Fréttablaðið - 24.05.2007, Side 66
Ingi Þór Jónsson skipuleggur veg-
lega afmælisgjöf frá Íslendingum
til íbúa Liverpool dagana 30. nóvem-
ber til 2. desember en Bítlaborgin
fagnar átta hundruð ára afmæli sínu
á þessu ári. Ísland er eina landið
sem hyggst gefa borginni afmælis-
gjöf og segir Ingi íbúana vera ákaf-
lega spennta yfir þessu framtaki.
„Enda verður það tilkynnt tveimur
vikum áður en afmælisgjöfin verð-
ur afhent að íbúar Liverpool séu
miklu skyldari norrænum víking-
um en Keltum eins og upphaflega
var talið,“ útskýrir Ingi.
Meðal þess sem verður á dagskrá
er ensk þýðing á leikverki Völu
Þórsdóttur, Eldhús eftir máli, sem
sett verður upp í samstarfi við leik-
hús borgarinnar og Þjóðleikhúsið.
Eldhús eftir máli er byggt á verk-
um Svövu Jakobsdóttur og var sýnt
fyrir fullu húsi á Smíðaverkstæði
Þjóðleikhússins á síðasta ári. „Við
reiknum síðan með því að stofnaður
verði minningarsjóður um Svövu af
þessu tilefni,“ segir Ingi Þór.
Hápunkturinn verður hins vegar
smásagnakeppni um íslenska vík-
inga og náttúru Íslands en
dómnefndina skipa hjóna-
kornin Andri Snær Magnason og
eiginkona hans, Margrét Sjöfn
Torp auk Mike McCartney, vernd-
ara afmælisgjafarinnar. Mike þessi
var skipaður sérlegur sendiherra
Liverpool þegar hún var útnefnd
menningarborg Evrópu 2008 og er
yngri bróðir sjálfs sir Paul
McCartney, bítilsins góðkunna.
„Okkur hafa þegar borist yfir sex
hundruð sögur en við búumst við
þrjú þúsund sögum,“ segir Ingi en
verðlaunin eru ekki af verri endan-
um, ferð til Íslands.
Liverpool er heimsþekkt fyrir
synina sína fjóra úr Bítlunum og
segir Ingi að tónlist muni skipa
veglegan sess í afmælisgjöfinni.
Þegar hefur verið gengið frá tón-
leikum Garðars Thors Cortes í
tónleikahöll Fílharmóníusveitar-
innar og þá sé allt útlit fyrir að
haldin verði sérstök tónlistarhátíð
með hljómsveitum frá borginni og
Íslandi.
McCartney verndar íslenska afmælisgjöf
Elísabet Englandsdrottning var
í gær valin „merkasti núlifandi
Bretinn“ á verðlaunahátíð sem
ITV-sjónvarpsstöðin þar í landi
stóð fyrir í vikunni í fyrsta sinn.
Hún hafði betur í samkeppni
við sir Paul McCartney, Julie
Andrews, Margaret Thatcher og
Robbie Williams, sem
einnig voru til-
nefnd, en það
voru áhorf-
endur ITV
sem stóðu
að valinu.
Verðlaun
Elísabet-
ar voru þau
eftirsótt-
ustu á hátíð-
inni en einnig voru veitt verðlaun
í ýmsum öðrum „minni“ flokkum.
Elísabet var ekki á staðnum til að
taka á móti viðurkenningu sinni
en sonur hennar, Edward prins,
hélt þakkarræðu fyrir hönd móður
sinnar í gegnum gervihnött.
Knattspyrnumaðurinn David
Beckham flaug til London frá
Madríd til að vera viðstaddur hófið
og tók hann á móti sérstakri viður-
kenningu fyrir „alþjóðleg afrek“.
Mikla athygli vakti þegar hann og
leikkonan Helen Mirren rákust á
hvort annað á rauða dreglinum.
„Guð minn góður, en spennandi!“
kallaði Mirren er hún sá hver stóð
við hlið hennar og lét hún síðar
hafa eftir sér að hún væri mikill
aðdáandi Beckham.
Af öðrum verðlaunum má nefna
að títtnefnd Mirren fékk verðlaun
sem merkasti kvikmyndaleikar-
inn, Ricky Gervais var kjörinn
merkasti sjónvarpsleikarinn og
Amy Winehouse er merkasti tón-
listarmaðurinn.
Drottningin merkasti Bretinn
Death Proof, nýjasta mynd
leikstjórans Quentin Taran-
tino, tekur þátt í keppninni
um Gullpálmann. Íslands-
vinurinn svaraði spurning-
um blaðamanna eftir frum-
sýningu í Cannes.
Gagnrýnendur voru ekki sér-
staklega hrifnir af þessari nýj-
ustu afurð Tarantino og hefur hún
fengið fremur slaka dóma og þykir
ekki eiga mikið erindi í keppn-
ina. Áhorfendur í Cannes voru þó
flestir ánægðir með verkið.
Death Proof var upphaflega
framleidd undir titlinum Grind-
house sem eru tvær myndir sýnd-
ar saman og er hinn helmingur-
inn Planet Terror eftir Robert
Rodriguez. Grindhouse hefur nú
þegar verið frumsýnd í Banda-
ríkjunum en verkefnið er lofsöng-
ur til B-mynda sjöunda áratugsins
með tilheyrandi bílaeltingarleikj-
um, spennu og hryllingi.
Tarantino tekst vel til í að skapa
„seventís“-stemningu í myndinni
sem er ofursvöl og leikur hann
sjálfur hlutverk barþjóns sem að
sjálfsögðu klæðist Dead-skyrtu
eftir Jón Sæmund. Hostel-leik-
stjórinn Eli Roth fer einnig með
hlutverk í myndinni í Dead-haus-
kúpubol.
Tarantino mætti aftur á móti á
blaðamannafundinn í AC/DC bol
og sagði óvart „au revoir“ (bless á
frönsku) þegar hann settist niður
í staðinn fyrir „bon jour“ (góðan
daginn). En hann hélt sig við ensk-
una eftir það.
Kurt Russell, sem var stórkost-
legur sem Stuntman Mike í mynd-
inni, var einnig á fundinum ásamt
leikkonuhópnum, þar á meðal
áhættuleikkonunni Zoe Bell sem
lék hættuleg atriði Umu Thur-
man í Kill Bill en leikur sjálfa sig í
Death Proof.
Tarantino talaði brjálæðislega
mikið og hratt á fundinum og
minnti helst á ofvirkan krakka.
Það er greinilegt að hann kann
vel við sig í Cannes enda er hann
nokkurs konar eftirlætisbarn á
rauða dreglinum hér. Hann vann
Gullpálmann fyrir Pulp Fiction
árið 1994. „Það var stærsta stund
lífs míns,“ sagði Tarantino. „Allar
bestu myndirnar í heiminum
eru frumsýndar í Cannes, það er
mikill heiður að fá að vera með
í keppninni.“ Mikið hefur ein-
mitt verið rætt um það að mynd
eins og Death Proof eigi ekki
heima í keppninni og eina ástæð-
an fyrir því að hún er þarna sé að
Tarantino er eftirlætisbarn hátíð-
arinnar.
Áhorfendur í Cannes voru samt
sem áður sáttir við myndina en at-
hyglisvert er að stelpurnar voru
almennt hrifnari en strákarnir þótt
þeir séu yfirleitt meira fyrir elting-
arleiki og hrylling. Kannski er það
vegna alls stelputalsins hjá vin-
konugenginu ógurlega en myndin
hefur mikið „girl-power“ og stelp-
urnar eru harðar í horn að taka.
Tarantino, sem er þekktur fyrir
snilldar samtalssenur, var ein-
mitt spurður út í það hvernig hann
vissi hvernig stelpur töluðu sín á
milli en Rosario Dawson svaraði
fyrir hann: „Hann hlustar á okkur.
Hann er eini strákurinn sem fær
að fara út með okkur og hlera
þegar við tölum saman.“
| Kringlunni | sími: 517 3190
24.-26.maí
Dömuskór, herraskór og töskur
25%