Fréttablaðið - 29.03.2007, Qupperneq 27
FL Group hefur færst úr iðn-
aðarvísitölu Kauphallarinnar
(ICEX20) yfir í vísitölu fjármála-
fyrirtækja (ICEX40). Félagið er
orðið hreint fjárfestingafélag
eftir að það seldi Icelandair og
Sterling á fjórða ársfjórðungi í
fyrra.
Í Vegvísi Landsbankans er bent
á að vægi fjármálafyrirtækja í Að-
allista Kauphallarinnar aukist þar
með úr 69 prósentum í 77 prósent.
Fyrir færslu FL Group var iðnað-
arvísitalan tólf prósent af heildar-
vægi Aðallistans en nemur aðeins
fjórum prósentum eftir breyting-
una.
FL færist um flokk
Fjármálafyrirtæki vega 77% af Aðallista Kauphallar.
Vísitala framleiðslukostnaðar
hækkaði um 1,3 prósentustig á
milli ára í síðasta mánuði, sam-
kvæmt útreikningum Vinnumála-
stofnunar Bandaríkjanna. Til sam-
anburðar dróst framleiðslukostn-
aður saman um 0,6 prósent á milli
ára í janúar. Hækkunin er meiri
en búist var við.
Helsta ástæða hækkunarinn-
ar eru vöruverðshækkanir á mat-
vælum, orkuverði og leikföngum.
Greinendur segir þessar upplýs-
ingar sýna að sé til staðar verð-
bólguþrýstingur í bandarísku
efnahagslífi og þörf á frekari
stýrivaxtahækkunum til að knýja
verðbólguna niður.
Aukinn þrýst-
ingur í BNA
Hagnaður bresku verslanakeðj-
unnar Woolworths nam einung-
is 16 milljónum punda, jafnvirði
tæplega 2,1 milljarðs íslenskra
króna, á síðasta ári. Breskir fjöl-
miðlar segja þetta ekki góðar
fréttir fyrir hluthafa fyrirtæk-
isins enda dróst hagnaðurinn
saman um 73 prósent á milli ára.
Afkoma Woolworths hefur aldrei
verið verri og er undir vænting-
um greinenda.
Dagblaðið The Scotsman hefur
eftir Trevor Bish Jones, forstjóra
Woolworths, að staðan sé fjarri
því að vera ákjósanleg. Í uppgjöri
verslanakeðjunnar kemur hins
vegar fram að hagræðingaað-
gerðir keðjunnar og fjárfesting-
ar muni skila sér í betri afkomu á
árinu.
Versta ár
Woolworths
Greiningardeild Landsbankans
mælir með kaupum í Kaupþingi.
Samkvæmt nýjasta verðmati
metur hún hlutinn í Kaupþingi á
1.058 krónur og sér markgengi
eftir tólf mánuði í 1.170 krónum
á hlut. Þar kemur meðal annars
fram að árið hafi farið vel af stað
hjá Kaupþingi en rekstur nýrra
eininga í dótturfélögum gangi
betur en reiknað var með. Búist
er við miklum tekjuvexti hjá FIH
á árunum 2008 og 2009. Þá er geta
Kaupþings til ytri vaxtar mikil og
bendir Lansbankinn á að fjárhags-
legur styrkleiki tvíeykisins Kaup-
þings og Existu, stærsta hluthaf-
ans, gefi bankanum færi á að láta
mikið til sín taka við þær hrær-
ingar sem munu verða á norræn-
um fjármálamarkaði.
Landsbankinn mæl-
ir með Kaupþingi Kaupþing banki hagnast um sem nemur um fjórum milljörðum
króna við sölu á eignarhlut sínum
í Eik fasteignafélagi hf.
Bankinn hefur gengið til samn-
inga við Eikarhald ehf. um sölu á
öllu hlutafé í Eik, en gengið verð-
ur frá viðskiptunum næsta mið-
vikudag, samkvæmt tilkynningu
til Kauphallar. Eikarhald er í eigu
Baugs Group sem á tæp 23 pró-
sent, FL Group sem á 49 prósent,
Fjárfestingafélagsins Primus sem
á rúm 10 prósent og Saxbyggs sem
á rúm 18 prósent.
Velta Eikar fasteignafélags
var tæplega 1,2 milljarðar króna
í fyrra og hagnaður fyrir skatta
nam 582 milljónum króna.
Eiksalan gefur
fjóra milljarða
Nordica hotel
Su›urlandsbraut 2
S. 444 5050
VOX Restaurant
Opi› flri.- lau.
18.30 - 22.30
VOX Bistro
Opi› alla vikuna
11.30 - 22.30
www.vox.is
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
2
6
9
11
Tilbo› á gistingu á www.icehotels.is
Páskablús
Blúshátí› á Nordica hotel 3.-5. apríl
(sjá www.blues.is)
Páskabrunch
5., 6., 8. og 9. apríl kl. 11.30-14.00
Happy Hour alla daga á barnum kl. 17-19
MATSE‹ILL 1
Sesarsalat
Romaine salat, kjúklingur, brau›kru›ur,
parmesanostur
Lambakótelettur
Grilla› grænmeti, kartöflusalat
2.750 kr.
MATSE‹ILL 2
Andalæri
Sulta› me› appelsínugljáa, klettasalat
Hl‡ri
Bygg, rau›vínssósa, rótargrænmeti
2.700 kr.
MATSE‹ILL 3
Norrænn tapas
Rækjur, birkireyktur lax, síld, kavíar, rúgbrau›
Svínalundir
Gratin me› nor›lenskum grá›aosti, salat
3.150 kr.
3.-5. apríl
Girnileg
páska-
og blúshátí›
Bor›apantanir í síma 444 5050.