Fréttablaðið - 24.08.2007, Page 1

Fréttablaðið - 24.08.2007, Page 1
Anna Richardsdóttir gjörningalistakona á Akureyri býr gjarnan til eitth ðm i Úr bláberjum má gera ljúffengt konfekt. Bláber eru alltaf góð en til þessað gera þau ennþá betri er alveg tilvalið að súkkulaðihúðaþau. Úr öskju af bláberjum ogsmá súkkulaði má nefnilegabúa til algjört sælgæti. Súkkulaðið er brætt í plastskályfir sjóðandi vatni í potti.Berjunum er velt upp úr súkkulaðinu nokkrum í einu ogtekin upp úr með tannstöngliog sett á smjörpappír á plötu.Ef gat er á berjunum eftir tannstöngulinn er ágætt að loka fyrir það með súkkulaði.Platan er sett inn í ísskáp og látin vera þar þangað til súkku-laðið á berjunum er storknaðog þau á að bera fram. Súkkulaðihúðuðu berin geturverið gott að hafa með kaffinu eða sem eftirrétt með rjómaeða ís. Súkkulaðiböðuð bláber Ein askja stór bláberTvær til þrjár súkkulaðiplöt-ur af dökku eða ljósu súkku-laði, fer eftir smekk FYRIR OG EFTIRÁrstíðaskiptinkalla á breytingar AF TÍSKUPÖLLUNUMFjaðrir í pilsfaldinn, skóna og hárið FÖRÐUNHæst móðins í haust tíska&fegurðFÖSTUDAGUR 24. ÁGÚST 2007 24. ÁGÚST 2007 Sara sýnir í París Silja býr í íbúð Jóns Ásgeirs Ragnhildur Steinunn flott á frumsýningu Sean Penn stæltur SPILA MATADOR MEÐ MIÐBÆINN Auðmenn Íslands: Morthensbræður byggja Hljóp heilt maraþon Númer eitt í notuðum bílum Frá 15.500 kr. á mánuði. BÍLL + TÖLVA 100% lán Stubbahúsin vinsælu fyrir utanhúss reykingarnar. Frábær hönnun, fást nú í 3 stærðum. Pöntunarsími: 564 1783 / 896 1783 Stubbahus.is Tveir Íslendingar, 36 ára karlmaður og stúlka um tvítugt, sitja nú í gæsluvarðhaldi í Kaupmannahöfn eftir að þau voru tekin með tæp tvö kíló af kókaíni, samkvæmt upplýsingum Frétta- blaðsins. Það var 11. ágúst síðastliðinn sem lögreglan í Kaupmannahöfn hafði afskipti af stúlkunni og manninum og fann á þeim kókaín. Við frekari leit fann lögreglan svo 1,9 kíló af efni í fórum þeirra sem talið er vera kókaín. Fólkið hefur verið í haldi síðan og sætt yfir- heyrslum, samkvæmt upplýsing- um Fréttablaðsins. Karlmaðurinn sem um ræðir hefur áður komið við sögu hjá lögreglunni hér vegna fíkniefnabrota. Karl Steinar Valsson, yfirmað- ur fíkniefnadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, staðfesti að maður og kona væru í haldi lög- reglu í Kaupmannahöfn, en varð- ist allra frétta af málinu, þegar Fréttablaðið innti hann eftir þeim. Þetta er í annað sinn á þessu ári sem Íslendingar eru teknir erlend- is með mikið magn af kókaíni í fórum sínum. Hinn 6. júní var 28 ára Íslendingur tekinn með rúm- lega sex kíló af kókaíni í Brasilíu. Lögreglan handtók hann á Guarul- hos-flugvellinum í Sao Paulo á leið til Lissabon. Hann bíður dóms. Þá var 25 ára Íslendingur, Hlyn- ur Smári Sigurðarson, dæmdur í þriggja ára fangelsi í Brasilíu vegna tilraunar til kókaínsmygls. Hann er á reynslulausn og kennir nú Brasilíubúum ensku í samfé- lagsþjónustu. Í brasilísku fangelsi í Sao Paulo situr svo annar íslenskur karlmað- ur sem tekinn var með 12 kíló af hassi í fyrrasumar. Loks var tæp- lega þrítugur íslenskur ríkisborg- ari dæmdur í Bremen í Þýskalandi fyrir fíkniefnasmygl. Maðurinn var handtekinn 21. janúar síðast- liðinn með fimm kíló af hassi og 700 grömm af örvandi efnum. Hann hlaut tveggja ára skilorðs- bundinn fangelsisdóm 6. júlí. Karlmaður og stúlka tekin með um tvö kíló af kókaíni Lögreglan í Kaupmannahöfn hefur í haldi tvo Íslendinga sem teknir voru með tæplega tvö kíló af kókaíni í fórum sínum. Efnin fundust 11. ágúst og hafa Íslendingarnir verið yfirheyrðir af dönsku lögreglunni. „Við erum að leita að lifandi fólki. Við reiknum alltaf með því að fólk sé á lífi og miðum leitina út frá því, hins vegar getum við ekki horft fram hjá því að langur tími er liðinn,“ segir Friðrik Jónas Friðriksson, formaður Björgunarfélags Hornafjarðar. „Þetta er óskaplega erfitt svæði til leitar. Á þessum slóðum er jökullinn mikið sprunginn svo felustaðirnir eru óteljandi,“ segir Friðrik. Um 70 manns tóku þátt í leitinni í gær með beinum eða óbeinum hætti og stefnt er á umfangsmikla leit í dag. „Menn fara hreinlega ekki þarna upp nema þeir séu í sér- stakri ævintýraleit,“ segir Róbert Þór Haraldsson fjallaleiðsögu- maður um staðinn á Svínafells- jökli þar sem tjald þýsku ferða- mannanna tveggja, sem saknað hefur verið síðan um mánaðamót, fannst í gær. „Þetta er í raun sprungnasti hluti jökulsins sem gerir leit á þessu svæði afar erfiða,“ segir Róbert, sem gjörþekkir svæðið. Hann var í hópi björgunarsveit- armanna sem gengu á Svínafells- jökul í gær. Hann segir mennina, Thomas Grundt og Mathias Hinz, hafa gert mistök með því að láta ekki vita af ferðum sínum áður en þeir lögðu á jökulinn. Þyrla Landhelgisgæslunnar fann tjöld mannanna í um 500 metra hæð við jaðar jökulsins, og rannsakaði lögreglan tjöldin í gær. Ekki er hægt að fullyrða hvenær mennirnir voru þar á ferð en ljóst að nokkuð er liðið síðan þeir yfirgáfu tjöldin. Í tjöldunum voru svefnpokar og annar útbúnaður fyrir tvo menn. Þar var nokkuð af mat en lítið af rusli, sem bendir til þess að mennirnir hafi ekki dvalið þar lengi. Bakpokar og klifurbúnað- ur mannanna var ekki í tjaldinu, og bendir flest til þess að þeir hafi farið í dagsferð frá tjöldun- um. Sporhundurinn Píla leitaði á svæðinu en tókst ekki að rekja slóð mannanna. Tvær þyrlur voru notaðar við leitina í gær, og voru reyndustu menn úr undanfara- hópi Landsbjargar sendir á jökul- inn. Leita að lifandi fólki á jöklinum Eldar hafmeyjusúpu Byggja við Meðalfellsvatn Hæst móðins í haust

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.