Fréttablaðið - 24.05.2007, Blaðsíða 54
Auglýsingar sendist á
auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5000.
Eiginmaður minn, faðir og tengdafaðir,
Karl Magnússon
Tröð, Fróðárhreppi,
lést laugardaginn 19. maí á St. Franciskusspítalanum
í Stykkishólmi. Útförin fer fram frá Ólafsvíkurkirkju
föstudaginn 25. maí kl. 13.30.
Hallfríður Eiðsdóttir
Hrafnhildur Karlsdóttir
Hörður Karlsson Sigurborg Leifsdóttir
Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma og
langamma,
Guðný Egilsdóttir
Sólvangi, Hafnarfirði,
andaðist á Hjúkrunarheimilinu Sólvangi þriðjudaginn
22. maí. Útförin verður auglýst síðar.
Jón Birgir Þórólfsson Brynja Einarsdóttir
Einar Jónsson Eygló Karlsdóttir
Guðný Agla Jónsdóttir Ásmundur Ívarsson
Jóhann Gunnar Jónsson Silja Þórðardóttir
og langömmubörn.
Móðir okkar og tengdamóðir,
Agatha Sesselja
Sigurðardóttir
ljósmóðir,
verður jarðsungin frá Fella- og Hólakirkju föstudaginn
25. maí kl. 15.00.
Jóhanna Baldursdóttir Jóhann Kröyer
Stefanía Ellý Baldursdóttir Guðni Karl Brynjólfsson
Sigrún Baldursdóttir
Elskulegur frændi,
Ólafur Ó. Guðmundsson
sjómaður, Hrafnistu, Laugarási,
lést sunnudaginn 13. maí 2007. Útförin hefur farið
fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Fyrir hönd aðstandenda.
Sigurður Óli Bjarnason
Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur
Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar
Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is
Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Bryndís ValbjarnardóttirSverrir Einarsson
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför
Hermann Jónasson Geir Harðarson
MOSAIK
„Ég gæti hafa sagt þetta, en
þegar á heildina er litið segi
ég yfirleitt tóma steypu.“
Fyrstu orrustu kalda stríðsins lýkur
Fimmtíu ár eru frá því að fyrsti Trabant-
inn rann af færibandinu í Zwickau í
Austur-Þýskalandi. Þessi snaggaralegi
bíll var framleiddur í 34 ár og það í nær
óbreyttri mynd. Alls voru þrjár millj-
ónir bíla framleiddir.
Upphaflega átti Trabant að vera þrí-
hjól en seint á hönnunarferlinu var
honum breytt í fjögurra hjóla bíl. Vél-
arval í Trabant bendir hinsvegar til
þess að upphaflega hafi bíllinn átt að
vera slátturvél, en hann var búinn tví-
gengismótor sem skilaði heilum 25
hestöflum. Hann var 21 sekúndu frá 0
upp í 100 km hraða og því ekki beint um
kappakstursbíl að ræða.
Nei, Trabant var aldrei ætlað að
þeysa um hraðbrautir. Þess í stað
var hann hannaður til að flytja stolta
kommúnista í og úr vinnu og út í sveit
um helgar. Aðal kostur hans að mati
framleiðenda var að þrátt fyrir smæð
kæmust fjórir fullorðnir og farangur
í bílinn. Nafnbótin undirstrikar þetta
hlutverk hans en orðið Trabant þýðir
ferðafélagi.
Þar sem biðtíminn eftir Trabant
var langur, jafnvel svo skipti mörgum
árum, hugsuðu eigendur vel um bíla
sína og var meðallíf-
tími Trabants í Austur-
Þýskalandi 28 ár.
Á Íslandi var líftím-
inn ekki jafn langur,
rétt eins og á við um
flesta bíla. Í dag eru
tíu Trabantar eftir á
númerum en eitthvað
er um gangfæra bíla
sem bíða betri daga
inni í skúr.
Eigandi eins slíks
bíls er Guðbjartur
Nilsson framkvæmda-
stjóri Kísildals ehf.
„Ég keypti Trabant á
námsárunum mínum og keyrði hann
einhverja 30 þúsund kílómetra, þar á
meðal milli Reykjavíkur og Akureyr-
ar nokkrum sinnum, áður en ég lagði
honum,“ segir Guðbjartur.
Bíll Guðbjarts hefur lifað tímana
tvenna, er árgerð 1987 og fluttur hing-
að frá Afganistan. Hann ætti því hefð-
inni samkvæmt að eiga átta ár eftir.
„Hann er ekki á númerum núna en
hann er gangfær,“ segir Guðbjart-
ur. „Það reyndist því miður of mikil
vinna bæði að stýra fyrirtæki og halda
Trabant við.“
Framleiðslu Trabants var hætt árið
1991.
Afstaða, félag fanga á Litla-
Hrauni, gefur út blað sem
hefur sömu yfirskrift og
þessi síða, það er að segja
Tímamót. Þar koma þeir
málefnum sínum á framfæri
á skilmerki-
legan hátt
og fjalla
meðal ann-
ars um
hvernig
fyrrver-
andi föng-
um er tekið
úti í sam-
félaginu
þegar þeir
hafa af-
plánað sína
dóma. Baráttan við fíknina
er líka til umfjöllunar og ein
grein er um æskilega með-
ferðardeild á Litla-Hrauni.
Kjarabarátta fangavarða
kemur við sögu og Ekron
starfsþjálfunin sem stofn-
uð var árið 2004 fyrir ein-
staklinga sem ekki hafa gott
aðgengi að hinum almenna
vinnumarkaði.
Nýtt tölublað
Tímamóta