Fréttablaðið - 07.03.2007, Blaðsíða 37
Borgarleikhúsið fékk góða gesti í
liðnum mánuði en þá voru dyr
hússins opnaðar ungu fólki sem
vildi kynna sér leikhúsmiðilinn.
Forsvarsmenn leikhússins hvetja
þannig til þess að ungt fólk kynn-
ist ekki aðeins skemmtuninni
heldur læri einnig að þekkja leik-
húsið sem farartæki fyrir skoðan-
ir, tilfinningar og baráttumál.
Nemendur þriggja skólastiga
tóku þátt í verkefninu og komu
hópar úr Háteigsskóla, Borgar-
holtsskóla og leiklistardeild Lista-
háskólans í heimsókn og kynntust
starfsemi hússins, og ræddu þar
við listamenn um leikhúsið, mögu-
leika þess, áhrifamátt og fjöl-
breytileika. Eftir þessa kynningu
unnu hóparnir þrír frumsamin
verkefni sem sýnd verða á Litla
sviði Borgarleikhússins í kvöld kl.
20.
Í tengslum við verkefnið var
einnig efnt til örleikritunarsam-
keppni fyrir ung leikskáld. Þátt-
takendur yngri en 25 ára eru
hvattir til þess að skila inn verki
eða hugmynd fyrir kl. 17 í dag.
Verkin mega ekki vera lengri en
5.000 slög eða um það bil tvær
síður. Verkunum skal skilað í fjór-
um eintökum merktum höfundin-
um, aldri, skóla, heimilisfangi og
síma.
Milli kl. 13-17 verður tekið á
móti hugmyndum í forsal leik-
hússins og mun dómnefndin sitja
við lestur í allan dag. Sá heppni
hlýtur að launum árskort fyrir tvo
í leikhúsið. Úrslitin verða kunn-
gjörð í lok dagskrárinnar.
Þess má einnig geta að Leikfé-
lag Reykjavíkur býður börnum, 12
ára og yngri, frítt á leiksýningar,
aðrar en barnasýningar og söng-
leiki, séu börnin í fylgd forráða-
manna.
Ungt fólk á listabraut
Á morgun verður opnuð
sýning á málverkum og
vatnslitamyndum fær-
eyska myndlistarmannsins
Zachariasar Heinesen í
Hafnarborg. Verða þar uppi
yfir þrjátíu verk og eru þau
mörg til sölu.
Zacharias er kunnur hér á landi
af verkum sínum en hann hefur
sýnt hér áður bæði á samsýning-
um færeyskra listmanna og á
sérsýningum, síðast í Gallerí
Borg 1993. Hann átti verk á sam-
sýningum hér síðast 2005 í Hafn-
arborg, en þar áður 1998, 1983 og
1961. Zacharias Heinesen á sér
margar hliðar sem myndlistar-
maður. Hann teiknar og málar
olíu- og vatnslitamálverk ásamt
því að gera bókaskreytingar, litó-
grafíur, tréristur og klippimynd-
ir. Zacharias hefur haldið fjölda
einkasýninga og tekið þátt í
mörgum samsýningum. Verk
eftir hann eru í eigu erlendra og
íslenskra safna. Hann hefur einn-
ig skreytt opinberar stofnanir og
verk hans farið á færeysk frí-
merki og opinberar byggingar.
Zacharias Heinesen fæddist
1936 í Þórshöfn í Færeyjum og er
sonur rithöfundarins William
Heinesen. Hann nam við Mynd-
listarskóla Reykjavíkur hjá Sig-
urði Sigurðarsyni í eitt ár, en
stundaði síðan nám við Listahá-
skólann í Kaupmannahöfn frá
1959 til 1963. Hann kom sér upp
vinnustofu í Þórshöfn þaðan sem
sér vítt yfir bæinn og hefur
útsýnið veitt honum endalaus
viðfangsefni. Árið 1986 hlaut
Zacharias Heinesen heiðursverð-
laun Henry Heerup og frímerki
skreytt myndum eftir hann voru
gefin út í Færeyjum árið 2001.
Zacharias Heinesen dvaldi í gisti-
vinnustofu Hafnarborgar árið
2005.
Sýningin ber heitið ZH06 og
var sett upp í Listahöllinni í Þórs-
höfn í fyrra. Henni fylgir falleg
sýningarskrá sem geymir grein-
arstúfa um listamanninn eftir
þau Inger Smærup Sörensen,
Gunnar Hoydal, Bárð Jakúpsson,
Bent Ivre og Kinnu Poulsen. Þar
eru ágætar lýsingar á eigindum
Zachariasar, áhrifavöldum hans
og þroska. Hann verður að telja
einn merkilegasta málara frænda
okkar nú um stundir og ættu
áhugamenn um myndlist ekki að
láta þessa sýningu framhjá sér
fara.
Sýningin er opin alla daga
nema þriðjudaga frá kl. 11 til 17
og á fimmtudögum er opið til kl.
21. Síðasti sýningardagur er
sunnudagur 9. apríl. Frítt er í
hafnfirsk söfn í boði Glitnis.
„DAUÐUR, SKÍTUGUR, TÓMUR“
DAGUR VONAR