Fréttablaðið - 05.06.2007, Page 26

Fréttablaðið - 05.06.2007, Page 26
22 eru árin sem bandaríski körfuboltakappinn LeBron James hefur lifað. Þessi magnaðii leikmaður hefur nánast einn síns liðs dregið Cleveland Cavaliers í úrslit NBA-deildarinnar og sýnt þroska og andlegan styrk sem fylgir vanalega mun eldri leikmönnum. » ÁSTA B. GUNNLAUGSDÓTTIR Ásta B. Gunnlaugsdóttir er ein af albestu knattspyrnukonum sem Ísland hefur alið af sér. Ásta spilaði sinn fyrsta leik með Breiðabliki árið 1973 þegar hún var þrettán ára gömul og lék alls tuttugu ár með meistaraflokki. Hún var kjörin Knattspyrnumaður ársins 1994 fyrst kvenna og lagði skóna á hilluna í kjölfarið. Hún skoraði 154 mörk í 142 deildarleikjum, varð tíu sinnum Íslandsmeistari og fjórum sinnum bikarmeistari. Hún lék 26 landsleiki og skoraði í þeim 8 mörk. Sport fékk Ástu B. til að velja besta lið knattspyrnu- kvenna frá upphafi. „Ég hef alltaf verið hrifin af hraða, vil hafa fljóta kantmenn og framherja og val mitt bygg- ist á því,” segir Ásta B. DRAUMALIÐIÐ 2 sport FRÁ RITSTJÓRA Óskar Hrafn Þorvaldsson HVER ÆTLAR AÐ FÓRNA SÉR? Eyjólfur Sverrisson er góður maður og vandaður. Hann er hins vegar hörmulegur landsliðs- þjálfari. Hann hefur ekki þann karakter, ekki það hugrekki og ekki þá útgeislun sem lands- liðsþjálfari þarf að hafa. Á meðan Eyjólfur Sverrisson er landsliðsþjálfari og Eiður Smári Guðjohnsen er í leikbanni er ekki hægt að sjá nokkurn möguleika á því að ná stigi gegn Svíum í Stokkhólmi í undankeppni EM á morgun, miðvikudag. Miðað við ráðleysið gegn Liechtenstein á laugardaginn þar sem samansafn af neðrideildar leikmönnum í Sviss leit út eins og hágæða knattspyrnulið á köflum kallast það varla að taka stórt upp í sig þegar því er haldið fram að eina von okkar til að vinna leikinn gegn Svíum er að beita „danska bragðinu“ sem ég kýs að kalla svo. Við þurfum sem sagt að finna einhvern Íslending sem er tilbúinn til þess að klæðast sænska landsliðsbúningnum á miðvikudag. Hann þarf síðan að hlaupa inn á völlinn undir lokin og ógna dómaranum þannig að leikurinn verði flaut- aður af og okkur dæmdur sigur, 3-0. Þetta er eini raunhæfi möguleikinn í stöðunni. Eyjólfur Sverris- son er góður maður og vandaður. Hann er hins vegar hörmu- legur landsliðsþjálf- ari. Hann hefur ekki þann karakter, ekki það hugrekki og ekki þá útgeislun sem landsliðsþjálfari þarf að hafa. Ég kvartaði yfir því fyrir tveimur mánuðum hversu leiðinlegur hann væri og því miður tók hann ekki mark á mér. Hann býður enn upp á klisjur á klisjur ofan. Liðið hans er enn að gera sömu mistök og það gerði í fyrsta leiknum undir hans stjórn fyrir rúmu ári. Liðið spilar enn tilviljunarkenndan sóknarleik og illa skipulagðan varnarleik. Hann segist vera að byggja upp nýtt landslið. Ég segi: Nei, takk. Við þurfum einhvern annan í það. Einhvern sem veldur starfinu. Eyjólfur ætti að sjá sóma sinn í því að láta staðar numið í starfi. Og ef hann sér það ekki þá ætti formaðurinn Geir Þorsteinsson að leysa íslenska liðið úr álögum Eyjólfs. FH-ingar verða Íslandsmeistarar. KR-ingar ætluðu að verða Íslandsmeistarar en þeir verða bara verri og verri með hverjum leiknum sem líður. Og það hjálpar þeim ekkert að hafa fengið frábæran knattspyrnumann eins og Rúnar Krist- insson í liðið. Af hverju? Til að mynda af því að varnarlínan er með innanborðs þrjá leikmenn sem hreyfast varla lengur og af því að þjálfaranum virðist af einhverjum óskiljanlegum ástæðum finnast það sniðugt að gefa háa bolta á Björgólf Takefusa. Keflavík og Valur eru einu liðin sem eiga séns í FH. En þau hafa ekki Tryggva Guð- mundsson, Arnar Gunnlaugsson og Matthías Guðmundsson. Þessir menn þurfa bara eitt færi til að skora og þar skilur á milli. Þeir klára leikina og mótið í leiðinni. Þóra B. Helgadóttir, Leuven Greta Mjöll Samúelsdóttir, Breiðabliki Ásta B. Gunn- laugsdóttir, Breiðabliki Halldóra Gylfadóttir, ÍA Ragna Lóa Stefánsdóttir, ÍA Guðrún Sóley Gunnarsdóttir, Breiðabliki Olga Færseth, KR Guðrún Sæmunds- dóttir, Val Margrét Ólafsdóttir, Breiðabliki Ásthildur Helgadóttir, Malmö Margrét Lára Viðarsdóttir, Val V arnarjaxlinn Hermann Hreiðars-son fær um 400 milljónir í árslaun hjá Portsmouth eftir því sem heimildir Sport herma. Hermann skrifaði undir tveggja ára samning við enska úrvalsdeildarliðið fyrir tæpum tveimur vikum eftir að hafa fengið frjálsa sölu frá Charlton þar sem liðið féll úr ensku úrvalsdeildinni. Hermann gerði nýjan þriggja ára samning við Charlton fyrir rúmu ári og þá var greint frá því að sá samn- ingur væri metinn á millj- arð, eða 330 milljónir á ári. Samningur Her- manns nú er því enn betri og gerir hann að einum launahæsta varnar- manni ensku úrvalsdeildarinnar. Ólafur Garðarsson, umboðsmaður Her- manns, vildi lítið tjá sig um launamál Her- manns þegar Sport ræddi við hann. „Það eina sem ég get sagt er að launin hans hafa hækkað og samningurinn er afar góður. Annars er þetta ekki flókið reikn- ingsdæmi. Mörg lið voru tilbúin til að borga nokkur hundruð milljónir fyrir hann í janúarglugganum og nú þegar hann er á frjálsri sölu er eðlilegt að hann njóti góðs af því,“ segir Ólafur. Hingað til hefur Eiður Smári Guðjohnsen borið ægishjálm yfir aðra íslenska íþrótta- menn þegar kemur að launum. Eiður Smári skrifaði undir samning við Chelsea sumarið 2004 sem færði honum milljón á dag í laun. Ekki er talið að samningur hans við Barcelona sé lakari en síðan má bæta við árang- urstengdum greiðslum fyrir titla og spilaða leiki. HERMANN MEÐ 400 MILLJÓNIR Í ÁRSLAUN Knatspyrnumaðurinn Hermann Hreiðarsson er orðinn einn af launahærri varnar- mönnum ensku úrvalsdeildarinnar eftir hann samdi við Portsmouth til tveggja ára. EFTIR ÓSKAR HRAFN ÞORVALDSSON Forsíðumyndina tók Anton Brink af KR-ingnum Rúnari Kristinssyni í leik gegn Víkingi. Sjá viðtal á blaðsíðu 8. Útgefandi: 365, Ritstjóri: Óskar Hrafn Þorvaldsson oskar@frettabladid.is, Útlitshönnun: Kristín Agnarsdóttir kristina@frettabladid.is sport » ÍÞRÓTTABLAÐ FRÉTTABLAÐSINS 4.TBL. 2007 »ÆÐSTI DRAUMURINN« ER MEISTARATITILL MEÐ KR » FÓTBOLTI HERMANN MEÐ 400 MILLJÓNIR Í ÁRSLAUN RÚNAR KRISTINSSON ER KOMINN HEIM TIL KR EFTIR ÞRETTÁN ÁRA DVÖL ERLENDIS. SPO RTM YN D /A N TO N BRIN K » BOGFIMI KRISTMANN EINARSSON ÞARF AÐ LEITA EFTIR SAMKEPPNI ERLENDIS Umbo›s- og sölua›ili Birkiaska ehf. sími: 551 9239 www.birkiaska.is Vali› fæ›ubótarefni ársins 2002 í Finnlandi Minnistöflur Umbo›s- og sölua›ili Birkiaska ehf. sími: 551 9239 www.birkiaska.is Birkiaska Hermann Hreiðarsson þénar gríðarlega peninga á því að spila fótbolta og er mun launahærri en allir bankastjórar Íslands. NORDIC PHOTOS

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.