Fréttablaðið - 05.06.2007, Page 50

Fréttablaðið - 05.06.2007, Page 50
Það getur oft verið nauðsynlegt að ein- falda heimsmyndina fyrir börnum svo þau skilji að minnsta kosti hluta þess flókna sam- spils sem hún er. Ég og kona mín höfum stund- um gripið til þessa ráðs þegar sonur okkar hefur spurt spurninga þar sem svörin eru, að okkar mati, of flókin fyrir hann. Slík einföldun getur þó stundum flækt málin enda eru börn oftast mun skýrari en foreldrar þeirra. Stjórnmál eru eitt heitasta um- ræðuefni fjölskyldunnar. Í raun er það svo að stórfjölskyldan dreifir sér vítt og breitt yfir hið pólitíska litróf. Fjölskylduboðin geta því oft á tíðum orðið ansi heit. Þegar sveitarstjórnarkosning- arnar stóðu sem hæst fyrir um ári fylgdust við grannt með úrslitun- um á netinu. Sáum misstórar súlur í öllum regnbogans litum birtast á skjánum og blótuðum eða fögnuðum eftir því sem við átti. Sonur okkar fylgdist forviða með æsingnum og spurði að lokum hvað væri um að vera. Svörin létu ekki á sér standa. „Sko. Fólkið er að kjósa um hverj- ir eigi að stjórna og stóru súlurnar sýna hverjir eru að vinna. Bláu og grænu litirnir tákna vondu kallana. Þeir hugsa bara um peninga,“ var svar móðurinnar, sem hélt ótrauð áfram sinni skeleggu stjórnmála- skýringu: „Rauðu og appelsínu- gulu litirnir eru hins vegar góðu kallarnir. Þeir vilja að öll börn geti farið á leikskóla og svo hugsa þeir líka um gamla fólkið.“ Vissulega voru þessi svör ekki til að einfalda lífið fyrir þeim stutta. Einn afa hans var jú í græna lið- inu, annar í því rauða, sá þriðji í því appelsínugula og guðfaðir hans í því bláa. Sá stutti var engu að síður fljótur að átta sig á þessum leik enda upp- fullur af baráttunni á milli góðs og ills, sögunni af Zorro, Hróa hetti og öðrum hetjum. Það liðu enda ekki nema örfáar mínútur þar til hann varð ósáttur við stjórnmála- skýrandann sinn sem hafði neit- að honum um sælgæti og sagði: „Ojjj....hvað þú ert vond mamma. Þú hugsar bara um peninga.“ SMS LEIKUR SENDU SMS JA 28F Á 1900 OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ BÍÓMIÐA! VINNINGAR ERU BÍÓMIÐAR, DVD MYNDIR, TÖLVULEIKIR OG MARGT FLEIRA! Frumsýnd 30. maí STRANGLEGA BÖNNUÐ INNAN 16 ÁRA V in n in g ar ve rð a af h en d ir h já B T Sm ár al in d . K ó p av o g i. M eð þ ví a ð t ak a þ át t er tu k o m in n í SM S kl ú b b. 9 9 kr /s ke yt ið . BLÓÐUGT FRAMHALD AF 28 DAYS LATER 80 ára Í dag 5. júní verður Geir Valdimarsson Sandabraut 10, Akranesi, áttræður. Þau hjónin taka á móti vinum og vandamönnum laugardaginn 9. júní kl. 17 í félagsheimilinu Miðgarði.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.