Fréttablaðið


Fréttablaðið - 24.05.2007, Qupperneq 72

Fréttablaðið - 24.05.2007, Qupperneq 72
Ég virði ákvörðun landsliðsþjálfarans Bjarni Ólafur Eiríksson mun semja við Val til fjögurra ára þegar hann hefur náð samkomu- lagi við félagið um samning sinn. Bjarni fékk þau slæmu tíðindi í gær að hann væri ristarbrotinn en hann gat ekki spilað með Silkeborg í síðustu leikjunum á tímabilinu sem enn er reyndar ekki lokið. „Það er ekki búið að ganga frá neinu en við erum að nálgast sam- komulag,“ sagði Bjarni, sem vildi ekki segja hvort hann væri að hækka eða lækka í launum við að ganga í raðir Vals. „Ég er nokkuð sáttur með samninginn,“ sagði Bjarni, sem fer væntanlega í að- gerð í dag. „Ég get ekki stigið í löppina núna og eftir aðgerðina verð ég í gifsi í um fjórar vikur. Það verða því líklega fjórar til sex vikur áður en ég get nokkuð farið að æfa,“ sagði Bjarni, sem var í óða önn að vinna í því að fá leyfi til að fara í aðgerð frá Silkeborg, sem hann er enn samningsbundinn til eins árs. Bjarni var ekki viss hvað gerð- ist næst en Ótthar Edvardsson, framkvæmdarstjóri Vals, sagði að meiðslin breyttu engu og gengið yrði frá samningum fljótlega. Hinn 25 ára gamli vinstri bak- vörður segir alls óvíst að hann reyni fyrir sér í atvinnumennsk- unni aftur eftir misjafna tíma hjá Silkeborg. Félaginu gekk afleit- lega á tímabilinu og er fallið niður í 1. deildina. „Ég er ekkert að hugsa um að leika erlendis núna. Ég vil eigin- lega bara koma heim og spila fót- bolta til að reyna að hafa gaman af þessu aftur, þetta var mjög erfið- ur tími þarna úti. Gengi liðsins er búið að vera skelfilegt og það er ekkert víst að ég fari aftur út þó svo að það bjóðist,“ sagði Bjarni. KR sýndi Bjarna áhuga auk Valsmanna en leikmaðurinn segir að hann hafi ekki velt því lengi fyrir sér að halda í Vesturbæinn þrátt fyrir að hann hafi gefið það út fyrir nokkru að það yrði ekki sjálfgefið að hann spilaði með Val kæmi hann heim. „Valshjartað spilaði auðvitað mikið inn í. Síðan líst mér líka vel á allt í kringum Val, þjálfarann, leikmannahóp- inn, stjórnina og umgjörðina auk þess sem aðstaðan er að verða frá- bær. Ég skoðaði það ekki mikið að ganga til liðs við KR en þó eitt- hvað. Þetta var samt sem áður til- tölulega auðveld ákvörðun fyrir mig.“ Ótthar sagði við Fréttablað- ið í gær að kaupverðið á Bjarna væri trúnaðarmál en það væri þó fjarri því að vera sex milljónir króna eins og haldið hefur verið fram. „Sex milljónir eru fjarri lagi en þetta er hagstæður samn- ingur fyrir báða aðila, annars værum við ekki að standa í þessu og Silkeborg er búið að samþykkja tilboðið,“ sagði Ótthar. Willum Þór Þórsson, þjálfari Vals, fagnar endurkomu Bjarna í Val en hann hefur notað Rene Carlsen í uppáhaldsstöðu Bjarna, vinstri bakvarðarstöðunni. „Það er alltaf hægt að nota góða menn,“ sagði Willum. „Tíminn verður að leiða í ljós hvar við notum hann en Bjarni er geysilega fjölhæfur leikmaður og kemur auðvitað til með að styrkja okkur hóp mikið. Auk þess á Bjarni heima í Val,“ sagði Willum, sáttur við framgang mála. Bjarni Ólafur Eiríksson er ristarbrotinn og gengur um á hækjum þessa dagana. Hann mun samt sem áður skrifa undir fjögurra ára samning við sitt gamla félag Val en er hættur að hugsa um atvinnumennskuna. Fylkismenn hafa fengið dæmdar á sig 52 aukaspyrnur í fyrstu tveimur umferðum Lands- bankadeildar karla. Ekkert lið hefur brotið oftar af sér í fyrstu tveimur umferðunum frá því að tölfræði yfir aukaspyrnur var fyrst tekin saman sumarið 2000. Fylkismenn fengu á sig 28 aukaspyrnur í 1-0 sigri á Blikum í 1. umferð og brutu síðan 24 sinn- um af sér í 1-2 tapi fyrir Vals- mönnum í 2. umferð. Það sem vekur einnig mikla at- hygli er að Fylkismenn hafa að- eins fengið 19 aukaspyrnur sjálfir í þessum tveimur leikjum, eða 33 færri en mótherjar þeirra. Grófasta byrjun liðs síðan 2000 Skagamenn hafa ekki byrjað vel í Landsbankadeild karla í sumar og eru stigalausir og neðstir eftir fyrstu tvær um- ferðirnar. Það hefur ekki hjálpað til að liðið hefur þurft að spila manni færri í 88 mínútur, missti mann út á 24. mínútu í fyrsta leiknum og svo aftur á 68. mínútu í annarri umferð. Þegar tölfræði yfir spjöld og aukaspyrnur er skoðuð kemur í ljós að það er mikill munur á því hversu mörg brot eru á bak við hvert spjald. Skagamenn, sem hafa fengið 8 spjöld (6 gul og 2 rauð), hafa brotið 31 sinni af sér og fá því spjald fyrir tæplega fjórðu hverju aukaspyrnu. Það er allt önnur saga hjá Vals- mönnum sem hafa brotið 34 sinn- um af sér en aðeins fengið að líta eitt gult spjald. Skagamenn að spila of fast? Opna Mapei golfmótið Glæsileg verðlaun, keppt er í einum flokki og verðlaun veitt fyrir 5 efstu sætin. Nándarverðlaun á öllum par 3 holum. Dregið verður úr skorkortum viðstaddra í mótslok. Þátttökugjald: 3.500 kr. Skráning: golf.is og í síma: 482 3380 Verður haldið í Öndverðarnesi laugardaginn 26. maí
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.