Fréttablaðið - 24.08.2007, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 24.08.2007, Blaðsíða 6
„Í fjármálaráðuneyt- inu eru reglur um að stofnanir þurfi að senda inn skýringar á ársfjórðungsfresti varðandi sínar fjárreiður og þeir munu fylgja því mjög fast eftir, að þær haldi sér innan fjárlagarammans,“ segir Gunnar Svavarsson, formaður fjárlaganefndar. Fjárlaganefnd hlýddi á fulltrúa fjármálaráðuneytisins í gær- morgun vegna ágreinings milli Ríkisendur- skoðunar og fjármálaráðu- neytisins um framkvæmd fjárlaga. Meðal annars varð að samkomulagi að hert verði á ofangreindum reglum. „Ég held að það sé auðvitað vilji hjá öllum að gera þetta á réttan hátt, sagði Gunnar. „Fjármálaráðu- neytið ber ábyrgð á fram- kvæmd fjárlaga gagnvart þing- inu og það er mikilvægt að nýta skýringar stofnana til að sjá af hverju þær fara fram úr fjár- lögum, svo það liggi fyrir þegar farið er að úthluta fjármunum næsta árs.“ Hann segir þetta fyr- irkomulag ýta undir að „menn séu sífellt á tánum“. Baldur Guðlaugsson, ráðuneyt- isstjóri fjármálaráðuneytis, tekur fram að ráðuneytið hafi ekki boðvald yfir öðrum ráðuneytum í þessum efnum. Hann segir að nokkur reynsla sé komin af umræddri skýrslugerð. „En það má kannski segja, eins og bent er á í skýrslu Ríkisendur- skoðunar, að allur gangur hafi verið á því hversu fast einstök ráðuneyti hafa fylgt þessum regl- um eftir. Það er vilji til að herða það og það verður gengið frekar eftir því,“ segir Baldur. Erindi Einars Hermannssonar skipaverkfræðings var lagt fram á fundinum. Í því skýrir hann sína aðkomu að kaupum á Grímseyjar- ferjunni. „Fulltrúar Vegagerðarinnar lýstu störfum Einars í gegnum tíðina og bentu á að aðrir ráðgjaf- ar hafi komið að málinu á síðari stigum þess. Verkfræðistofan Navís Fengur sá til dæmis um ráðgjöfina eftir að skipið kom til landsins,“ segir Gunnar. Vegagerðin hafi tekið ábyrgð á því að hafa farið eftir aðkeyptri ráðgjöf og mistökum vegna ferj- unnar. Einar skýrir mál sitt frek- ar á næsta fundi nefndarinnar. Ráðuneyti fjármála herðir vinnureglur Formaður fjárlaganefndar segir þetta ýta undir að „menn séu sífellt á tánum“. Vegagerðin tók enn á sig ábyrgð vegna Grímseyjarferju á fundi fjárlaganefndar. Einar Hermannsson skipaverkfræðingur skýrir mál sitt betur á næsta fundi. Ferðaskrifstofa „Það er ómögulegt að tímasetja tvöföldun Suðurlands- vegar. Þetta er flókin framkvæmd og fjöldi sveitarfélaga sem kemur að þessu. Sérstaklega er erfitt að áætla þetta út af skipulagsmál- um,“ segir Kristján Möller sam- gönguráðherra. Kristján undirbýr nú að láta tvö- falda allan veginn milli Reykja- víkur og Selfoss og brýr, einnig brúna yfir Ölfusá. Hann kveður undirbúninginn á fleygiferð. Mikið verk sé hins vegar óunn- ið, enda þurfi allir 2x2 vegir að fara skilyrð- islaust í umhverfismat. „Sums staðar er rætt um að hafa veginn svipaðan Reykjanesbrautinni með bili á milli. Annars staðar gæti verið hentugast að breikka og hafa vegrið á milli,“ segir hann. Margt komi til álita, til dæmis þurfi að skoða hvort borgi sig að framkvæmdin verði unnin í áföng- um og þá hvernig. Einnig hvort einkaaðilar verði fengnir til verks- ins eða það verði hefðbundin ríkis- framkvæmd. Innan skamms tíma verði fund- að með sveitarstjórnarmönnum á svæðinu til að ræða málin betur. Styður þú að prestar fái heimild til að gefa saman samkyn- hneigð pör? Ertu óttasleginn þegar þú ert á ferð um miðbæ Reykjavíkur? „Ég tel að í þessu felist færi til að koma fleiri einstaklingum til hjálpar en nokkurn tímann hefur verið möguleiki,“ segir Jón H. B. Snorrason, aðstoðarlögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins, um samkomulag sem lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu, dómsmálaráðuneyti og SÁÁ hafa gert með sér um áfengis- og fíkniefnamálefni. Jón segir samkomulagið gríðarstórt fram- faraskref en það felur meðal annars í sér að SÁÁ mun tryggja lögreglu sjúkrarými fyrir fólk með bráðan fíkniefnavanda. Auk þess mun sjúkrahúsið á Vogi taka við fólki sem hefur verið dæmt í meðferð. Því er gert að ljúka henni og þarf þar að auki að standast eftirmeðferð og eftirlit sem henni fylgir. Meðferðin kæmi í stað skilorðsbundinnar refsingar. Standist menn meðferðina ekki eða neiti að una meðferð þurfa þeir að afplána refsingu í fangelsi. Jón segir lögreglu nú hafa tryggingu fyrir því að Vogur geti tekið á móti fólki í bráðum vanda. Afar sárt hafi verið fyrir lögreglumenn að horfa upp á síendurtekin vandræði sem margir einstaklingar koma sér í vegna fíknar sinnar án þess að þeir gætu tryggt að fólk fengi aðstoð fagfólks. „Nú verður hægt að meðhöndla áfengis- og fíkniefnaneytendur sem sjúklinga en ekki sakamenn,“ segir Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi. Samkomulagið er ekki talið hafa í för með sér aukinn kostnað. Það verði til þess að auðveldara verði að forgangsraða og meðferðin talin árangursríkari þar sem í henni felst tækifæri og þrýstingur til að halda sig innan ramma laganna og frá vímugjöfum. Meðferð í stað fangelsisvistar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.