Fréttablaðið - 24.08.2007, Síða 34

Fréttablaðið - 24.08.2007, Síða 34
BLS. 4 | sirkus | 24. ÁGÚST 2007 Silja Magg ljósmyndari er á leið til New York til náms ásamt unnusta sínum Sig- urði Pálma Sigurbjörnssyni, syni Ingi- bjargar Pálmadóttur, unnustu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar stjórnarfor- manns Baugs. Fyrst um sinn munu Silja og Sigurður, sem rekur útgáfufyrirtækið From Nowhere Records, þó ekki búa á stúdentagörðum eða í leiguíbúð eins og aðrir háskólanemar. Þess í stað munu skötuhjúin láta fara vel um sig í glæsi- legri þakíbúð sem Jón Ásgeir keypti fyrr á árinu en íbúðin var áður í eigu John F. Kennedy Bandaríkjaforseta. Silja og Sig- urður ætla að dvelja í þakíbúðinni þang- að til þau finna sína eigin íbúð. Bandaríska dagblaðið New York Post fjallaði um kaup Jóns Ásgeirs á íbúðinni í apríl á þessu ári. Þar kom fram að íbúðin, sem er öll hin glæsilegasta, er hönnuð af Ian Schrager og stendur við Gramercy Park North rétt við Park Avenue. Hún er á tveimur hæðum, með þremur herbergjum, íburðarmiklu fjöl- miðlaherbergi og litlum líkamsræktar- sal. Þar er einnig bókasafn og nokkrar verandir. Íbúðina keypti Jón Ásgeir á 10 millj- ónir dollara sem þóttu, samkvæmt The New York Post, kjarakaup þar sem ásett verð var 16 milljónir dollara. Kostnað- urinn við íbúðina er þó talsvert meiri því mánaðarlegt viðhaldsgjald eru 17.720 dollarar eða um 1,2 milljónir króna á mánuði samkvæmt núverandi gengi. - kh Búa í þakíbúð Jóns Ásgeirs GLÆSILEG ÍBÚÐ Íbúðin hans Jóns Ásgeirs er öll hin glæsilegasta enda kostaði hún litlar tíu milljónir dollara. SILJA MAGG Hún fór af landi brott ásamt unnusta sínum á þriðjudaginn var og lætur eflaust fara vel um sig í þakíbúð- inni hans Jóns Ásgeirs. Hlaup eru greinilega í tísku hjá fræga fólkinu eins og glögglega mátti sjá í Reykjavíkurmaraþoni Glitnis á laugar- dag þar sem mörg þekkt andlit var að finna meðal hlaupar- anna. Tónlistarmaðurinn Gunni Bjarni var einn þeirra sem reimuðu á sig hlaupaskóna en hann lét sig ekki muna um að hlaupa hvorki meira né minna en 42 km eða fullt maraþon. „Þetta var algjör sigurvíma,“ sagði Gunni Bjarni þegar Sirkus sló á þráðinn til hans og spurði út í hlaupið en þá var hann staddur í göngutúr á Helgafellinu. „Ég var nokkuð ánægður með tímann en ég hafði svo sem ekki sett mér neitt markmið fyrir hlaupið nema það að hlaupa allan tím- ann og ég stóð við það,“ segir Gunni Bjarni, sem hljóp maraþonið á rétt undir fjórum klukkustundum. Ímynd Gunna Bjarna hefur hingað til verið rokkuð og röff og því ráku margir upp stór augu þegar hann mætti í hlaupið á laugardag í stuttbuxum og íþróttaskóm. Sjálfur segir hann hins vegar að hlaup séu alls ekki ný af nálinni hjá sér. Hann segist í gegnum árin alltaf hafa hlaupið eitt- hvað, gengið mikið á fjöll og hjólað, en það hafi ekki verið fyrr en í ár að hann hóf að æfa hlaup reglulega. „Ég er eiginlega bara búinn að vera í jogginggallanum undanfarna mánuði en ég fer nú kannski úr honum í haust,“ segir Gunni Bjarni glettinn. Fyrir utan hlaupin hefur verið nóg að gera í tónlistinni hjá honum en væntan- leg er ný plata frá hljómsveitinni Jet Black Joe. Spurður hvort hann eigi einhver góð ráð fyrir þá sem ætli sér að hlaupa fullt maraþon á næsta ári segir Gunni Bjarni að æfingin skipti öllu máli. Menn verði að sjálfsögðu að vera í góðu líkamlegu formi en andlegur styrkur þurfi ekki síður að vera til staðar. „Hluti af þessu andlega er að vera með góða tónlist í eyrunum sem lætur mann líða áfram,“ segir Gunni Bjarni, sem sjálfur var með spilarann fullhlaðinn af rokki og róli fyrir hlaupið. - snæ TÓNLISTARMAÐURINN GUNNI BJARNI KOM ÖLLUM Á ÓVART Á LAUGARDAGINN VAR OG HLJÓP 42 KM Í REYKJAVÍKURMARAÞONINU ROKKARI Á HLAUPASKÓM ROKKARINN Lét rokktónlist hljóma á meðan hann hljóp heilt maraþon; 42 kílómetra. Eivør Human Child/Mannabarn 2CD Ýmsir Pottþétt 44 Magni Magni Megas og Senuþjóf. Frágangur Mika Life in Cartoon Motion Ýmsir Íslandslög 7 Millarnir Alltaf að græða Garðar Thor Cortes Cortes 2007 Ýmsir Íslandslög 1-6 (6CD) Ljótu Hálfvitarnir Ljótu Hálfvitarnir Jagúar Shake It Good Ýmsir Í brekkunni: Eyjalögin 2cd Ýmsir 100 Íslensk 80’s lög Gus Gus Forever KK og Maggi Eiríks Langferðalög Amy Winehouse Back To Black Ýmsir Instant Karma (John Lennon) Lay Low Please Don’t Hate Me Skoppa og Skrítla Á söngferðalagi Björk Gling Gló 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 Það er skemmtilegt að sjá Gling Gló hennar Bjarkar koma á listann en þessi geislaplata selst alltaf vel og tekur yfirleitt gott stökk á sumrin. Gling Gló er í sæti númer 20 í 4 sinn í sumar. Eivør er stjarna vikunnar og er búin að selja gríðarlega vel af disknum sínum, og þá bæði Orginal útgáfunni og Special edition disknum sem inniheldur lögin hennar á Færeysku líka. Eivør Gling Gló Nældu þér í eintak Li st in n g ild ir v ik u n a 23 . á g ú st - 30 . ág ú st 2 00 7 A N Lækkar frá síðustu viku Hækkar frá síðustu viku Stendur í staðNýtt á listaAftur á lista N N A Skífulistinn er samantekt af mest seldu plötunum í Skífunni og verslunum BT út um allt land. A Hringdu í síma ef blaðið berst ekki
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.