Fréttablaðið - 24.08.2007, Síða 29

Fréttablaðið - 24.08.2007, Síða 29
Helga Braga Jónsdóttir leikkona hefur löngum verið þekkt fyrir að falla fyrir fögrum hlutum og segist sjálf vera haldin kaupsýki. Verstu kaupin gerði hún þó strax ellefu ára gömul. Helga Braga segir að verstu kaup sem hún muni eftir hafi verið snemma á lífsleiðinni þegar hún fór til Reykjavíkur að heimsækja pabba sinn, Jón Hjartar- son leikara. „Það var pabbahelgi og ég fór með Akra- borginni til Reykjavíkur þegar ég var ellefu ára eða eitthvað svoleiðis,“ segir Helga og bætir við: „Ég hafði verið að passa og átti þess vegna pening þannig að mamma sagði að ég mætti fara í skvísubúð og kaupa mér einhver föt.“ Helga segir að þegar hafi verið ljóst í hvað stefndi þegar hún var ellefu ára því kaupfíknin hafi strax byrjað á unga aldri. „Ég fór í mikla skvísubúð og sá þar tvær peysur, ógeðslega flottar, röndóttar. Önnur var rauð og hvít en hin var blá og hvít. Ég gat ekki valið á milli og keypti þær auðvitað báðar,“ segir hún og hlær. Helga segist ekkert hafa tékkað á því hvernig ætti að þvo nýju peysurnar svo þeim hafi bara verið skellt í þvottavélina. „Þegar þær komu út úr þvottavélinni var önnur ermin löng og hin stutt þannig að báðar peysurnar fóru bara fjandans til,“ segir Helga hlæj- andi og bætir við: „Þetta var reyndar eitthvað dular- fullt því ég er ekki frá því að þetta hafi bara verið venjulegt bómullarefni. Ég man nú ekki hvort ég hafi sjálf sett þær í vélina en þetta var að minnsta kosti mjög dularfullt. Þarna hefndist mér nú strax fyrir kaupsýkina en lét mér því miður ekki segjast,“ segir Helga. Bestu kaupin segir Helga erfitt að segja til um en örugglega séu það þó öll ferðalögin sem hún hafi farið í. „Það er lífsreynslan og upplifunin sem fylgir því að ferðast og prófa ýmsa nýja hluti eins og að kafa og fleira slíkt. Svo eru það auðvitað allir kjólarn- ir og allt það sem er alveg frábært en það er bara svo mikið af því að ég get ekki gert upp á milli.“ Hefndist fyrir kaupsýkina Tjaldmarkaður í Faxafeni Nú er hægt að gera reyfarakaup á flottri merkjavöru fyrir miklu minna á tjaldmark- aði Outlet 10 í Faxafeni 10. Til dæmis geta karlar verslað sér vönduð jakkaföt á aðeins 9.900 krónur, klæðilegar dömu- og herra- buxur fást frá 99 krónum, fallegur barnafatnaður frá 499 krónur og bolir, skyrtur, sokkabuxur, kjól- ar og nærfatnaður frá 499 krónum. Einnig fást á tjaldmarkaði Outlet 10 ekta Levi‘s-gallabuxur á bæði dömur og herra fyrir aðeins 3.990. Nú eru síðustu dagar útsölunn- ar í Rekkjunni og því enn meiri afsláttur af vörunum. Allt að 50 prósenta afsláttur er af heilsu- dýnum, rafmagnsrúmum, svefn- sófum, gestarúmum, svefnher- bergishúsgögnum ásamt fleiru fyrir svefnherbergið. Einbreitt rafmagnsrúm með heilsudýnu er nú á 79.900 krónur og tví- breið, amerísk heilsudýna á 89.900 krónur. Nú er um að gera að drífa sig þar sem útsölunni lýkur í lok laugardags. Bæjarlind 6, Kóp. • s. 534 7470 • www.feim.is Opið virka daga 10-18 og laugardaga 11-15 Ný sending af gardínum Feim-Lene Bjerre - leggur heiminn að vörum þér Gvatemalabaunir frá búgarðinum La Union brenndar í vínarbrennslu - keimur af dökku súkkulaði, kryddi og brenndum sykri. Kaffi ræktað af sannri alúð. Frábært í allar gerðir uppáhellingar. H2 hö nn un NY UPPSKERA! Iðnaðartjöld, samkvæmistjöld, lagertjöld... Topdrive.is Smiðjuvellir 3, Reykjanesbær 422-7722 50-550 fm. 821.700 - verðdæmi: 82m2
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.