Fréttablaðið - 24.05.2007, Síða 12
Skerpt verður á viðbragðsáætlun fangelsis-
ins á Litla-Hrauni og brunaæfingar verða í fastari
skorðum en þær eru nú. Þetta var ákveðið í heimsókn
Björns Karlssonar brunamálastjóra í fangelsið í gær.
Tilefni heimsóknarinnar var tímaritsgrein sem fangi
skrifaði um brunavarnir á Litla-Hrauni.
„Ég fór um allt fangelsið í fylgd eldvarnareftirlits-
manns frá Eldvarnareftirliti Árnessýslu og ræddi við
forstöðumann fangelsisins, trúnaðarmann fanga og
slökkviliðsstjóra Brunavarna Árnessýslu. Allir aðilar
voru sammála um að þarna ríkti ekki neitt neyðar-
ástand,“ segir Björn. Hann segir að viðbragðsáætlun
fangelsisins, sem gefin er út af Fangelsismálastofnun
og Ríkislögreglustjóra, hafi verið skoðuð og í kjölfarið
ákveðið að skerpa á henni. Eins hafi verið rætt um að
koma á reglulegri æfingum.
„Það er mikil öryggismenning í fangelsinu og allir
sem ég ræddi við voru afar meðvitaðir um þessi mál. Í
fangelsinu vinna nokkrir slökkviliðsmenn sem fanga-
verðir og næstæðsti maðurinn á staðnum hefur verið í
slökkviliðinu í tvo áratugi,“ segir Björn.
Valtýr Sigurðsson, forstjóri Fangelsismálastofnun-
ar, telur að öryggi sé ekki ábótavant í fangelsum lands-
ins en vissulega sé alltaf tilefni til að skoða hvort gera
megi betur. „Öll okkar starfsemi er tekin út af eldvarn-
areftirlitinu og fangelsismálastofnun og Ríkislögreglu-
stjóri gefa reglulega út viðbragðsáætlanir fyrir fang-
elsin sem eru svo æfðar reglulega,“ segir Valtýr.
P
IP
A
R
•
S
ÍA
•
71
00
6
Laugavegur - Smáralind - Kringlan
Stúdentastjarnan og Rósin með ártalinu 2007
eru fallegar stúdentagjafir sem fást hjá okkur.
www.jonogoskar.is
Seltjarnarnes varð í gær fyrsta ljósleið-
aravædda sveitarfélag veraldar. „Við vitum að
minnsta kosti ekki betur,“ segir Jónmundur Guð-
marsson, bæjarstjóri Seltjarnarness. „Við erum
aðilar að alþjóðasamtökum borga og sveitarfélaga
sem hafa þetta að markmiði, og okkur skilst að við
séum fyrst.“
Gagnaveita Reykjavíkur, dótturfélag Orkuveit-
unnar og Seltjarnarnesbær, boðuðu til blaðamanna-
fundar í gær þar sem tíðindin voru kynnt.
Ljósleiðari hefur nú verið tengdur í nær öll hús
bæjarins og segist Jónmundur búast við því að í
kringum 90 prósent heimila í bænum verði farin að
nýta sér tengingarnar innan skamms. „Við höfum
vísbendingu um að mjög stór hluti bæjarbúa muni
nota sér þessa tengingu. Í könnun sem gerð var í
tengslum við verkefnið kom fram að rúm 90 prósent
bæjarbúa töldu mjög líklegt að þau myndu nýta sér
ljósleiðarann. Það vakti athygli hjá orkuveitunni á
þeim tíma, því þeir höfðu gert sér talsvert hógvær-
ari væntingar um notkun á kerfinu.“
Hægt er að fá allt íslenskt sjónvarpsefni flutt um
ljósleiðarann, sem og fjölda erlendra sjónvarps-
stöðva og hraðvirka internettengingu. Áformað er
að Reykjavík og fleiri sveitarfélög á Suður- og
Vesturlandi muni einnig verða ljósleiðaravædd á
næstu misserum.
Nesið ljósleiðaravætt fyrst í heimi
Sjálfsmorðsárásar-
maðurinn, sem sprengdi sjálfan
sig í loft upp í fjölfarinni
verslunarmiðstöð í Ankara á
mánudag, hét Guven Akkus, 28
ára gamall maður sem hafði setið
tvö ár í fangelsi. Sex manns létu
lífið og tugir slösuðust.
Ráðamenn í Tyrklandi gáfu í
skyn að aðskilnaðarsamtök kúrda
stæðu að baki árásinni.
Sprengingin varð á háannatíma
og var mjög öflug. Rúður
brotnuðu bæði í verslunarmið-
stöðinni og nærliggjandi húsum
og húsgögn og brak þeyttust út á
götu.
Sjálfsmorðsárás
á háannatíma