Fréttablaðið - 24.05.2007, Page 74
í handarbökin að hafa ekki nýtt
eitthvað af færunum sínum í fyrri
hálfleik en kannski helst færið
sem Steven Gerrard fékk í seinni
hálfleik. Hann náði þá að prjóna
sig í gegnum vörn Ítalanna en fór
illa að ráði sínu gegn Dida, mark-
verði Milan.
Eftir því sem Liverpool freist-
aði þess að skora jöfnunarmark-
ið tókst Milan að komast tveim-
ur mörkum yfir. Kaka gaf laglega
stungusendingu á milli varnar-
manna Liverpool og Inzaghi tíma-
setti hlaup sitt hárrétt. Hann lék á
Reina með einni snertingu og náði
að renna boltanum í markið.
Tíminn var að renna út þegar
Kuyt skoraði jöfnunarmarkið með
skalla af stuttu færi. Daniel Agger
hafði þá skallað boltann áfram
eftir hornspyrnu Jermaine Penn-
ant.
En það var of seint. Liverpool
tókst ekki að leika sama leikinn og
í Aþenu og fyrirliði Milan, Paolo
Maldini, lyfti bikarnum góða í
leikslok. Þetta var fimmti Evrópu-
meistaratitill Maldini og hans átt-
undi úrslitaleikur í Evrópukeppni.
Steven Gerrard, fyrirliði Liver-
pool, boðaði betri tíð fyrir sína
menn. „Við getum verið stoltir af
okkur. Við lögðum mikið á okkur
til að komast í úrslitaleikinn og ég
veit að við munum spila í öðrum
slíkum aftur,“ sagði Gerrard. „Nú
verðum við að taka okkur saman í
andlitinu, hvíla okkur vel í sumar
og kýla svo aftur á það næsta tíma-
bil. Við ætlum okkur mikið, það er
óumflýjanlegt.“
Hann óskaði einnig AC Milan
til hamingju. „Þeir eiga hól skilið.
Þeir unnu og áttu það kannski skil-
ið líka.“
AC Milan frá Ítalíu er
Evrópumeistari eftir að hafa borið
sigurorð af Liverpool, 2-1, í úr-
slitaleik Meistaradeildar Evrópu
sem fór fram í Aþenu í gær. Fil-
ippo Inzaghi skoraði bæði mörk
Milan en Dirk Kuyt minnkaði mun-
inn fyrir Liverpool skömmu fyrir
leikslok. Um tíma leit út fyrir að
Liverpool gæti endurtekið leikinn
frá Istanbúl fyrir tveimur árum er
liðið lenti 3-0 undir gegn AC Milan
en náði að jafna metin og knýja
fram framlengingu. Ekkert slíkt
var þó uppi á teningnum í gær og
náðu leikmenn AC Milan því að
hefna ófaranna frá Istanbúl.
Liverpool var betri aðilinn í fyrri
hálfleik en fékk svo kalda vatns-
gusu í andlitið er Inzaghi kom
Milan yfir. Hann fékk þá boltann í
sig eftir aukaspyrnu Andrea Pirlo
sem ruglaði Pepe Reina markvörð
í ríminu og inn fór boltinn.
Boltinn fór reyndar af hendi
Inzaghi en markið stóð engu að
síður.
Liverpool átti eftir að naga sig
Eggert Magnússon er
sannfærður um að hann nái að
gera West Ham að stórveldi í
ensku knattspyrnunni áður en
langt um líður. Eggert, sem er
eigandi og stjórnarformaður fé-
lagsins, gefur sér eitt eða tvö ár
til að vekja hinn sofandi risa sem
bjargaði sér á ævintýralegan hátt
frá falli úr deildinni.
„West Ham er sofandi risi og
ég vil vekja þann risa hægt en ör-
ugglega. Á næstu einu eða tveim-
ur árum vil ég afreka eitthvað
virkilega jákvætt á Upton Park,“
sagði Eggert sem er þegar farinn
að undirbúa uppstokkun á liðinu
fyrir næstu leiktíð.
Að vekja hinn
sofandi risa
Jón Arnór Stefánsson
átti góðan leik þegar Lottomati-
ca Roma tryggði sér sæti í und-
anúrslitum úrslitakeppni ítalska
körfuboltans með 83-58 sigri á
Eldo Napoli, en með því spilaði
Jón Arnór einmitt í fyrra.
Jón Arnór var með 12 stig, 3
fráköst og 2 stoðsendingar á 20
mínútum og hitti úr 4 af 7 skotum
sínum. Lottomatica Roma vann
alla þrjá leiki einvígisins.
Lottomatica Roma mætir Mont-
epaschi Siena í næstu umferð en
Montepaschi-liðið vann deildina
með yfirburðum.
Jón Arnór inn í
undanúrslitin
Jónas Kristinsson, for-
maður KR-Sports, sagði við
Fréttablaðið í gær að það væri
ekki rétt sem Gísli Gíslason, for-
maður rekstrarstjórnar ÍA, sagði
í blaðinu fyrir nokkrum dögum.
Þá sagði Gísli að KR hefði ekki
viljað leyfa Dalibor Pauletic, leik-
manni liðsins, að semja við ÍA.
„Hann bara vildi ekki fara upp
á Skaga. Hann vildi fara heim
til sín, til Króatíu,“ sagði Jónas.
„Það er hið sanna í málinu.“
Dalibor mátti
fara á Skagann
Líklegt er að Jóhann-
es Þór Harðarson verði í byrjun-
arliði Start sem mætir Ströms-
godset í norsku úrvalsdeildinni á
morgun. Þessu heldur staðarblað-
ið í Kristjánssandi, Fædrelands-
vennen, fram.
Ef rétt reynist verður það í
fyrsta sinn í rúmt ár sem hann
verður í byrjunarliði Start en Jó-
hannes Þór hefur átt við erfið
meiðsli að stríða.
Jóhannes Þór í
byrjunarliðið?
Rúnar Kristinsson mætti
á sína fyrstu æfingu hjá KR í gær
og verður í leikmannahópi liðsins
sem mætir Val á Laugardalsvelli í
kvöld.
Hann lék í stöðu afturliggjandi
miðjumanns á æfingunni í gær en
búast má fastlega við því að hann
komi við sögu í leiknum í kvöld.
„Ég er glaður og feginn því að
ég náði þessari æfingu,“ sagði
Rúnar við Fréttablaðið í gær en
hann kom til landsins fyrr um dag-
inn. „Tilfinningin er góð og ég er
mjög sáttur.“
Síðustu dagar hafa verið við-
burðaríkir hjá Rúnari en á laug-
ardaginn lék hann kveðjuleik sinn
með Lokeren í belgísku úrvals-
deildinni.
„Það er búið að vera smá stress
í kringum þetta allt saman. Ég er
nýbúinn að klára eitt ævintýri og
er að byrja hér á nýju. Það er von-
andi að ég verði heill heilsu og nái
að sýna mitt besta.“
Í leiknum á laugardaginn fékk
hann högg á lærið undir lok leiks-
ins. „Ég fékk smá krampaeinkenni
en það lítur allt vel út í dag. Ég
reikna með að verða fínn á morg-
un. Ég væri annars ekki í hópnum
nema að ég væri fyllilega tilbúinn
til að taka þátt í leiknum.“
Rúnar fékk úthlutað númerinu
12 hjá KR en hann hefur hingað til
yfirleitt verið númer 6 og 10 hjá
sínum liðum. „Blessaður vertu,
þetta skiptir mig engu máli. Ég er
bara ánægður með það númer sem
mér er úthlutað,“ sagði hann.
Tilfinningin er góð
AC Milan er Evrópumeistari í knattspyrnu eftir sigur á Liverpool í úrslitum, 2-1. Þar með hefndi liðið ófar-
anna frá úrslitaleiknum fyrir tveimur árum þegar Liverpool bar sigur úr býtum í vítaspyrnukeppni.
Clarence Seedorf, leik-
maður AC Milan, sagði að vinnu-
semi sinna manna hafi verið lyk-
illinn að sigri liðsins gegn Liver-
pool í gær. „Þetta var ekki besti
knattspyrnuleikur í heimi. Við
vorum þéttir fyrir og vissum að
við máttum ekki gera nein mis-
tök. Vinnusemi okkar gerði það
að verkum að við unnum. Ég er
afar stoltur að vera hluti af þessu
liði,“ sagði Seedorf.
Hann varð í gær fyrsti mað-
urinn til að vinna Meistaradeild
Evrópu í fjórða skiptið á ferlin-
um. Fyrst með Ajax árið 1995.
Svo með Real Madrid þremur
árum síðar og tvívegis með AC
Milan (2003 og 2007).
Markahetjan Filippo Inzag-
hi var vitanlega kátur. „Maður
gleymir aldrei kvöldstund sem
þessari. Ég hef skorað nokkrum
sinnum í Evrópukeppninni en að
skora í úrslitaleiknum er mjög
sérstakt.“
Unnum fyrir sigrinum