Fréttablaðið - 24.08.2007, Blaðsíða 80

Fréttablaðið - 24.08.2007, Blaðsíða 80
 Fréttablaðið hefur nú gert upp 7.-12. umferð Lands- bankadeildar karla og samkvæmt einkunnagjöf Fréttablaðsins var Gunnleifur Gunnleifsson, mark- vörður HK, besti leikmaður þess hluta mótsins. Hann var vitanlega ánægður með þá viðurkenningu. „Ég er ánægður enda auðvitað mikill heiður fyrir mig,“ sagði hann við Fréttablaðið. Hann segir að sínir menn hafi bætt leik sinn mikið í síðustu tveimur leikjum sínum. „Það var mjög margt jákvætt í leikjum okkar gegn Keflavík og FH. Vonandi náum við að halda áfram á þessari braut.“ HK fékk fjögur stig úr þessum tveimur leikjum sem gætu reynst ansi dýrmæt þegar uppi verður staðið. HK er ekki laust við fall- drauginn en stendur þó best af þeim fjórum liðum sem eru í hvað mestri fallhættu. „Fyrst og fremst hefur okkur HK-ingum þótt alveg hrikalega gaman að spila fótbolta í sumar,“ sagði Gunnleifur aðspurður um hvað stæði upp úr það sem af er móti. „Fyrirfram var talað um okkur eins og við værum alger- lega lausir við alla hæfileika og okkur spáð rakleitt beint niður um deild aftur. Það getur auðvitað ennþá gerst en ég tel að við höfum nú þegar afsannað ýmislegt sem sagt var um okkur fyrir mót. Við höfum notið þess í botn að spila með þeim bestu og ætlum að halda því áfram.“ Hann segist engar áhyggjur hafa af því að reynsluleysi verði liðinu að falli en HK er nú að spila í efstu deild í fyrsta sinn í sögu félagsins. „Við erum á uppleið, liðið er að spila betur og hugarfar- ið er betra. Okkur finnst bara svo gaman að spila fótbolta að ég hef engar áhyggjur af þessu.“ Næsta sunnudag mæta HK- ingar í heimsókn til Framara á Laugardalsvelli og ljóst að gríðar- lega mikið er undir í þeim leik. „Þetta er auðvitað algjör úrslita- leikur upp á framhaldið að gera. Annað hvort slítum við okkur frá þessum botnslag eða verðum í basli fram í síðustu umferð. Leik- urinn verður auðvitað mjög erfið- ur og væntanlega mikið barist. Það lið vinnur sem vill einfaldlega sigurinn meira og ég er handviss um að það lið verði HK.“ Árangur á útivelli er reyndar ekkert til að hrópa húrra fyrir en eftir markalaust jafntefli við Vík- ing á útivelli hefur HK ekki náð stigi nema á heimavelli og fengið á sig fimmtán mörk gegn aðeins einu skoruðu marki. „Ég hef engar skýringar á þessu en batnandi mönnum og batnandi liðum er best að lifa. Við tökum þetta bara núna.“ Gunnleifur Gunnleifsson markvörður HK er besti leikmaður 7.-12. umferðar Landsbankadeildar karla samkvæmt einkunnagjöf Fréttablaðsins. Hann segir að HK-menn hafi skemmt sér mikið í sumar og ætli að halda áfram í efstu deild. Það voru langmestu fram- farirnar hjá Skagamönnum þegar borin er saman tölfræði fyrstu sex umferða Landsbankadeildar karla við tölfræði 7. til 12. umferðar. Meistaraliðin í fyrra, Íslands- meistarar FH og bikarmeistarar Keflavíkur, gáfu hinsvegar mest eftir. Skagamenn fengu 11 fleiri stig, skoruðu 7 fleiri mörk og fengu 6 færri á sig í miðhluta mótsins en markatala liðsins fór út 9-12 í fyrsta hlutanum í 16-6 í umferðum 7 til 12. Það voru þrjú önnur félög sem náðu að bæta árangur sinn en KR, Fram og Breiðablik fengu öll fleiri stig. Valsmenn voru síðan eina liðið í deildinni sem fékk jafn- mörg stig út úr báðum hlutum. Það vekur athygli að FH-ingar fengu átta fleiri mörk á sig í mið- hluta Íslandsmótsins en í upphafi þess. FH-liðið fékk aðeins á sig 3 mörk í fyrstu sex umferðunum en mörk mótherja þeirra voru hins- vegar 11 í 7. til 12. umferðar. FH- liðið lækkaði sig einnig mest í stigaöflun eða um fimm stig, náði í 16 af 18 mögulegum stigum í upphafi móts en 11 stig í miðhlut- anum. Keflvíkingar misstu dampinn í þessum hluta mótsins, meðalein- kunn liðsins lækkaði mest af öllum liðum og þeir skoruðu auk þess fimm færri mörk. Skagamenn bættu sig mest milli hluta Kristinn Jakobsson og Eyjólfur Magnús Kristinsson voru með hæstu meðaleinkunn dómara í 7. til 12. umferð en báðir voru þeir með 7,5 í meðaleinkunn, Kristinn í fjórum leikjum en Eyjólfur í tveimur. Magnús Þórisson og Garðar Örn Hinriks- son voru jafnir í þriðja sætinu með 7,25 í meðaleinkunn í fjórum dæmdum leikjum. Kristinn og Eyj- ólfur efstir Danska úrvalsdeildarlið- ið FC Nordsjælland sendi útsendara sína til Íslands til að skoða FH-ingana Matthías Guðmundsson og Matthías Vilhjálmsson í landsleikjunum við Kanada og Kýpur. Matthías Guðmundsson kom ekkert við sögu í jafntefli A- landsliðsins við Kanada en nafni hans Vilhjálmsson spilaði fyrsta klukktímann í fremstu víglínu í 0- 1 tapi 21 ársliðsins fyrir Kýpur. Þetta kom fram í danska blaðinu Ekstra bladet í gær. Komu til að skoða FH-inga Krossbandaslitin eru ekki arfgeng
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.