03.2007, Side 38
Miss Hawaiian-Tropic keppnin var haldin á Nasa á laugardaginn en þar kepptu tíu stúlkur um hylli dómnefndar. Bikiní eins keppandans vakti athygli enda skrýddist hún íslenska fánanum. „Forsætisráðuneytið hefur ekki gefið leyfi fyrir notkun fánans með þessum hætti og gerir það ekki nema með alveg sérstökum undantekningum,“ segir Þórhall- ur Vilhjálmsson í forsætisráðu- neytinu um það atvik að einn keppenda í Miss Hawaiian Tropic síðasta laugardag, Anna Nicole Grayson, kom fram í forláta-bik- iníi sem hannað var í íslenska fánanum. Engar kvartanir hafa borist til forsætisráðuneytisins en Þórhallur telur nokkuð víst að þarna hafi fánalögin verið brotin. „Þetta ætti að vera eitthvað sem fólk gæti kært til lögreglu enda varða brot á fánalögum við refsingu eða fjársektum og kemur til kasta lögreglu,“ útskýrir Þór- hallur. Ásdís Rán Gunnars- dóttir, fram- kvæmda- stjóri Hawaiian-Tropic, kom af fjöllum þegar Fréttablaðið bar undir hana þetta hugsanlega laga- brot. „Stúlkurnar fengu það hlut- verk að hanna bikiní með íslensku þema og ég hafði ekki séð þau áður en keppendurnir klæddust þeim,“ útskýrir Ásdís sem þótti það auðvitað miður ef þarna hefðu einhver lög verið brotin. „Hugmyndin kom bara af sjálfu sér og ég vissi reyndar ekki að þetta gæti brotið í bága við lög,“ segir Anna Nicole Grayson sem hannaði bikiníið og klæddist því í keppninni. Hún segir að engin þeirra sem saumuðu bikiní- ið hafi gert athugasemdir við notkunina á fánanum. Íslensk fánalög eru ákaflega ströng og skýr og eru fordæmi fyrir því að hópar og einstakling- ar hafi verið dæmdir fyrir að virða reglur um notkun á honum að vettugi. Í 12. grein fánalaga stendur meðal annars að: „Enginn má óvirða þjóðfánann, hvorki í orði né verki. Óheimilt er að nota þjóðfánann sem einkamerki ein- staklinga, félaga eða stofnana eða auðkennismerki á aðgöngumið- um, samskota- merkjum eða öðru þess hátt- ar.“ Lindsay Lohan fór út að skemmta sér í Los Angeles um helgina, aðeins nokkr- um vikum eftir að hún kom úr með- ferð. Leikkon- an unga þótti líta fremur tuskulega út, var óvenju grönn og var með risastór sólgleraugu til að hylja andlit sitt. Til Lindsay sást á hóteli í LA eftir að hún kom af skemmtistaðnum Teddy‘s sem hún stundar reglulega. „Hún leit ekki vel út en ég veit ekki hvort hún var að drekka,“ sagði einn hótelgestanna. Lindsay á djamminu E N N E M M / S ÍA / N M 2 5 5 6 2 LAAAAAA

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.