Fréttablaðið - 07.03.2007, Blaðsíða 21
Samkvæmt áreiðanleikarann-
sókn breska tryggingafyrirtæk-
isins Warranty Direct er Skoda
bestu kaupin í notuðum bílum.
Jeep kemur hins vegar verst
út.
Warranty Direct selur ábyrgðar-
tryggingar fyrir allt að tíu ára
gamla bíla. Þeir safna saman töl-
fræði yfir hversu oft bílar á
þeirra skrá bila, og hvað kostar
að gera við þá. Þúsundir bíla eru á
skrá fyrirtækisins og árlega fær
það bótakröfur upp á milljarða
króna.
Á síðunni www.reliabilityind-
ex.co.uk er listi yfir hversu áreið-
anlegir framleiðend-
ur og einstakir
bílar eru þegar
kemur að bil-
anatíðni og
viðgerðar-
kostnaði.
Áreiðanleiki bíla
er reiknaður út
frá því hversu stór
prósenta eigenda setti fram bóta-
kröfu og hversu há krafan var.
Sú bílategund sem best kemur
út er Skoda. Uppgangur Tékk-
anna (ætti kannski að segja Þjóð-
verjanna þar sem Skoda er í eigu
Volkswagen) virðist engan endi
ætla að taka og nú bæta þeir titl-
inum „áreiðanlegasti notaði bíll-
inn“ í safnið. Fast á hæla Skoda
fylgir Mazda, en fyrirtækið hefur
í áratugi framleitt bíla sem end-
ast og endast. Athygli vekur að
sportbíllinn Mazda MX-5 er einn
af áreiðanlegustu bílunum en
tveggja sæta sportbíll sem sjald-
an bilar er eins og gott Evróvi-
sjón-lag. Afar sjaldgæft.
Í þriðja sæti er Honda, en
Honda Accord er áreiðanlegasti
notaði bíllinn samkvæmt listan-
um. Svo kemur Suzuki, síðan Ford
og í sjötta sæti situr Lexus, sem
lengi vel vermdi toppsætið (IS200
er og hefur alltaf verið afar áreið-
anlegur bíll).
Porsche kemur mjög illa út á
listanum. Ekki vegna þess að þeir
bili oft heldur vegna þess hversu
dýrt er að gera við þá. Sá bíll er
kemur hins vegar verst út er
Jeep. Bílar frá fyrirtækinu bila
oft og er viðgerðarkostnaðurinn
mikill. Þar fór ameríski draumur-
inn fyrir lítið.
Áreiðanleiki notaðra bíla
Stæsta bloggsamfélagið á Íslandi
Viltu sei’eikkað?
Ný útlit · Myndaalbúm · Símablogg
Bloggaðu með
símanum!
Hvar sem er og
hvenær sem er!
Vasta hux’eikkað?
Ný útlit · Myndaalbúm · Símablogg