Fréttablaðið - 24.05.2007, Blaðsíða 62

Fréttablaðið - 24.05.2007, Blaðsíða 62
Sin City leikstjórinn Robert Rodrigu- ez hyggst endurgera „költ“-kvikmyndina Barbarellu sem skartaði á sínum tíma lík- amsræktarfrömuðinum Jane Fonda í að- alhlutverkinu. Þetta var tilkynnt á kvik- myndahátíðinni í Cannes. Framleiðandi myndarinnar verður Dino De Laurentis en hann framleiddi einnig upphaflegu myndina. „Möguleikarnir eru óþrjót- andi. Ég elska þessa persónu og allt sem hún stendur fyrir,“ sagði Rodriguez við blaðamenn af þessu tilefni. Laurentis sagði í yfirlýsingu að Barbarella væri hinn fullkomna hetja vísindaskáld- skapar. „Hún er gáfuð, sterk og kyn- þokkafull,“ lýsti framleiðandinn yfir. Barbarella var frumsýnd 1968 en var slátrað af gagnrýnend- um og áhorfendum. Á einhvern undarlegan hátt varð kvikmyndin þó að „költ“-fyrirbæri síðar meir og má víða finna tilvísanir í hana í nútíma poppmenningu. Nægir þar að nefna popphljómsveitina Duran Duran sem var nefnd eftir illmenni myndarinnar. Þá endurskapaði Kylie Minogue at- riði úr myndinni í myndbandinu Put Yourself in My Place þegar hún afklæddist í þyngdarleysi en þegar Jane Fonda gerði það sumarið ´68 vakti það mikla hneykslan. Rodriguez endurgerir Barbarellu Bandaríski leikstjórinn Martin Scorsese tilkynnti á kvikmynda- hátíðinni í Cannes að hann hefði stofnað sérstakan sjóð sem hygð- ist forða gömlum kvikmyndum frá gleymsku og glötun. Sjóðurinn hefur fengið nafnið World Cinema Foundation eða Heimskvikmynda- sjóðurinn. Scorsese hefur fengið til liðs við sig marga af fremstu leikstjórum kvikmyndaiðnaðar- ins og mun hlutverk sjóðsins vera fólgið í því að bjarga kvikmyndum í heimalandi hvers og eins. Scorsese sagðist myndu ein- beita sér að horfnum kvikmyndum þróunarlandanna. „Ef ekkert verð- ur að gert munu þessar kvikmynd- ir hverfa af sjónarsviðinu,“ sagði hann við blaðamenn. „Foreldr- ar mínir voru verkamenn í New York og því var ekki mikil hefð fyrir bókalestri. Þess í stað horfði ég mikið á kvikmyndir frá öllum heimshornum í sjónvarpi og þær opnuðu fyrir mér nýja menning- arheima,“ útskýrði Scorsese. Step- hen Frears, sem er í forsvari fyrir Cannes-dómnefndina, lýsti því yfir við blaðamenn að meginmarkmið hans yrði að varðveita gamlar breskar kvikmyndir. „Breska kvik- myndastofnunin þarf á meiri fjár- styrk að halda til að standa straum af slíku verkefni. Þetta er líf okkar og menning en yfirvöld sýna þessu ekki nógu mikinn áhuga,“ sagði Frears. Scorsese bjargar kvikmyndum Þriðju og síðustu kvik- myndarinnar í þríleiknum Pirates of the Caribbean hefur verið beðið með mikilli eftirvæntingu og nú hefur hefur hinu eina og sanna gullskipi verið siglt til Íslands. Þegar framleiðandinn Jerry Bruck- heimer tilkynnti árið 2002 að hann hygðist gera kvikmynd eftir sögu- þræði sjóræningjaleiktækis í Disney-garðinum töldu flestir að hann hefði endanlega glatað glór- unni. Sjóræningjar höfðu ekki sést á hvíta tjaldinu í háa herrans tíð og voru jafn útdauðir og hetjur villta vestursins. Sjóræningjamynd væri því bara eins og að kasta peningum á haf út. En Bruckheimer skellti skollaeyrum við slíkum hrakspám og hélt ótrauður áfram enda lumaði hann á óvæntu trompi uppi í erm- inni: Johnny Depp. Þeir voru ófáir sem ráku upp stór augu þegar framleiðandinn með pen- inganefið tilkynnti að Depp myndi leika aðalhlutverkið enda hefur leikarinn ekki verið þekktur fyrir að leggja lag sitt við Hollywood- „blockbuster“ myndir. Og varla eru þeir margir sem hefðu spáð því að gæðaleikarinn ætti eftir að bind- ast tryggðaböndum við Bruckheim- er, sem er hvað þekktastur fyrir að framleiða innihaldslausar gróðrar- stíur. En Depp sá ekki eftir ákvörð- un sinni. Jack Sparrow tryggði honum meira að segja tilnefningu til Óskarsverðlauna. Eftir að fyrsta myndin var frum- sýnd sumarið 2003 varð öllum ljóst að Buckerheimer og félagar höfðu veðjað á réttan hest; Pirates of the Caribbean kostaði litlar 140 millj- ónir dollara í framleiðslu en rakaði inn rúmum 300 milljónum dollara í Bandaríkjunum. Og ekki þýddi neitt annað en að framleiða aðra mynd. Og þriðju. Þrátt fyrir að annarri myndinni hafi ekki verið tekið neitt sérstak- lega vel af gagnrýnendum kom það bersýnilega í ljós að áhorfendur höfðu áhuga á ævintýrum Sparrow, Elizabeth og Will Turner. Dead Man‘s Chest fékk aukið fjármagn enda tæknibrellurnar ögn flóknari en í fyrstu myndinni. Sæskrímsli eltu Sparrow á röndum og heimt- uðu líf hans. Bruckheimer og félag- ar reiddu fram 225 milljónir doll- ara til framleiðslunnar. Og líkt og síðast fengu þeir peninginn til baka og vel það. 425 milljónir Banda- ríkjadala komu í kassann eftir sýn- ingar í Bandaríkjunum. Og Bruckheimer opnaði veskið upp á gátt fyrir síðustu myndina enda skyldu örlög Sparrow og fé- laga þá ráðast endanlega. Þrjú hundruð Bandaríkjadölum var pungað út og er At World‘s End því ein dýrasta myndin sem framleidd hefur verið. En Jerry missir varla svefn yfir þessum gríðarlegu fjár- munum. Og varla skiptir dómur sérfræðinga neinu því áhorfendur virðast elska skylmingar og segl- skip. Enda hefur því verið spáð að hvorki Lóa Köngulóarmanni, Skrekki hinum þriðja né öðrum væntanlegum stórmyndum takist að skáka sjóræningjastuðinu með Depp og Keith Richards fremsta í flokki. Nema að John McClane setti strik í reikninginn en það væri þá ekki í fyrsta skipti. Draugar, slím og kaldhæðni ,, Kvikmynd sem snertir mann djúpt.” -Steven Rea, Philadelphia Inquirer. ,,Langbesta rómantíska stórmynd ársins.” -Mick LaSalle, San Francisco Chronicle. FRUMSÝND 16. MAÍ SÝND Í REGNBOGANUM FALIN ÁSÝND GOLDEN GLOBE V E R Ð L A U N BESTA TÓNLISTIN SAMTÖK GAGNRÝNENDA BESTA HANDRIT 2 INDEPENDENT SPIRIT AWARDS TILNEFNINGAR BESTI LEIKARI BESTA HANDRIT KLIPPIÐ HÉR! - Ekkert hlé á góðum myndum Ekkert hlé Minna af auglýsingum Engin truflun321 2 fyrir 1 allar frumsýningarhelgar gegn framvísun þessarar úrklippu. www.graenaljosid.is - Skráðu þig í Bíóklúbbinn og þú færð sendan boðsmiðakóða á Miða.is alla frumsýningardaga
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.