Fréttablaðið - 24.08.2007, Blaðsíða 77
Victoria Beckham er mikið í mun að líta vel út
og lætur helst ekki sjá sig á opinberum vett-
vangi nema hún sé klædd í spáný föt, með hárið
greitt og í háhæluðum skóm. Svo virðist sem
hún geri engar undantekningar á slíkri hegðan,
jafnvel þegar hún fer með fjögurra ára gamlan
son sinn, Cruz, í leikskólann.
Hælarnir eru heldur engin smá smíði heldur
er um að ræða 17 sentímetra langa hlemma,
sem hljóta að gera barnauppeldi ögn erfiðara.
Þeir hindruðu Victoriu þó ekki í að halda á Cruz
inn í leikskólann auk þess sem hún var með
stóra tösku á sömu hendi.
Mamma í há-
hæluðum skóm
Jogi segist ekki vita með fullri
vissu hversu mörg börn hann eigi
og er allt eins líklegt að þau séu
fleiri en þau 21 sem vitað er um
með fullri vissu, tólf syni og níu
dætur. Þá á Jogi 20 barnabörn og
sjö barnabarnabörn.
Spurður um hvernig hann við-
haldi frjóseminni segir Jogi að
mikið kjötát sé lykilatriði. „Ég
borða allar tegundir af kjöti, lömb,
kanínur, kjúklinga, naut og önnur
villt dýr. Svo fer ég í góðan göngu-
túr á hverjum degi.“
Jogi eignaðist sitt fyrsta barn
árið 1943 og hefur bætt jafnt og
þétt í sarpinn síðan þá. Núverandi
eiginkona hans, Saburi, var eitt
sinn gift elsta syni hans, Shiv Lal,
sem lést fyrir 10 árum síðan. „Þegar
maðurinn minn lést lofaði Jogi að
hugsa um mig og nú eigum við sjö
börn. Ég er mjög hamingjusöm,“
segir Saburi. Sjálfur segist Jogi lifa
hinu fullkomna lífi. „Öll þessi börn
og barnabörn halda mér ungum.“
endurútgefinn
Popparinn Justin Timberlake hefur
bæst í leikarahóp nýjustu myndar
Mike Myers, The Love Guru. Timber-
lake og Myers hafa áður unnið saman
við talsetningu þriðju myndar-
innar um tröllið Shrek.
Myers er aðstoðarframleið-
andi myndarinnar, sem fjallar
um mann sem var alinn upp af
gúrúum og gerist hjónabands-
ráðgjafi. Á meðal fleiri leikara
verða Jessica Alba, Romany
Malco og dvergurinn Verne
Troyer, sem lék Mini Me í Austin
Powers-myndunum. Tökur á
myndinni hefjast í næsta mánuði
í Toronto.
Justin í nýrri
mynd Myers
sem hætti í sveitinni ári eftir að
platan kom út, samdi megnið af
lögunum. Náði platan sjötta
sæti á breska vinsældalistan-
um.