Fréttablaðið - 24.05.2007, Page 60
Kl. 20.00
Orgelsnillingurinn Michael Radualescu
stýrir tónleikum í kirkjunni þar sem fluttar
verða tvær kantötur eftir J. S. Bach. Ein-
söngvarar eru Ólöf Kolbrún Harðardóttir,
Sesselja Kristjánsdóttir, Þorbjörn Rúnars-
son og Bergþór Pálsson. Kór Langholtskirkju
syngur og Kammersveit Langholtskirkju
leikur en konsertmeistari er Júlíana Elín
Kjartansdóttir.
Austfirskt tónlistarfólk skipulegg-
ur tónleika í Kirkju- og menningar-
miðstöðinni á Eskifirði um hvíta-
sunnuna þar sem tónlist héraðsins
verður í forgrunni. Megintilgang-
ur tónleikanna er að minna á þann
sterka menningararf sem fólginn
er í austfirskri tónlist og textum
og þýðingu þess menningararfs
fyrir samfélagið.
Á tónleikunum verður flutt tón-
list eftir Inga T. Lárusson, Svavar
Benediktsson, Óðin G. Þórarins-
son og bræðurna Þorvald og Þor-
lák Friðrikssyni. Textahöfund-
ar eru flestir austfirskir, meðal
annars Helgi Seljan, Hákon
Aðalsteinsson, Kristján Ingólfs-
son, Kristján frá Djúpalæk, Páll
Ólafsson og fleiri.
Margir kannast við lög Inga
T. Lárussonar, til dæmis „Ég bið
að heilsa“ og „Sumarkveðju“ og
lög Óðins G. Þórarinssonar hafa
hljómað víða en hann samdi til
dæmis lögin „Nú liggur vel á mér“
og „Blíðasti blær“.
Í fyrra kom út geisladiskurinn
Ljósbrot með lögum eftir Þorlák
Friðriksson, eða Lalla á Skorra-
stað eins og Austfirðingar kalla
hann. Allir textar við lögin eru
eftir bróður hans, Helga Seljan. Á
diskinum eru lög eins og Drauma-
veröld og Ljósbrot.
Fyrir fjórum árum kom út
geisladiskurinn Lögin hans Valda
sem inniheldur lög eftir Valda á
Sigurðarhúsinu eða Þorvald Frið-
riksson, bróður þeirra Lalla og
Helga. Á diskum bræðranna sáu
synir þeirra að mestu um söng og
hljóðfæraleik og nutu dyggrar að-
stoðar Magnúsar Kjartanssonar.
Á annan tug flytjenda bæði
söngvara og hljóðfæraleikara
koma fram á tónleikunum og eru
það að langmestu leyti þeir sömu
og komu að gerð geisladiska þeirra
bræðra, nær allir að austan.
Tónlistarstjórar og útsetjarar
eru Ágúst Ármann Þorláksson,
skólastjóri Tónskóla Neskaupstað-
ar, en skólinn er hinn formlegi tón-
leikahaldari, og hinn landskunni
tónlistarmaður Magnús Kjartans-
son.
Tónleikarnir verða næstkom-
andi sunnudag kl. 20.30 og á mánu-
daginn kl. 15.
Kall austfirsku átthaganna
Djassbandið E.S.T. fer sínar eigin
leiðir en frumleiki þess og fag-
leg spilamennska hefur komið því
ofarlega á lista djassaðdáenda um
allan heim.
Gagnrýnendur hafa lofað
sænska djasstríóið E.S.T í hástert,
ekki aðeins fyrir tónlistina sem
það semur heldur einnig líflegan
flutning. E.S.T. leikur á tvennum
tónleikum á Listhátíð í Reykjavík
nú um helgina.
Meðlimir E.S.T. eru frá Stokk-
hólmi og tónlistin er léttur og auð-
heyrilegur djass með áhrifum víða
að, meðal annars úr klassískri tón-
list, poppi, raftónlist, og fönki.
Styrkur þeirra er meðal annars
fólginn í því hversu óhræddir þeir
eru við að feta ótroðnar slóðir og
er bæði um að ræða frumsamið
efni og útgáfur þeirra á frægum
djasslögum, til dæmis eftir Thel-
onius Monk.
Tríóið skipa Esbjörn Svensson á
píanó, Magnus Öström á trommur
og Dan Berglund á bassa. Esbjörn
og Magnus eru æskuvinir og hófu
snemma að bralla sitthvað saman
í tónlist. Tilraunamennska þeirra
vakti athygli og varð mörgum tón-
listarmönnum, bæði í Svíþjóð og
Danmörku, mikill innblástur. Árið
1993 spratt tríóið fram fullskapað
í framhaldi af kynnum þeirra við
Dan Berglund og hver geisladisk-
urinn af öðrum leit dagsins ljós.
Árið 1995 var tónlist þeirra
farin að seljast eins og heitar
lummur. Árin 1995 og 1996 var Es-
björn Svenson valinn djasstónlist-
armaður ársins í Svíþjóð og 1998
lagahöfundur ársins. Ári síðar
kom út sá geisladiskur E.S.T. sem
vakti athygli umheimsins. Boltinn
hefur rúllað og verðlaunin hlað-
ist utan á þá félaga, sem hafa til
dæmis hafa fengið upphefðina
„djassband ársins í Evrópu“ árið
2004 samkvæmt mati dómnefnd-
ar sem skipuð var fulltrúum rúm-
lega tuttugu Evrópuþjóða. E.S.T.
varð enn fremur fyrst evrópskra
hljómsveita til þess að prýða for-
síðu hins virta bandaríska djass-
tímarits Downbeat. E.S.T hefur nú
þegar gefið út ellefu geisladiska
sem flestir hlotið hafa afbragðs
viðtökur.
Tónleikar E.S.T eru töluvert
frábrugðnir hefðbundnum djass-
tónleikum, til dæmis notast þeir
gjarnan við ljós og reyk líkt og
gert er á rokktónleikum. Í dag
telja margir E.S.T. með frumlegri
djassböndum heimsins og eru
óteljandi viðurkenningar og verð-
laun til marks um vinsældir þess.
Koma tríóisins til landsins er því
mikill fengur fyrir áhugafólk og
aðra forvitna sem vilja kynna sér
auðheyrilega og öðruvísi tónlist.
Tónleikar E.S.T. fara fram á
Nasa föstudags- og laugardags-
kvöld.
aðalfundur vinafélags
sinfóníuhljómsveitar íslands
31 2007 17.30
Vinafélags Sinfóníuhljómsveitar Íslands
dagskrá aðalfundarins
1.
2.
3.
4.
5.
6.
Karólína
Eiríksdóttir
stjórn vinafélags sinfóníuhljómsveitar íslands
„ÞAÐ ELSKA ALLAR KONUR HEIMSFRÆGA MENN“
GRETTIR
Miðasala 568 8000
www.borgarleikhús.is
grettir.blog. is