Fréttablaðið - 29.03.2007, Page 24
hagur heimilanna
Haraldur Sturluson, trommari Úlpu,
kann að spara rafmagn.
Eyðilagði bílinn á leiðinni á bílasölu
Þrátt fyrir að gjaldfærslur
séu rafrænar lifa seðil- og
útskriftargjöld enn góðu
lífi, meðal annars hjá Hive.
Formaður Neytendasam-
takanna segir þetta for-
kastanleg vinnubrögð og að
samtökin muni skoða þetta
nánar.
Neytendur losna ekki endilega við
að greiða útskriftar- og seðilgjöld
þó að gjaldfærslan sé rafræn og
ekkert þurfi að skrifa út. Fjöldi
fyrirtækja rukkar viðskiptavini
sína enn um gjöld vegna útprent-
unar og innheimtu.
Viðskiptavinur Hive hafði sam-
band við Fréttablaðið og kvart-
aði yfir því að þurfa að greiða 199
króna útskriftargjald af netþjón-
ustureikningi þrátt fyrir að upp-
hæðin væri skuldfærð rafrænt á
greiðslukort. Honum þótti furðu-
legt að þurfa að greiða þetta gjald
þegar viðskiptin eru algjörlega
pappírslaus.
Arnþór Halldórsson, fram-
kvæmdastjóri Hive, segir að með
gjaldinu sé verið að innheimta
fyrir beinan kostnað sem hlýst af
reikningnum hjá bankakerfinu. Þó
að áskriftargjaldið sé skuldfært á
greiðslukort þá innheimti banka-
kerfið samt sem áður gjöld fyrir
það.
„Þetta er alveg eins og með alla
greiðsluseðla. Öll fyrirtæki sem
senda út reikninga gera þetta,“
segir hann. „Þetta er sú leið sem
við förum til þess að koma til móts
við þær verðhækkanir sem hafa
orðið. Frekar en að hækka taxtann
gerum við verðskrána okkar gegn-
sæja.“
Jóhannes Gunnarsson, formað-
ur Neytendasamtakanna, segir
með ólíkindum að rukkað sé fyrir
útskrifargjald í svona tilviki.
„Hér er gengið skrefinu lengra
í ósvífni.“ Hann segir að Neyt-
endasamtökin, sem hafa gagn-
rýnt seðilgjöld, muni skoða reikn-
inga Hive nánar. „Ég lít svo á að
þetta sé eðlilegur rekstrarkostn-
aður og út í hött að setja út í verð-
lag hjá viðskiptavininum. Með því
að innheimta svona lagað er alltaf
hægt að auka innheimtur af neyt-
endum.“
Hjá Símanum og Vodafone
fengust þær upplýsingar að ef
viðskiptavinir óska eftir netvið-
skiptum, þar sem skuldfært er á
greiðslukort, sé ekki rukkað út-
skriftargjald.
Seðilgjald rukkað þótt
enginn sé seðillinn
-5kr.
Í dag bjóðum við 5 kr.
afslátt af eldsneyti
um allt land!