Fréttablaðið - 24.05.2007, Side 31
Sannleikurinn sést betur í þrívídd segir Krist-
leifur Daðason tölvunarfræðingur, sem fékk
gleraugun sín að gjöf frá vini.
„Hann Kristján Már vinur minn keypti þessi gleraugu
á 150 kall í Góða hirðinum og ætlaði sér að nota þau
sem svona flipp-partý gleraugu, en síðar sama dag
hitti hann mig, fann það í hjarta sér að ég yrði að eign-
ast þau og gaf mér því gleraugun í fullri einlægni,“
segir Kristleifur.
„Ég ljómaði allur og þáði þau með þökkum. Setti
gleraugun á mig og komst að því að styrkleiki glersins
var akkúrat sá sem ég þarf, sem sagt happagleraugu!
Svo eru þau stór og mikil og geta þannig ekki klikkað.
Reyndar er styrkurinn aðeins of mikill þannig að öll
þrívídd verður ýktari og þannig verða þau happagler-
augu sannleikans. Sannleikurinn sést betur í þrívídd,“
segir Kristleifur og bætir því við að fyrst hafi hann
verið svolítið meðvitaður með gleraugun á nefinu.
„Ég varð frekar nojaður og gerði fólki upp hugsanir.
Til dæmis; „Hvaða athyglissjúka listaháskólafrík er
þetta... hvað heldur hann að hann sé...“ og svo fram-
vegis, en fljótlega vandist ég gleraugunum og hætti að
hugsa svona. Þar fyrir utan þá get ég greint kjarnann
frá hisminu með happagleraugum sannleikans. Fólk
sem ég fíla hefur alltaf á orði hvað þetta séu falleg
gleraugu á meðan hinir fussa,“ segir Kristleifur að
lokum.
Happagleraugu sannleikans
Age Defying Deep Cleansing Gentle Exfoliating Herbal Cleansing
ANDLITSKLÚTAR
Andlitshreinsiklútar sem innihalda
blöndu af lækningajurtum og vítamínum
til þess að hreinsa, fjarlægja farða
og vernda húðina.
B5 próvítamín verndar og gefur húðinni
raka, kamillukjarni róar hana. Húðin verður
fersk og heilbrigð útlits. Ofnæmisprófaðir.
Andlitshreinsiklútar sem innihalda sérstaka
blöndu af andoxunarefnum til þess að hægja á
öldrun húðarinnar:Coensím Q10, beta glucan,
vínberjakjarnaolía, kjarni úr grænu te og E vítamín.
Sæt möndluolía og B5 próvítamín gefa húðinni
raka og vernda hana. Klútarnir eru mildir en áhrifaríkir
og henta sérstaklega til hreinsunar á augnfarða.
Mildir en áhrifaríkir andlitsdjúphreinsiklútar sem
fjarlægja andlitsfarða og eru góðir fyrir húðina.
Náttúrulegir ávaxtakjarnar (AHA) djúphreinsa
húðina, B5 próvítamín vernda
hana og næra og Kamillukjarni róar húðina.
Klútarnir innihalda enga olíu og stífla
þar af leiðandi ekki svitaholurnar. Ofnæmisprófaðir.
Frískandi skrúbbandlitshreinsiklútar.
Klútarnir fjarlægja dauðar húðfrumur og hreinsa
húðina án þess að þurrka hana. Kjarni úr greipávöxtum
frískar upp á húðina og kjarni úr sítrónugrasi tónar og
örvar húðina. Klútarnir innihalda einnig B5 próvítamín
og kamillukjarna sem gefa húðinni raka og róa hana.
Húðsjúkdómafræðilega prófaðar.
Tjaldaðu með fjölskyldunni á 27 tjaldsvæðum
í allt sumar fyrir aðeins 9.900kr
Frekari upplýsingar um Útilegukortið fást á netinu á
www.utilegukortid.is.
Þú færð Útilegukortið á www.utilegukortid.is, helstu
útivistarverslunum og á sölustöðum N1 um allt land.
N
NI
R
AP
A
KS
AF
O
TS
A
G
N IS
Ý L
G
U
A
www.utilegukortid.is
utilegukor
tid.is
www.camp
ingcard.is
Útilegukortið er komið!