Fréttablaðið - 24.08.2007, Side 46
tíska&fegurð
JAPANSKA FYRIRSÆTAN YAMAGUCHI LÁTIN Sayoko
Yamaguchi var fyrst asískra kvenna að ná heimsfrægð sem fyrirsæta,
en hún er nýlátin.
Yamaguchi lést um síðustu helgi úr bráðalungnabólgu, aðeins 57
ára gömul. Hún vakti strax athygli tískuheimsins þegar hún hóf að
sýna hátískufatnað fyrir evrópsk tískuhús á áttunda áratugnum og
varð skjótt frægasta andlit Japans í hinum alþjóðlega tískuheimi.
Það sem einkenndi Yamaguchi var tinnusvart, sítt og rennslétt
hárið, sem ávallt var klippt stuttum þvertoppi rétt ofan við augun.
Yamaguchi hóf feril sinn í París árið 1972 og fór þaðan til starfa í
New York og fleiri tískuborgum Evrópu. Árið 1977 útnefndi tímaritið
Newsweek hana sem
eina af sex ofurfyrir-
sætum heimsins.
Í seinni tíð lék
Yamaguchi tals-
vert á sviði sem og
kvikmyndum, og
sérhannaði sína eigin
leikbúningalínu.
Margrét hefur mikla ástríðu fyrir
starfi sínu og ósjaldan er leitað til
hennar sem einskonar förðunar-
véfréttar, en jafnframt því að reka
Make up store í Kringlunni held-
ur hún úti ýtarlegri vefsíðu, www.
margret.is, þar sem hægt er að
fræðast um förðun frá a-ö.
„Mér finnst lykilatriði að húðin
sé óaðfinnanleg og því skiptir það
miklu máli að finna farða í réttum
tón,“ segir Margrét spurð að því
hvaða atriði komi til með að skipta
miklu máli í haust. Hún bætir því
svo við að mikil áhersla verði lögð
á augnförðun.
„Augun eru áberandi dökk í
vetur og mikið um bláa augn-
skugga – sérstaklega navy bláa.
Svartir augnblýantar og mikil
og ýkt augnahár verða áberandi
en lítið fer fyrir kinnalitnum og
sólarpúðrinu í vetur,“ segir hún og
bætir við að áherslan sé fremur á
varir en kinnar. „Þá helst vínrauð-
ir varalitir, eldrauðir og sterk-
ir bleikir litir. Tískan í förðuninni
núna minnir mig í raun á þegar
ég horfði á mömmu mála sig
með carmen-rúllurnar í hárinu. Í
minum huga eru árið 1978-79 allt-
af flottust, eflaust af því minning-
in er svo yndisleg,“ segir Margrét
að lokum. margret@frettabladid.is
Eins og Faye Dunaway
Margrét Ragna Jónasardóttir naut þess að horfa á mömmu sína mála sig þegar hún var
barn en tískuna í haust og vetur segir hún einkennast svolítið af áttunda áratug síðustu
aldar. Rauðar varir og áberandi augu, en umfram allt flekklaus og falleg húð.
Leikkonan Faye Dunaway í hlutverki
Bonnie Parker var fyrirmyndin sem
Margrét fór eftir í þetta sinn. Dökk augu
og áberandi varir.
Áberandi augnförðun og mikil og löng
augnahár eru það sem koma skal.
FRELSI OG SIXTÍSLEGT
SEXAPÍL Ofurskutlan Giséle Bünd-
chen minnti óneitanlega á bombu
úr spagettívestra þar sem hún lék í
kynningu fyrir nýjasta ilm Cacharel,
Liberté, eða frelsi. Liberté er bæði
kryddaður og sætur í senn, rómant-
ískur, opinskár og kynþokkafullur.
snyrtivörur
Margrét fer hér faglegum höndum um
Söndru Björk í versluninni í Kringlunni.
Sterkir varalitir verða áberandi í haust
og vetur.
Sandra Björk Gunnars-
dóttir í andaáttunda
áratugarins, en þau ár
eru eftirlætis tímabil
Margrétar þegar
kemur að tísku og
förðun.
24. ÁGÚST 2007 FÖSTUDAGUR8