Tíminn - 20.07.1980, Síða 16
24
Sunnudagur 20. júll 1980
★ ★ ★ ★ ★ Frábœr - ★ ★ ★ ★ Eiguleg - ★ ★ ★ Ahegrileg - ★ ★ Sœmileg - .★ Afleit
Xanadu
— Soundtrack
Jet Rec./Jet
LX 526-
★ ★
„Xanadu” nefnist kvikmynd
sem nýlega hefur veriö gerö og
hefur tónlistin I myndinni nú
veriö gefin út á samnefndri
plötu. Höfundar laganna á plöt-
unni eru þeir John Farrar, vel-
þekktur tónlistarmaöur og Jeff
Lynne, forsprakki Electric
Light Orchestra, eöa ELO eins
og hljómsveitin er nefnd I dag-
legu tali.
Segja má aö „Xanadu” skipt-
ist i tvennt, þvi aö fyrri plötu-
hliöin lýtur i einu og öllu vilja
John Farrar, sem beitir fyrir
sig söngfuglum eins og Oliviu
Newton-John og Cliff Richard (i
einu lagi), en á seinni hliöinni er
þaö Jeff Lynne og ELO sem láta
ljós sitt skina. Sem fyrr segir er
þaö Olivia Newton-John sem er i
aöalsönghlutverki á fyrri plötu-
hliöinni og syngur hún reyndar
aöeins eitt lag á ELO hliöinni,
þ.e.a.s. titillagiö „Xanadu”. Af
þeim sem raula meö Oliviu á
plötuhliöinni koma The Tubes
og söngvari þeirra John „Fee”
Waybill langbest út og skjóta
satt aö segja Olivíu ref fyrir
rass. A seinni plötuhliöinni eru
lög eins og „I’m alive” og „All
over the world” meö ELO og má
segja aö útkoman sé hálf þreytt
eins og reyndar platan öll.
„Xanadu” er sem sagt hálfrugl-
uö plata og sjálf kvikmyndin
viröist eftir henni aö dæma ekki
upp á marga fiskana.
P.S.
Rétt er og skylt aö benda á
einn góöan hlut viö þess i£‘tu,
en hann er sá, aö hún var (3fin
út samtfmis á Islandi og annars
staöar IEvrópu a.m.k. og er þaö
skref í rétta átt, þó aö platan
sjálf sé e.t.v. ekki merkileg.
—ESE
Rolling Stones
— Emotional
Rescue
RS Rec./Cun 39111
Þá er enn einu sinni komin ný
Rolling Stones plata á markaö-
inn og eins og svo oft áöur þá
sýnist sitt hverjum um ágætiö.
Hvaö sem þeim vangaveltum
liöur er Ijóst aö Rolling Stones
sýna enn sem komiö er, á sér
engin ellimörk, en hljómsveitin
er sem kunnugt er komin fast aö
tvitugu.
„Emotional Rescue” eins
og nýja platan nefnist hefur aö
geyma 10 lög, öll eftir Jagger og
Richards og er greinilegt aö
þessari plötu er ætlaö aö taka
upp þráöinn þar sem frá var
horfiö á „Some Girls”, siöustu
plötu Stones. Platan hefst á lag-
inu „Dance”,. sem minnir einna
helst á „Shattered” af „Some
Girls”, en I þessu lagi syngur
Mick Jagger m.a. „Get up, get
out into something new”. Ekki
veröur þó sagt aö platan færi
manni nokkuö nýtt og reyndar
fátt sem kemur á óvart, aö titil-
laginu undanskildu, þar sem
Jagger bregöur fyrir sig söng i
anda Gibb bræöra. Af lögunum
á fyrri plötuhliö vekur siöasta
lagiö „Indian Girl” hvaö mesta
athygli mlna. Hin þrjú lögin
„Summer Romance”, „Send it
to me” og „Let me go” standa
hinum fyrrnefndu nokkuö aö
baki. „Summer Romance” er
reyndar ekki ósvipaö „Respect-
able” af „Some Girls”, „Send it
to me” er trúlega fyrsta Stones
reggae lagiö sem eitthvaö kveö-
ur aö og þvi merkilegt fyrir þær
sakir og „Let me go” er i
gamalkunnum Stones stil.
A plötuhliö 2 eru þaö einna
helst lögin „Emotional Rescue”
og „She’s so cold” sem vekja
athygli, en best gæti ég trúaö
þvi aö „Emotional Rescue” ætti
eftir aö spjara sig.
Þvl hefur veriö haldiö nokkuö
fram aö „Enotional Rescue”
endurspegli nokkuö þá tog-
streitusem sögö er rikja á milli
Mick Jagger og Keith Richard
og hefur þvi reyndar veriö hald-
iöfram aö þeir hafi fengiö aö út-
setja sín fimm lögin hvor. Ekki
veit ég hvaö hæft er I þessu, en
Stones aödáendur mættu gjam-
an hafa þetta I huga er þeir
hlusta á plötuna.
„Emotional Rescue” er sem
sagt ekkert tlmamótaverk aö
minum dómi, en þó fyllilega
þess viröi aö beöiö hafi veriö
eftir henni I eitt og hálft ár.
Rolling Stones eru nefnilega
engum likir og ekki svikur Mick
Jagger frekar en fyrri daginn.
—ESE
Roxy Music
— Flesh and
Blood
Polydor/POLH 002
★ ★ ★ ★
Ein framsæknasta rokk-
hljómsveitin sem fram kom f
upphafi sföasta áratugar, var
án alls efa breska hljómsveitin
Rowy Music. Fyrstu þrjár
plötur hljómsveitarinnar voru
ailar frábærar og var þaö haft
fyrir satt aö hljómsveitin væri
a.m.k. 3-4árumá undan samtiö
sinni, sem siöar átti svo eftir aö
koma I Ijós. En dýröardagarnir
voru ekki langir, þvi aö eftir
innbyröis átök innan hljóm-
sveitarinnar fór aö halla undan
fæti og hefur Roxy Music sföan
ekki veriö svipur hjá sjón — þar
til nú aö eitthvaö viröist vera
fariö aö lifna yfir henni.
Nýjasta plata Roxy Music
nefnist „Flesh and Blood” og
rauk hún þegar eftir útkomuna I
efsta sæti breska vinsældarlist-
ans og væri þar e.t.v. enn, ef
Rolling Stones heföu ekki tekiö
upp á þvf aö senda frá sér nýja
plötu.
Þaö sem vekur mesta athygli
viö Roxy Music f dag er aö aö-
eins þrir af gömlu meölimunum
eru eftir, þ.e.a.s. Brian Ferry,
Phil Mazanera og Andy
MacKay. Aö ööru leyti er hljóm-
sveitin byggö upp af aöstoöar-
hljóöfæraleikurum, m.a. leika
þrfr trommuleikarar á plötunni
og sem fyrr hefur hljómsveitin
engum föstum bassaleikara á
aö skipa, nokkuö sem einkennt
hefur hana frá upphafi. Eins og
menn muna e.t.v. þá brá fyrir
nokkrum all sæmilegum diskó-
köflum á siöustu plötu Roxy
Music, „Manifesto” og nægir
þar aö nefna lögin „Angel
Eyes” og „Dance away”. Ekki
er hægt aö segja aö diskóþráö-
urinn sé tekinn upp aö nýju meö
þessari plötu og er þaö vel aö
minu mati. Þó er ekki hægt aö
segja aö „Flesh and Blood” sé
meö öllu laus viö diskó, þó aö
þau áhrif séu hverfandi aö
þessu sinni. 10 lög eru á plötunni
og aö venju á Bryan Ferry
obbann af þeim, eöa 8, þar af
eru 3 samin I félagi viö Maz-
anera. Eitt lag er eftir þá félaga
Cropper og Pickett, sem áöur
hafa komiö viö sögu Roxy Music
og aölokum má nefna, aö á plöt-
unni er skemmtileg útsetning á
lagi Clark, Crosby og McGuinn
The Byrds, „Eight Miles High”.
Sem gamall Roxy Music aödá-
andi get ég vel sætt mig viö
„Flesh and Blood”, a.m.k. er
platan stórt skref fram á viö frá
„Manifesto”, þó aö hér sé þó
ekki um neitt meistarastykki aö
ræöa.
—ESE
-
Rafn Sigurbjörnsson I stúdióinu aö Rauöalæk 32
Hlusthf. fœr
8 rása tœki
Nýjasta stúdióiö I Reykjavík,
Hlust h.f. aö Rauöalæk 32 er nú
aö fá 8 rása, 1/2 tommu Teac
upptökutæki og sagöi Rafn Sig-
urbjörnsson, einn eigenda
stúdiósins, aö þetta tæki myndi
bæta alla aöstööu i stúdióinu.
Eins og menn rekur e.t.v.
minni til, þá birtist viötal viö
Rafn I sunnudagsblaöi Timans
fyrir nokkrum mánuöum,
skömmu eftir aö stúdióiö opnaöi
og sagöi hann þá aö stúdióiö
væri fyrst og fremst hugsaö fyr-
ir demo upptökur, en nú hafa
þessi viöhorf sem sagt breyst
og Hlustarmönnum ekkert aö
vanbúnaöi aö hljóörita efni meö
útgáfu i huga.
1 samtali viö Timann nú fyrir
helgina sagöi Rafn aö rekstur
stúdiósins heföi gengiö mjög vel
aö undanförnu og svo virtist
sem aö fjöldinn allur af fólki
ætti nóg af góöu efni I fórum sln-
um. Aöspuröur um hvort eitt-
hvaö yröi gefiö út á næstunni,
sagöi Rafn aö veriö gæti aö hann
drifi I aö gefa út eitthvaö af lög-
um sinum.
Þess má aö lokum geta aö
stúdfótiminn hjá Hlust h.f. er á
mjög viöráöanlegu veröi, eöa
kr. 6200 hver tími. —ESE
Sprengi-
sandur
kominn i verslanir
„Sprengisandur” heitir ný
plata sem komin er út meö þeim
Helgu Möller, Jóhanni Helga-
syni og Gunnari Þóröarsyni.
Platan er gefin út af nýstofnuöu
hljómplötufyrirtæki, GTH.
A plötunni eru 9 lög, þ.a.m.
lagiö „A Sprengisandi”, eftir
Sigvalda Kaldalóns, og „Sveitin
milli sanda” eftir Magnús Blön-
dal. Tvö lög eru eftir Jóhann
Helgason, eitt eftir Egil Eö-
varösson, en önnur eru eftir
Gunnar Þóröarson.
Upptökur fóru fram ýmist i
RED BUS — STUDIO London
eöa 1 HLJÓÐRITA Hafnarfiröi i
april/mai og júni siöastliöinn.
Upptökumaöur i London var
GEOFF CALVER en hann hefur
eins og kunnugt er unnið áður
meö Gunnari ma. aö gerö siöari
Visnaplötunnar og einnig viö
upptökur á metsöluplötunni frá I
fyrra LJÚFA LÍF. GEOFF er
þekktur upptökumaöur i Bret-
landi giftur söngkonunni Shady
Owens. I Hljóðrita voru upp-
tökumenn þeir Gunnar Smári
Helgason og Baldur Már Arn-
grfmsson. Af hljóöfæraleikurum
má nefna Richard Burgess
trommur, Andy Pask bassi,
Tony Sadler gitar, Chris Heaton
og Chris Pareon hljómborö,
Derek Watkins flugelhorn, Ron
Asprey saxófónn' og Lois
Chardin ásláttarhljóöfæri. Þá
kemur og fram strengjasveit
David Katz. Aö sjálfsögöu kem-
ur Gunnar fram sjálfur á plöt-
unni sem gftarleikari en hann
hefurásamt Tony Sadler annast
allar útsendingar.
Þess má aö lokum geta aö 10.
Helga Möller
ágúst næstkomandi fara þau
Helga, Jóhann og Gunnar utan
til Póllands og taka þar þátt i
SÖNGVAKEPPNI SJÓN-
VARPSSTÖÐVA i Austur-
Evrópu.